24.12.2007 | 08:26
Jólalög ! Hvað er það ?
Aðfangadagsmorgun,hef verið að velta fyrir mér í morgun spurningu sem oft hefur leitað á þegar jólin nálgast.Og hún er ,hvað ræður spilun jólalaga í útvarpi allra landsmanna?,þáttastjórnendur þrástagast á því að ekki MEGI spila jólalög fyrr en í fyrsta lagi eftir 1 des.
Hver bannar það,af hverju má ég ekki panta mér jólalag í þáttum sem bjóða upp á slíkt,þó á miðju sumri sé?Og af hverju fæ ég það ekki spilað?Af hveju eru þá sumar og vorlög ekki bönnuð eftir fyrsta vetrardag?Af hverju eru þá trúarlegir söngvar ekki bannaðir, nema á sunnudögum?
Svona mætti endalaust spyrja, ef á að fara að flokka tónlist eftri árstíðum og tilefnum,oft hefur RÚVINU tekist vel upp í þessum efnum en aldrei held ég, samt sem nú,,ég hef að vísu ekki neinar tölur um spilun jólalaga á RÚV,en í klukkutímum talið, það sem af er þessum mánuði eru þeir ekki margir,þeir eru mjög fáir,og miðað við aldur og fyrri störf eru líkur á að þau heyrist enn þá minna eftir daginn í dag.
Eru þessar "jólalagareglur" settar af stjórnendum hinna ýmissu þátta, eða er þetta ákvörðun dagsskrárstjóra,rekur hann þá sem spila mikið af jólalögum?
Það er tönglast á því að það verði að spila svona lög í hófi svo menn verði ekki leiðir á þeim,er meiri hætta á að verða leiður á þeim en síbyljunni sem dynur í eyrum manna allan ársins hring?
Ég opnaði fyrir "útvarp allra landsmanna" kl að ganga sex í morgun, kl 7 held ég að búið hafi verið að spila 3-4 jólalög,hitt var þessi sama graðhestamúsík sem spiluð er allan ársins hring.
Mér finnst tónlistarspilun rásar 2 einkennast að miklu leyti af því sem viðkomandi þáttastjórnendur hafa gaman af sjálfir,af hverju mátti Gestur Einar ekki halda áfram með þáttinn Grátt í vöngum,var það vegna óánægju hlustenda eða var það vegna þrýstings frá Graðhestamúsíkmönnunum,fengu þeir minni tíma fyrir vikið?
Þykist þetta unga fólk sem ræðst í þessar stöður, þess umkomið að hafa tónlistarsmekk fyrir hlustendur vegna þess að þeir viti ekki, á hvað þeir vilja hlustaÞa.
Það eru ekki allir landsmenn milli fermingar og þrítugs,smekkur manna fyrir tónlist breytist með aldrinum,og menn fara þá gjarnan að hlusta á öðruvísi músík,ætli að meirihluti þeirra sem hlusta á útvarp sé ekki komin yfir fertugt,og fyrir hverja er þá verið að spila rafmangsmúsík,og ýmislegt sem ég kann ekki að nefna,en finnst ekki minna mig neitt á tónlist,eins og þáttur sem ég heyrði ávæning af fyrir nokkrum kvöldum sem saman stóð af einhverjum rymjandi og stynjandi,sennilega mönnum,er þó ekki viss,og mismunandi barningi á trommur auk þess sem annað slagið rauk upp eitthvert geðveikslegt píp,þetta varði í klukkutíma eða meira,og þáttastórnandinn hélt vart vatni af hrifningu yfir þessari frábæru músík,mér fannst lítið til koma, þetta virkaði á mig eins og útvarpið væri bilað.
En ég vil fá að heyra jólalög í útvarpinu,minnsta kosti á jólunum og helst bara þegar mig langar til.
Þeim sem hafa nennt að lesa þetta óska ég árs og friðar.Kveðja Ari
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.12.2007 | 20:55
Snöggir piltar.
Þeir láta ekki að sér hæða sjúkraflutningsmenn á Akureyri,við útkall voru allir heima hjá sér, en samt liðu ekki nema 34 mínútur, þá voru þeir mættir á Húsavik að sækja sjúklingin.Ekki er ég viss um að allir geri sér grein fyrir því hvað þessir menn eru, ásamt lögreglu, slökkviliði fljótir að bregðast við,og virðist þá litlu skipta hvort þeir eru á vakt eða í fríi heima hjá sér.
Sama er að segja um áhugamannaliðin, og björgunarsveitirnar,þeir eru mættir á svipstundu þótt þeir séu við vinnu sína hingað og þangað.
![]() |
Erill í sjúkraflugi undanfarna daga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.12.2007 | 13:36
Afskaplega eru þetta viðkvæm farartæki.
![]() |
Lest í árekstri við villisvín |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.12.2007 | 13:30
Jólafríið hans dugir ekki til þess,hann hefur engar burði til að koma með
![]() |
Árni segist munu skila ítarlegum rökstuðningi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.12.2007 | 10:07
Það er engin óvissa! Það er örugg vissa fyrir því að ALLT hækkar um og
![]() |
Óvissa um framvindu verðlags á næsta ári |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)