22.9.2007 | 08:38
Hver fjármagnar "gottið"??
Mikið er skrafað og skeggrætt um" Fáskrúðsfjarðarmálið" svokallaða og ætla ég ekki að efast um eða draga úr því að þetta sé góður árangur hjá löggæslunni.
EN var hún ekki einmitt bara að gera það sem hún er ráðin til?
Er þetta kannski vegna þess að fólki finnst að hún sé knnski ekki altaf að ná svo góðum árangri?
Ég er viss um að margar aðrar starfsstéttir eru að ná prýðilegum árangri í sínum störfum án þess að hlaupið sé upp til handa og fóta til að mæra það.
Ég t.d. sá ekki tilganganginn með fyrsta blamannafundinum sem haldinn var um þetta mál væri annar en sá að sýna toppana í sparifötunum,til hvers að boða blaðamannafund og verjast allra frétta?
Annars finnst mér stærsta málið óleyst hverjir leggja til fjármagnið sem þarf til þessara kaupa,ég er ekki tilbúinn að gleypa það hrátt að þessir smákrimmar sem gómaðir voru séu svo fjáðir að þeir geti staðið í þessum stórinnkaupum,það hljóta að vera mjög fjársterkir aðilar sem standa þarna á bakvið.
Svona kaup fara ekki fram öðruvísi en við staðgreiðslu,og HVER BORGAR?
![]() |
E-töfluduftið dugar í 140 þúsund töflur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.9.2007 | 17:30
Var búist við öðru???
Ríkið sýknað af ....Kannast ekki einhver vð þessa fyrirsögn þegar ríkinu hefur verið stefnt,er það eitthvert lögmál að ríkið skuli yfirleitt vinna öll sín mál?
Er að svona vammlaust og réttlátt að það hafi alltaf rétt fyrir sér?
Er það kannski vegna þess að dómarar eru pólitískt skipaðir?
Er ekki hægt að efast um sjálfstæði ríkisrekinna dómstóla?
Er hægt að gera þá einhvern veginn óháða ríkisvaldinu?
Þessar og mikið fleiri spurningar vakna þega maður les svona fréttir,ég geri mér grein fyrir að við þessum spurningum eru sjáfsagt snúin svör og reikna auk þess ekki með að fá nein,þessu er bara velt upp í tilefni enn einnar sýknunar ríksins.
![]() |
Ríkið sýknað af bótakröfu vegna fasteignakaupa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.9.2007 | 16:53
Hvernig er fljótlegast að eyðileggja græn svæði????
Hefur það alveg farið fram hjá þeim sem eru að agnúast út í hugsnlegt sambýli í Laugardalnum, fyrir geðfatlaða að það er sko miklu stærri áform um byggingar þar,þetta yrði eins og hver annar vinnuskúr hjá þeim ósköpum.
Ég sá í mogganum fyrir stuttu mynd af hugsanlegum framkvæmdum og ef þær ná fram að ganga verður varla hægt að tala mikið um grænt svæði á þeim stað,því miður man ég ekki í hvaða tölublaði þetta var,en sama samt það var greinilega ekkert sem benti til þess að það ætti að hlífa þeim gróðri sem þarna er.
Af hverju geta þessir góðapungar sem virðast vera með skipulagsyfirvöld í vasanum hvar sem þeim dettur í hug að drita niður steinsteypukössum sínum ekki séð græn svæði og gömul hús í friði?Ætli að við Íslendingar séum ekki ein fárra þjóða sem reynir markvisst að breiða yfir fortíðina með því að rífa og brjóta niður allt sem minnir á gengnar kynslóðir?
Síðan eru þetta yfirleitt hrollvekjandi ljótar byggingar sem rísa inn á milli þeirra húsa sem fyrir eru og ekki í neinu samræmi við þau,þrátt fyrir hástemdar yfirlýsingar arkitekta um að taka mið af því sem fyrir er til að halda heidarsvipnum.
Ég lítið séð af svoleiðis framkvæmdum,miklu meira af hinu þar sem viðbótin verður eins og hvert annað nátttröll og óskapnaður í umhverfinu.Ég hef t.d. aldrei getað séð þessa velheppnuðu viðbót við Landsbankann svo dæmi sé tekið, með góðum vilja er ekki einu sinni hægt að segja að þetta sé líkt.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.9.2007 | 07:54
Er þetta hagræðing???
Nú stenfnir alt í það að Mjólkureinokunarfyrirtækið MS leggi alla starfsemi af á Egilsstöðum og flytji hana suður,það er að verða svipuð slóð eftir MS um landið eins og kvótabraskarana,SVIÐIN JÖRÐ.
Allt er þetta gert með hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi,kjaftæði,það eru bara hagsmunnir MS sem hanga á þessari spýtu.Þeir eru búnir að leggja niður hvert mjólkurbúið á fætur öðru og meðal annars eitt nýtískulegsta mjólkurbú landsins sem var í Borgarnesi,stórt bú á Hornafirði lagt niður nú eru Egilstaðir næstir og þá er ekkert mjólkurbú frá Akureyri suður til Selfoss.Eitt ruglið sem borið er á borð er að það væri svo dýrt að koma vörum frá þessum búum á markað,er dýrara að flytja fullunna vöru á markað sem búin er að skila atvinnu á viðkomandi stöðum heldur en rúnta með hana óunna til Selfoss eða Reykjavíkur?
Kúabændur á Austurlandi munu leita annarra leiða til að vinna mjólk á Austurlandi, ef samþykktar verða tillögur stjórnenda Mjólkursamsölunnar um að leggja niður mjólkurvinnslu á Egilsstöðum.
Það er það eina rétta í stöðunni
![]() |
Íhuga að leita til Mjólku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.9.2007 | 12:59
Ekki mjög traustvekjandi!
Lenti næstum því á Akureyri í stað Ísafjarðar
Ég hélt nú þegar ég sá þessa fyrirsögn að um grín væri að ræða en svo virðist ekki vera,fréttin að vísu eins og við er að búast ekkert nema fyrirsögn,það er eins og blaðamanni finnist ekkert undarlegt við það að flugvél villist á milli landshluta allavega virðist hann ekki hafa haft fyrir því að afla nánari upplýsinga um þessa "villimennsku".En þetta er ekkert einsdæmi í fréttaflutningi það er sjaldan sem nokkru máli er fylgt eftir þannig að lesendur viti hvar þeir standa og verða þessvegna oftar en ekki að geta í eyðurnar.Aftur á móti er ég ekki viss um að ég hafi áhuga að fljúga með svona áhöfn nema því aðeins að ég hafi nægan tíma..
![]() |
Lenti næstum því á Akureyri í stað Ísafjarðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)