15.8.2007 | 21:35
Verklagsreglur brotnar/ Hvað á þá að gera???
Samgöngumálaráðuneytið sendi frá sér yfirlýsingu vegna greinargerðar Ríkisendurskoðunar sem inniheldur meðal annars neðanskráða klausu.
Tekið verður á því með viðeigandi hætti og í samræmi við góða stjórnsýslu."
Spurning hvernig er þessi viðeigandi háttur? og hvað er góð stjórnsýsla í þessum efnum?
Eini maðurinn sem rætt hefur verið við og talið sig og sína stofnun bera ábyrg er Jón Rögnvaldsson Vegamálastjóri,allir aðrir fara undan í flæmingi og telja þetta þurfi rannsóknar við sem er hverjum manni augljóst.En er ekki nokkurn vegin vissa fyrir því að þegar upp verður staðið þá verðum við að borga brúsan, en þeir sem stóðu fyrir klúðrinu halda sínum stöðum eins og ekkert hafi í skorist.
Það er spurning hvort Kári eigi ekki að fara að leita að Ábyrgðargeninu sem yrði þá kannski hægt að græða í stjórnmálamenn ef það finnst.?Það virðist vera sama hvern fjandann þessir karlar gera alltaf koma þeir gleiðbrosandi og glaðhlakkalegir fram fyrir alþjóð og telja að þetta hafi allt verið misskilningur.
![]() |
Verklagsreglur samgönguráðuneytisins brotnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.8.2007 | 08:17
Hvernig mannar maður áhafnir??????
![]() |
Lystisnekkjur nýr valkostur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.8.2007 | 13:33
Hvenær er maður laus undan ábyrgð????
![]() |
Segir samgönguráðherra gera sig að blóraböggli í málinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.8.2007 | 11:29
Ferjuslys??????????
Grímseyjarferja Vandamálin má rekja til ófullnægjandi undirbúnings.
Það hefur verið athyglisvert að fylgjast með fréttum af svokallaðri Grímseyjarferju og hvernig að þeim málum hefur verið staðið.Eins og venjulega þegar ríkið á í hlut er farið að leita að einhverjum sem kenna má um þessa handvömm.Ég fann strax sökudólgana og þá sem bera ábyrgð á þessu,það eru Ríkisendurskoðun og Vegagerðin,þessar stofnanir hunsuðu álit starfsmanns Siglingamálastofnunar sem kom því til skila á tiltölulega vel skiljanlegu mannamáli að þetta skip væri sem næst því að vera ÓNÝTT. Samt reyna þessar stofnanir að klóra yfir skítinn að vanda með því að kenna öðrum um.Meðal annars er tönnlast á því að kröfur Grímseyinga og áhafnar Sæfara hafi gert sitt til að hleypa kostnaði úr böndunum,gaman væri að fá að vita hvaða kröfur það eru,en það kemur ekki fram í varnarskjali þessara ríkisstofnana.
![]() |
Vandamálin má rekja til ófullnægjandi undirbúnings |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.6.2007 | 12:48
Þjóðkirkja
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)