Kemur engum á óvart.

 

Þar ræður skinhelgin ríkjum, og amerískur aulahúmor.


mbl.is Gamanþættir gagnrýndir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver borgar partýið á endanum ?

 Hvað segja talsmenn einkavinavæðingarinnar nú ? Ekki var það ríkið sem sem rak þessa stofnun í þrot.

Voru það ekki Jakkalakkarir sem þóttust vera að "bjarga" íslensku efnhagslífi ?

Hvert hefur sú björgun leitt ?. Annað en í ógöngur og öngþveiti.

Manni finnst helvíti hart að á sama tíma og bankarnir eru að mergsjúga okkur með okurvöxtum, allskonar seðilgjöldum og flr, skuli ríkið þurfa að hlaupa undir bagga með þeim. Og þar með auka skuldir okkar ennþá meira.

Eru líkur á því að þessar blóðsugur séu tilbúnar að hætta flottræfilshættinum og fara að haga sér eins og venjulegt fólk ? Held ég geti svarað því strax, líkurnar á því eru minni en engar.

Úr viðtali við Davíð.

Aðspurður um launakjör helstu stjórnenda bankanna, en eins og fram hefur komið  hefur verið lögð mikil áhersla á endurskoðun á ofurlaun helstu stjórnenda fjármálastofnana í Bandaríkjunum við gerð björgunarpakkans svonefnda, segir Davíð að Glitnir hafi tekið vel á því í tíð núverandi stjórnarformanns, Þorsteins Más Baldvinssonar.

Þessi klausa hér fyrir ofan segir okkur ekki neitt. Þótt Davíð segi, að Þorsteinn hafi tekið vel á þessum málum síðan hann tók við stjórnarformennsku. Segir það okkur nákvæmlega ekki neitt, um laun æðstu toppanna, enda vilja fríðindi þeirra oft gleymast þegar launamál þeirra eru rædd.

Það hlýtur að verða krafa okkar eftir að ríkið er búið að taka ábyrgð á óráðsíunni. Að laun þessara manna verði færð í þann farveg, að hægt sé að leiða líkur að því að þeir hafi unnið fyrir þeim.

Það er greinilegt af því sem fram hefur komið að þeir hafa ekki verið að vinna fyrir laununum sínum fram að þessu. Spurning hvort þeir geti unnið fyrir launum á almennum vinnumarkaði.


mbl.is Glitnir hefði farið í þrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lögreglustjórafélag Íslands ???

Hvað er það ?  það er ekki stéttarfélag ef svo væri ætti það að styðja sinn mann, er þetta svokallaða stéttarfélag ekki til heimils hjá Ólafi hlandspreng ?, stofnað fyrir nokkrum mánuðum. Trúlega til að undirlægjur dómsmálaráðherra getið borið saman bækur sínar og samræmt jákórinn.
mbl.is Styðja dómsmálaráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geir sagði ! Geir sagði ! Geir sagði ! Já hvað sagði hann?

Þessi frétt staglast á þessu Geir sagði. En hvað sagði hann;? nákvæmlega ekki neitt. Ég held að allir séu jafn nær sem lesa þessa frétt. Það er alltaf sama tuggan, ríkisstjórnin  með  allt undir kontrol og ástandið sé ekki eins slæmt og okkur finnst, og lagist meira og meira. Hvað er hann búinn að endurtaka oft þessa rullu síðastliðin misseri???
mbl.is Ekki rétt að tala um kreppu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjármálaráðherra vill koma á vistaböndum. Afturhvarf til fortíðar ?

Hrokafullur og laus við allt sem heitir að ræða málin,tekur fjármálaráðherra þann pól í hæðina að kæra ljósmæður, fyrir ólögmæt verkföll. En við skulum ekki gleyma því að hann hefur fyrirmyndina frá núverandi forsætisráðherra sem beitti sér fyrir því í fjármálaráðherratíð sinni, að láta breyta lögum þannig að ríkið ætti hægara með að kúga þá opinbera starfsmenn sem ekki sættu sig við að sitja og standa eins og fjármálaráðherra vildi. Ef það er meginstefna sjáfstæðismanna að semja ekki; bara kúga til hlýðni þá fer að verða erfitt fyrir ríkisstarfsmenn að ná fram leiðréttingum. Ég er ekki lögfróður og fæ þess vegna ekki séð hvernig þeir ætla að fara að. Eftir því sem ég kemst næst liggur ekki félagsleg ákvörðun að baki þessum uppsögnum.  Mér líst ekki á blikuna, ef t.d. ég og samstarfsmenn mínir ákvæðu að segja upp vegna þess að við værum óánægðir með kjör,að þá yrðum við kærðir fyrir samráð. Er ekki málfrelsi í landinu?? Guð hjálpi ríksstarfsmönnum þegar þriðji fjármálaráðherra sjáfstæðismanna tekur við.


mbl.is Gæti orðið erfitt fyrir ljósmæður að vinna málið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband