Eigum við stjórnarskrárbundinn rétt til að bölva?

Kona, sem dregin var fyrir dóm í Pennsylvaníu fyrir að bölva stífluðu klósetti í sand og ösku, hefur verið sýknuð af ákæru fyrir ósæmilega hegðan. Dómarinn taldi að stjórnarskrá Bandaríkjanna tryggði konunni málfrelsi.
mbl.is Mátti bölva klósettinu sínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Venjuleg amerísk lygi !

 Reuter-fréttastofan hefur eftir talsmanni Hvíta hússins að Vífill hafi hringt í venjulegt símanúmer sem öllum er frjálst að nota

Dæmigert fyrir amerísk stjórnvöld þegar þau eru búin að skíta á sig,af hverju þetta fjaðrafok ef verið var að hringja í venjulegt opinbert númer?

Er það eitthvert sérstakt rannsóknarefni ef einhver hringir í skiftiborð hvíta hússins,af hverju var íslenska lögreglan komin í þetta mál,erum við orðin svo háð kananum að það sé sálfkrafa rannsóknarefni fyrir lögrelguna að kanna það sérstaklega ef einhver hér á landi hefur áhuga á að ræða við forseta bandaríska forsetan???

Er stjórnarfar í bandaríkjunum ekki að verða eins og það var verst í Sovétgúlaginu,eftir 11/9 fara þeir hamförum um víða veröld og sjá drauga í hverju horni?


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undarlegur Sparnaður!!

 Metafgangur og aðhald aldrei meira.

Í hverju liggur það aðhald? Fjársvelti heilbrigðisþjónustunnar,lokun deilda,löngum biðlistum og niðurskurði þjónustu.

Er þá til dæmis, ekki möguleiki á því að finna einhverja aura til að halda áfram að vera með lækni á neyðarbílnum,sem á að hætta við vegna sparnaðar?

Er þá ekki hægt að borga rafvirkjum LSH mannsæmandi laun,þarna er um mjög mikla sérhæfingu að ræða og þeim eru greidd lágmarkslaun?

Er þá ekki hægt að klára dæmið með öryrkja og aldraða?

Fjármálaráðherra  sagði þennan mikla afgang af fjárlögum 2008 og af fjáraukalögum 2007 vera til merkis um að aldrei hefði fyrr verið ákveðið að beita jafn miklu aðhaldi í ríkisfjármálunum og nú.

Hvað um erlendu skuldirnar? 

Af hverju aukast þær?

Heimilsreikningurinn minn lagast ekkert við það að leggja fyrir, og safna skuldum. Gilda aðrar reglur í ríkisfjármálum?


mbl.is Metafgangur og aðhald aldrei meira
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það hefur enginn,er þetta boðlegt svar?

Hefur fjármálaráðuneytið ekkert með laun að gera ,hvað koma peningar til greiðslu launa ríkisstarfsmanna ef ekki þaðan.?

Á þetta ráðuneyti ekki að sjá um fjármál ríkisins,á það ekki að vita í hvað peningarnir fara?

Er þetta nægjanlegt svar frá háttsettum embættismanni í fjármálaráðuneytinu,að þeir viti ekkert um þetta.

Baldur Guðlaugsson, ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, segir ráðuneytið ekki hafa neitt yfirlit yfir starfslokasamninga. „Við höfum ekki gert slíka samninga, erum ekki aðili að slíkum samningum sem aðrir kunna að hafa verið að gera og höfum því ekkert yfirlit yfir í hvaða mæli slíkir samningar kunna að hafa verið gerðir. Það hefur enginn.


mbl.is Ólöglegir starfslokasamningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú detta mér allar dauðar lýs úr höfði!

Er Kvíabryggja að verða eitthvert hressingarheimili fyrir harðsvíraða glæpamenn,hef altaf staðið í þeirri meiningu að Kvíabryggja væri fyrir spariglæpamennina sem eru of vandir að virðingu sinni til að sitja á Hrauninu innan um morðingja og nauðgara.

Þarf þá ekki að fara að byggja nýtt fangelsi fyrir "fínu" glæpoamennina?,varla sætta þeir sig við að fá svona vanmetakindur inn á gafl hjá sér.

Það væri fróðlegt að sjá rökstuðning fyrir svona ákvörðun


mbl.is Umbun frekar en refsing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband