Þá geta útlendir fyrirtækja og bankaeigendur andað léttar..

Hlýtur að gleðja Dani

 Íslenska útrásin að stöðvast?

 


mbl.is Íslenska útrásin að stöðvast?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er olíuframleiðsla öðruvísi í Kína en öðrum löndum ?

Ef veðrið heldur áfram og fer yfir norðurhluta Kína þar sem hveiti og olíuframleiðsla landsins fer fram gæti það valdið miklum hörmungum og uppskerubresti...   Uppskerubrestur á olíu ?
mbl.is Kuldakast hefur slæm áhrif á ræktun í Kína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Betra seint en aldrei...Hálfkák samt...

 

 

 Hélt fyrst þegar ég sá fyrirsögnina að nú væri að renna upp betri og mannúðlegri tíð fyrir frumbyggjana. En þessi svokallaða afsökunarbeiðni er fyrst og fremst stíluð á einn tiltekin atburð á því ómannúðlega framferði gagnvart frumbyggjum, sem Ástralíustjórn hefur stundað frá upphafi.

Þeim hefur í gegnum tíðina tekist ótrúlega vel að forðast umtal alþjóðasamfélagsins um meðferðina á frumbyggjunum. Einn af mörgum svörtum blettum í þeirri sögu er meðferð þeirra á börnum frumbyggjana, á árunum 1915 - 1969, en þau voru tekin frá foreldrum sínum, til að kenna þeim siði hvíta mannsins,  sú aðlögunar stefna hefur ekki borið árangur nema síður sé,enda kannski ekkert skrítið. En þessi afsökunarbeiðni er ekki borin fram af neinni sektarkennd eða eftirsjá vegna þeirra hörmunga sem þetta fólk hefur mátt þola.  ...en hún felur ekki í sér nokkra sekt Ástrala nútímans...

 Frumbyggjar hafa krafist milljarða dala í bætur. Stjórnvöld hafa hins vegar þvertekið fyrir það en hafa þess í stað lofað aukinni menntun og heilsugæslu fyrir samfélög frumbyggja.

Ekkert minnst á að skila þeim landi sem þeir hafa verið hraktir af eða neitt sem bitastætt getur talist, menntun og heilsugæsla eru sjáfsögð mannréttindi,og þetta loforð um aukna þjónustu í þessum málaflokki sýnir sennilega í hnotskurn hvernig stjórnin hefur staðið að málum frumbyggja fram að þessu.


mbl.is Ástralskir frumbyggjar beðnir afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar er nú þessi "Persónuvernd" ? Er þetta ekki eitthvað sem hú nætti að taka

föstum  tökum áður en í óefni er komið, fram að þessu hefur hún eingöngu verið að vasast í einhverjum tittlingaskít sem engu máli hefur skipt . þarna fær hún mál sem gæti sannað tilverurétt hennar

Ég er ekkert mjög undrandi á þessum tíðindum, þetta er bara ein birtigarmyndin í viðbót á þessu makalausa einkavæðingar kjaftæði. Sú þjónusta sem það opinbera innti af hendi,var ekki alltaf til að hrópa húrra fyrir,en hún var til stórrar fyrirmyndar miðað við það sem nú er eftir að hún var einkavædd. Og þessi hugmynd að fela einkafyrirtæjum heilsufars skráningar getur aldrei gengið upp, og ástæðan er sú að fyrirtæki hér á landi eru stofnuð með það fyrir augum að skila helst  hámarks gróða áður en þau byrja starfsemi,og síðan er unnið eftir þeirri reglu að tilgangurinn helgi meðalið, og allt sé leyfilegt ef það skilar hagnaði.

Af mörgum heimskulegum hugdettum til sparnaðar er þessi hugmynd um að einkavæða skráningu heilsufarsupplýsinga sú heimskulegasta  sem sett hefur verið fram,það kann að vera að það lagi eitthvað pappíra viðkomandi heilsugæslustofnunar, en á móti kemur að það verður dýrara fyrir kúnnan,og hann getur síður treyst því að þær upplýsingar sem til eru um hann lendi ekki í röngum höndum. Miðlægur gagnagrunnur í eigu einkafyrirtækis getur aldrei talist trúverðugur,og þaðan af síður öruggur.

Það er  allt til sölu í einkageiranum fyrir rétt verð.


mbl.is Aðför að persónuvernd ríkisstarfsmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hún er búin að vera lengi að grafa þetta upp !!!

 

Sagði Ásta að Margrét Sverrisdóttir hefði vitað af þessum samtölum en þetta var um viku áður en alvarlegar viðræður um myndun nýs meirihluta hófust milli Ólafs og Sjálfstæðisflokksins.

 

 Ekki finnst mér þessi fullyrðing jarðfræðingsins sennileg, enda hefði átt að vera hægt að búa til eitthvað trúverðugra á heilli viku. Eða því beið hún svona lengi með þennan "stóra sannleik" ?

 

 


mbl.is Ólafur sagði F-lista frá samtölum við sjálfstæðismenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband