17.8.2007 | 11:10
Útlit fyrir frekari lækkun á heimsmarkaðsverði á olíu
![]() |
Útlit fyrir frekari lækkun á heimsmarkaðsverði á olíu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.8.2007 | 10:48
Flottræfilsháttur
![]() |
Undirbúningur Kaupþingstónleika í fullum gangi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.8.2007 | 20:54
Sankti Sturla
Alveg hafa þeir farið á kostum í dag sálufélagarnir og flokksbræðurnir Sturla og Árni,Sturla í því að reyna að koma fólki til að trúa því að hann sem fyrrverandi samgöngumálaráðherra geti á engan hátt borið ábyrgð á Grímseyjarferjuklúðrinu,það sé vandamál núverandi samgöngumálaráðherra .Hvernig sem það má nú vera þar sem hann er ný tekin við embætti.Það er frekar ódýrt að skýla sér á bakvið það að ráðherra verði að treysta undirmönnum sínum og geti ekki fylgst með öllu sem er að gerast.
Svo kemur Dýralæknirinn og segir að engin skaði sé skeður það séu til nógir peningar,ef tiltekin upphæð nægi ekki í eitthvert verkefni megi taka það sem á vantar úr einhverju öðru verkefni.Hann hélt fram í fréttum í kvöld að það væri engin skaði skeður, og það fé sem búið væri að leggja í ferjuna væri innan ásættanlegra marka og allt benti til að þetta yrði ódýrari kostur en nýsmíði. Ekki veit ég hvar þeir félagar ala manninn dags daglega eða á hvað þeir hlusta,en þeir eru greinilega ekki að hlusta eftir því sem atkvæðunum þeirra finnst um framgang þeirra í þessu máli.En það er greinilegt á orðum Árna að hann stendur dyggilega við bakið á flokksbróðir sínum og reynir að berja í brestina fyrir hann.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.8.2007 | 10:45
Hvar býr Gunnar Birgisson ??
Þegar ég las neðanskráða klausu varð mér hugsað til þess hvort það gæti verið að Gunnar búi ekki í Kópavogi.Það eru búin að vera endalaus mótmæli og fundir samt er hann efins um að bæjarbúar séu á móti stækkununni.
Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri sagði að það kæmi sér á óvart hversu hávær gagnrýnin væri. Fyrirætlanirnar hefðu legið fyrir á aðalskipulagi og sú mynd sem samtökin drægju upp af áhrifum þeirra væri verulega ýkt. Sagðist hann fagna athugasemdum og gagnrýni sem fram kæmi um skipulagið, þær yrðu hins vegar að vera sanngjarnar og á rökum reistar. Fyrir liggur deiliskipulagstillaga um stækkun hafnarinnar og sagði Gunnar að farið yrði yfir athugasemdir íbúa vegna hennar. Ef í ljós kæmi að íbúar væru á móti stækkuninni þá yrði hún ekki framkvæmd
![]() |
Kópavogshöfn verður ekki stækkuð gegn vilja íbúanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.8.2007 | 21:35
Verklagsreglur brotnar/ Hvað á þá að gera???
Samgöngumálaráðuneytið sendi frá sér yfirlýsingu vegna greinargerðar Ríkisendurskoðunar sem inniheldur meðal annars neðanskráða klausu.
Tekið verður á því með viðeigandi hætti og í samræmi við góða stjórnsýslu."
Spurning hvernig er þessi viðeigandi háttur? og hvað er góð stjórnsýsla í þessum efnum?
Eini maðurinn sem rætt hefur verið við og talið sig og sína stofnun bera ábyrg er Jón Rögnvaldsson Vegamálastjóri,allir aðrir fara undan í flæmingi og telja þetta þurfi rannsóknar við sem er hverjum manni augljóst.En er ekki nokkurn vegin vissa fyrir því að þegar upp verður staðið þá verðum við að borga brúsan, en þeir sem stóðu fyrir klúðrinu halda sínum stöðum eins og ekkert hafi í skorist.
Það er spurning hvort Kári eigi ekki að fara að leita að Ábyrgðargeninu sem yrði þá kannski hægt að græða í stjórnmálamenn ef það finnst.?Það virðist vera sama hvern fjandann þessir karlar gera alltaf koma þeir gleiðbrosandi og glaðhlakkalegir fram fyrir alþjóð og telja að þetta hafi allt verið misskilningur.
![]() |
Verklagsreglur samgönguráðuneytisins brotnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)