Hvaða frjálsræði??

Vill auka frjálsræði í landbúnaði Errm

Fyrirtæki í mjólkuriðnaði hafa verið undanþegin samkeppnislögum samkvæmt ákvæði í búvörulögum sem samþykkt var árið 2004.

Samkeppniseftirlitið óskaði eftir því að þessu ákvæði yrði kippt út þar sem þessi óskilyrta undanþága væri í alla staði óeðlileg og hefði verulegar samkeppnishömlur í för með sér.

Einar segist  ekki hafa nein sérstök áform um að fella ákvæðið úr gildi.

Er það ekki dálítill tvískinnungur að vilja auka frjálsræðið annarsvegar en hafa ekki áhuga á að afnema þetta ákvæði,sé ekki hvernig þetta kemur heim og saman við það aukna frelsi sem landbúnaðarráðherra er að boða.


mbl.is Vill auka frjálsræði í landbúnaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er Sjóvár,og hvenær er "maður" stýra eða stjóri

Sá í Fréttablaðinu í gær viðtal við forstjóra Sjóvá,að vísu skrifað þar sjóvár,ef ég man rétt hét eða heitir þetta félag Sjóvátryggingafélag Íslands,nafnið þótti frekar óþjált í munni og var stytt í Sjóvá þannig hefur það verið óáreitt í langan tíma þar til nú fyrir ekki alllöngu að einhver snillingur bætti erri aftan við og talar nú við forstjóra Sjóvár en ekki Sjává.

Eins finnst mér afskaplega hvimleitt ef kvenmaður fer í stjórnunarstöðu sem karlmaður hefur áður gengt og verið titlaður stjóri,þá skuli hún aftur á móti vera kölluð stýra hvað breytist í stöðunni?Nýlegt dæmi með Guðfríði Lilju............


Nýútskrifaður "Óbyggðaökumaður"

Líst ekki sérstaklega vel á þessa hugmynd,hef sjálfur nokkra reynslu af hálendisferðum og átt jeppa um nokkura áratuga skeið og veit af eigin reynslu að það þarf meira en breyttan jeppa til að fara á fjöll,hvernig eiga  menn sem aldrei hafa ekið jeppa nema kannski á malbiki og aldrei yfir vatnsfall nema á brú að meta aðstæður rétt? Margir þaulvanir óbyggðaökumenn hafa komist í" hann krappann" í akstri á jöklum og yfir vatnsföll.Tíu mínútna fyrirlestur getur aldrei komið að neinum hagnýtum notum fyrir óvanan ökumann.Verður þetta ekki bara til að auka Björgunarsveitum erfiði umfram það sem nú er, að ekki sé minnst á slyshættuna.?
mbl.is Brátt hægt að fá leigða breytta jeppa í fjallaferðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það ættu allir að geta forðað sér.......

Fellibylurinn Felix genginn á land í Níkaragva .


Það getur varla stafað mikil hætta af gangandi Fellibyl??????????????


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gissur frestar.....

Hver fjandinn er að þessum forstjóra Vinnumálastofnunar hann er með allt niður um sig með að fylgja eftir þeim lögum og reglum sem stofnunin á að sinna,loksins þegar hann tekur á sig rögg og þykist ætla að fara að vinna vinnuna sína,heykist hann á síðasta augnabliki og gefur fyrirtækinu frest,ég get engan vegin séð að þessir menn eigi neinar málsbætur,þeir hljóta sem atvinnurekendur að fylgjast með því sem er að gerast í þjóðfélaginu,ég hugsa að flestir Íslendingar sem komnir eru til vits og ára viti að það þarf tilskilin leyfi til að ráða útlendinga til starfa,enga fresti á þessa þrælasala láta þá standa fyrir máli sínu strax.
mbl.is Hætt við að biðja um stöðvun fyrirtækis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband