Hvort er meira virði Nauthólsvík eða

 vatnverndarsvæði borgarinnar?

Samkvæmt frétt mbl. er verið að aka olíumenguðum jarðvegi úr Nauthólsvík upp í Hólmsheiði þar sem á að hreinsa hann,ætli að það sé útilokað að finna stað sem skapaði ekki eins mikla hættu á mengun grunnvatns og þarna.

Hverjir taka svona ákvarðanir?Ég spyr ekki hver beri ábyrgð því hún er ekki til hjá opinberum embættismönnum og póltíkusum.Er það virkilega svo hjá borginni að þeir sem sjá um þessa hreinsun hafi ekki hugmynd um vatnsbólin,og þeir sem hafa þau á sinni könnu viti ekkert hvað hinir eru að gera.Ekki heita þetta samræddar aðgerðir sem er nóg til af nú til dags,og því miður þar sem þeirra síst skildi


mbl.is Áhyggjur af vatnsbólunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slökkviliðið gæti

Við höfum rætt það hér innanhúss hvort þetta sé úrræðið sem við þurfum að beita," segir Jón Viðar.

Hef aldrei skilið þessa innlögn á ganga spítalanna,þeir eru fullir af fólki en sjúkrastofur á sama tíma tómar,hvað vinnst með þessu spyr sá sekki veit?Shocking


mbl.is Slökkviliðið gæti sektað Landspítala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fartölva, knúin handhlaðlinni rafhlöðu og með

þráðlaust netsamband, fyrir tæpar 15.000 krónur hlýtur samt að teljast kjarakaup.

Ég er ekkert endilega viss um að svo sé,eru ekki líkur á því að miðað við þann markhóp sem þetta átak beinist að að margir í þeim hópi nái ekki þessari upphæð á ári.

Ég viet að þetta er skítur á priki hjá okkur.


Er þetta eitt sýndarmennskuupphlaupið enn?????

Samkeppniseftirlitið gerir húsleit hjá Lyfjum og heilsu.

Til hvers?

Hvað hefur komið út úr  rannsóknum á þeim fyrirtækjum sem sætt hafa þessum aðgerðum?

Nákvæmlega ekki neitt,þetta er ekkert nema sýndarmennska sem sett er á svið þegar við látum loksins heyra í okkur,síðan eru málin þæfð þangað til mestu mótmælin eru þögnuð og svo dettur allt í sama farið aftur.

Kannski sagt í umvöndunartón,þið skulið eiga mig á fæti ef þið gerið þetta aftur .


 


mbl.is Samkeppniseftirlitið gerir húsleit hjá Lyfjum og heilsu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flýtur sofandi að feigðarósi.....

Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra segir það vera túlkunaratriði hvort kaup Goldman Sachs í GGE stangast á við lögin. Hann tilkynnti á þriðjudag að nefnd verði skipuð til að endurskoða þessi lög.

Er þetta ekki dæmigert fyrir íslenska stjórnsýslu,það eru sett lög og reglur um allan fjandann en þegar á reynir er þetta bara kák því það er aldrei farið alla leið og hnýtt fyrir endann,þar af leiðandi  endalaust hægt að fara í kringum þessa hrákasmíð þeirra.

Nú kemur í ljós að lögin um eignaraðild útlendinga að íslenskum orkufyrirtækjum eru meira en handónýt,en að sögn viðskiptaráðherra er það allt í lagi bæði er þetta svo lítið sem bandaríski bankinn er að kaupa og svo er nægur tími til að breyta lögunum.Hefði ekki verið viskulegra á sínum tíma þegar þessi lög voru sett að gera þau þannig úr garði að þau tækju af allan vafa um þessi mál.

Ja ég spyr nú bara.....


mbl.is Útlendingar geta eignast íslenska orku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband