Afskaplega eru þetta viðkvæm farartæki.

Þeir ættu að fá framleiðanda pallbílsins sem ók á hreindýrin á Kárahnúkaveginum til að hanna þessa vagna.Það yrði meiriháttar slys ef svona lest keyrði á 13 Geitur að ég tali nú ekki um villisvín
mbl.is Lest í árekstri við villisvín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólafríið hans dugir ekki til þess,hann hefur engar burði til að koma með

trúverðugan röksturning,því hann er ekki til.
mbl.is Árni segist munu skila ítarlegum rökstuðningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er engin óvissa! Það er örugg vissa fyrir því að ALLT hækkar um og

upp úr áramótum, Mjólkursamsalan er búin að tilkynna hækkanir,Pósturinn ætlar að hækka póstburðargjöld um áramót,þetta er bara byrjunin eins og alltaf þegar kjarasamningar fara í hönd,þá keppast framleiðendur,innflytjendur,seljendur þjónustu  og aðrir, við að hækka vörur sínar og þjónustu,þannig að ávinningur þeirra verst settu stendur í stað ef þeir eru heppnir,en rýrnar þó oftar en hitt.
mbl.is Óvissa um framvindu verðlags á næsta ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um hvað er þessi frétt? Hvaða rugludallur skrifar svona?

Þetta er átta ára gamalt mál eftir fréttinni að dæma,ef konan varð fyrir skoti 1999,,en Clinton hjónin flytja ekki í nágrenni við meintan morðingja  fyrr en 2001,ég kem ekki auga á samhengið,,hvernig hefði þetta átt að geta haft einhver áhrif á öryggi þeirra hjóna,þar sem þau voru ekki flutt á svæðið?

Nágranni Bill og Hillary Clinton verið ákærður fyrir að skjóta konu sína til bana. Maðurinn var handtekinn á heimili sínu, sem skammt frá heimili Clintonhjónanna í Chappaqua í New York ríki.


mbl.is Nágranni Clintonhjónanna ákærður fyrir morð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimska eða hroki----nema hvoru tveggja sé!!!!!!!!!!!

Til hvers að skipa matsnefnd í svona málum,þegar við höfum á að skipa manni sem veit og kann mikið meira en venjulegir dauðlegir menn,hvað eru einhverjir fúskarar að semja umsagnir um menn og málefni sem þeir hafa ekkert vit á, þegar svona séní er annars vegar ?

Dýralæknirinn hefur talað,og lýst áliti sínu á þessari matsnefnd,sem hann gefur skít í,því RÁÐHERRANUM ER ÆTLAÐ AÐ SKIPA,en dómnefndinni að gefa umsögn,og ekki nein ástæða til að taka mark á henni,en rökstuðningur hans er veikur finnst mér,hann telur Þorsteini fyrst og fremst til tekna að hafa unnið sem aðstoðarmaður Björns Bjarnasonar,spurning hvað það vegur þungt þegar málið er skoðað faglega.

Hann lítur alveg franhjá þeirri flokkun sem matsnefndin styðst við,og er í fjórum liðum,Mjög vel hæfur,Vel hæfur,Hæfur og Óhæfur,þrír umsækjendur fá einkunina Mjög vel hæfir,og tveir fá Hæfirog er þorsteinn annar þeirra og er ráðherran mjög ósammála þeirri skilgreiningu án þess að rökstyðja það með haldbærum rökum.

Ég þekki störf Þorsteins ekki neitt,og hef þar af leiðandi ekki myndað mér neina skoðun um hann,hann er sjálfsagt vænsti piltur,en miðað við álit sumra sem um þetta hafa tjáð sig og finna honum helst til foráttu að vera sonur Davíðs Oddsonar stendur hann kannski ekki vel að vígi,ég legg engan dóm á hann þess vegna,hann verður að fá að sanna sig strákurinn.

En þrátt fyrir það verður ekki komist hjá því að finna einhverja fjandans lykt sem sem stundum gýs upp þar sem Sjáfstæðismenn véla um mannaráðningar.


mbl.is Gagnrýna skipun í dómaraembætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband