27.12.2007 | 08:20
Varla verður hann eilífur..............
Annars hef ég alltaf haft dálæti á Castro,ekki vegna stjórnmálaskoðanna hans,heldur vegna þess hvernig hann hefur staðið uppí hárinu á bandaríkjamönnum í öll þessi ár,og fengið þjóðina í lið með sér þrátt fyrir allskonar þrengingar sem hafa staðið landinu fyrir þrifum vegna aðgerða kanans,sem þrátt fyrir allt hafa ekki virkað nema að nokkru leiti.
Þrátt fyrir greinilega fátækt landsmanna,virðast þeir vera glaðlyndir, og umfram allt ótrúlega úrræðagóðir,og nægir í því sambandi að benda á bílaflota þeirra,það er ævintýri líkast að sjá þessa gömlu bíla á ferðinni,og ólíkt meiri tilbreyting að virða fyrir sér umferðina með þessum bílum sem hver og einn hefur sinn karakter ,eða að horfa á venjulega umferð þar sem er meiri velmegun og allir bílarnir steyptir í sama móti,sérkennalausir að mestu.
![]() |
Castro býður sig fram til þings |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.12.2007 | 17:20
Hvaða afturfótafæðing er endalaust hjá dómskerfi okkar???????????????
Mál skemmdarvargs sem stakk gat á hjólbarða á fimm lögreglubílum hjá lögreglu Suðurnesja á jólanótt er nú borði rannsóknardeildarinnar.
Hvað þarf að rannsaka ?
Liggur ekki málið ljóst fyrir,maðurinn nánast staðinn að verki:ef að líkum lætur verður þetta "rannsakað" í einhverjar vikur dómstólar neita að hafa manninn í gæslufangelsi svo hann eigi hægara með að koma sér úr landi.
Maður er að verða svo gáttaður á seina og vandræðagangi lögreglu og dómara að það hálfa væri nóg.
Dæma manninn strax, stinga honum inn án möguleika á styttingu refsingar,og vísa honum síða úr landi,án möguleika á því, að fá að koma nokkurn tíma aftur til landsins aftur.
'Ég gæfi ekki mikið fyrir íslenska landamæragæslu ef við byggjum við landtengingu við fleiri lönd,þegar ekki tekst betur til með gæsluna á eyju sem enga landtengingu hefur, og í raun fáar leiðir út úr landinu, sem ekki er hægt að vakta á tiltölulega auðveldan hátt
![]() |
Mál skemmdarvargs á borði rannsóknardeildar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
26.12.2007 | 16:45
Það eru ekki heilbrigðir einstaklingar sem svona gera.
![]() |
Skemmdarvargar á Reyðarfirði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.12.2007 | 09:31
Er eitthað til, sem er öruggt í þessu landi. nema morð og ofbeldi?
Svona frétt er eiginlega bara skondin,þótt það sé ekki hlægjandi að stríðógnunum sem hrjá þetta land og hafa gert svo lengi sem elstu menn muna.
Ég meina, fyrirsögnin er eiginlega öfugmæli,þarna er hver höndin upp á móti annari,og ættflokka erjur landlægar,sem hljóta að ógna öryggi landsins einar og sér,þar sem margir þessir ættflokkar njóta stuðnings utanaðkomandi afla,og á ég þar við t.d.,Bandaríkjanna,Rússa,Kínverja og annara landa sem telja sig hafa hagsmuni af því að styðja við bakið á einhverjum af þessum smákóngum sem bygggja þetta land.
Tveir menn ógna ekki öryggi lands,ef þeir gera það þá eru þeir með sterkan aðila á bak við sig,sem hlýtur að vera einhver ríkisstjórn sem finnst hagsmunum sínum ógnað.
Flest stríð sem eru í gangi i dag má beint og óbeint rekja til Bandaríkjanna , Rússlands og Kína .Þessi lönd eru með allar klær úti til að halda í hlunnindi,pólitísk áhrif, og annað sem þeim má að gagni verða á þessum átakasvæðum.
Þeim er yfirleitt skítsama um almenning í viðkomandi lödum.
![]() |
Tveir Bretar handtekir í Afganistan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.12.2007 | 13:57
Orkusparnaður hjá Orkuveitunni ?
![]() |
Fylgst með orkunotkun um jólin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)