Færsluflokkur: Dægurmál

Vilji er alt sem þarf !!!

Gylfi segir stjórn ASÍ mjög ósátta við aðgerðaleysi stjórnvalda, og þurfi án tafar að gera viðbragðsáætlun þar sem aðilar vinna saman að því að greina vandann og finna sameiginlega lausn.

Ráð og viljaleysi ríksstjórnarinnar er aumkunarvert,og þetta kjaftæði um að greina vandann er hlægilegt hann er greinilegur.


mbl.is „Þurfum að finna sameiginlega lausn"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefði ekki mátt hafa þau með í fréttinni ???

...Einnig geta ákvæði í lögum leyft viðskiptavini að rifta kaupum verði verulegar verðbreytingar...

Hvaða ákvæði eru það ???


mbl.is Eldsneytisgjald bætist við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er ekki öll vitleysan eins.

Ætli að það væri ekki vænlegra til árangurs,að hafa reglurnar stuttar,skýrar og auðskiljanlegar, og ef ekki er farið eftir þeim, að hafa viðurlög það há að bílstjórar hugsi sig um tvisvar þegar þeir ganga frá farmi á bílum sínum. þótt atvinnurekandinn borgi sektina er það ökumaður bílsins sem ber ábyrg á því að farmurinn sé trygglega frágenginn.

Svona kjaftæði eins og kemur frá samgönguráðuneytinu leysir engan vanda,bílstjórar setjast ekkert niður með bók í hönd til að lesa sér til um hvernig ganga á frá farmi ef þeir sjá það ekki sjálfir eru þeir ekki hæfir til starfans.

Enda hef ég ekki trú á að handbók um þetta samin í kerfinu,yrði nothæf vegna orðskrúðs og málalenginga sem einkenna flest sem kemur úr þeim ranni. 

   Kristján sagði samgönguráðuneytið vera að fara yfir athugasemdir sem borist hefðu frá hagsmunaaðilum vegna draga að nýrri reglugerð ráðuneytisins um þessi mál. Þau sjónarmið hefðu borist að leiðbeiningar nýju reglugerðarinnar væru of flóknar og að til greina kæmi að semja sérstaka handbók um fráganginn fyrir bifreiðastjóra til að fara eftir og þá sem málið varðar


mbl.is Samgönguráðherra segir frágang oft „hroðalegan“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað finnst stuttbuxnadeildinni um þetta ???

Þetta ætti að vera skyld á Íslandi...
mbl.is Obama setur skattskýrslu sína á netið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dagskipun frá Putin.

Þá er nýskipaður forseti Rússland að byrja að vinna eftir eftir forskrift Putins

 ... Medvedev segir að ekkert land geti verið ánægt með að hafa hernaðarsamtök, sem það tilheyri ekki sjálft, við landamæri sín...

Eru ekki mörg lönd þannig sett ???  Spyr sá sem ekki veit. 


mbl.is Medvedev varar við stækkun NATO
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er afskaplega efins. Svona " fótaskortur " á tungunni er mjög sjaldgæfur

 Mér sýnist á neðanskráðu að konan sé að ljúga. Hefur bara ætlað gera sinn hlut meiri

 

...hún sagði á kosningafundi frá því er hún og dóttir hennar hlupu undan kúlnahríð í Bosníu í mars árið 1996...

... ævisögu sinni „Living History" segir hún hins vegar að þar sem leyniskyttur hafi verið í nágrenni flugvallarins hafi móttökuathöfnin verið styttri en upphaflega stóð til og að mæðgurnar hafi því ekki getað varið þeim tíma með innfæddum börnum sem til hafi staðið. Þær hafi þó náð að hitta börnin og kennara þeirra og fræðast um það hversu hart þau hafi lagt að sér við að sinna náminu þrátt  fyrir stríðsátökin í landinu...

„Þetta er það sem fram kemur í bók hennar og þetta er það sem hún hefur ítrekað sagt,” segir talsmaður hennar. „Í eitt skipti mismælti hún sig.”  Nei erþað ???


mbl.is Clinton sökuð um ýkjur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alltaf að skjóta fyrst,það má kynna sér málið á eftir.

Dæmigert fyrir Kanan, hvaða hætta ætli hafi verið fyrir nokkur þúsund tonna skip, þótt farandsalar nálguðust það á flekum. Það hefði nú vara leynt sér ef þeir hefðu verið með einhver vopn sem hefðu getað grandað skipinu. Er ekki eitthvað sem heitir að skjóta aðvörunarskotum ? Þeir virðast ekki hafa gert það
mbl.is Skutu á farandsala í Súesskurðinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru jarðgöng í gegnum þorbjörn í uppsiglingu ???

Verktakar byrjaðir að safna til famkvæmdanna!!!
mbl.is 20 kíló af dínamíti fundust í Grindavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Voru þeir farnir að sýna of góðan árangur ???

 Það er ekki gott ef menn þurfa að vera á verði fyrir " vinum " sínum ekki síður en óvinum.

 

Óstaðfestar fréttir herma að sex liðsmenn súnníta-samtaka Vakningarráðsins sem berjast gegn áhrifum Al Qaeda samtakanna í Írak...

...er samstarf þeirra og Bandaríkjahers talin ein ástæða þess að mjög hefur dregið úr ofbeldisverkum í Írak á undanförnum mánuðum... 


mbl.is Mannfall í aðgerðum Bandaríkjahers í Írak
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Biluðu hermennirnir, eða er það bilun að þeir skyldu lenda hér ?

En burtséð frá því, skiftir það einhjverju máli þegar flugvélar millilenda vegna bilunar, hver farmurinn er, ætti fréttin ekki að snúast  um bilunina og hugsanlegar orsakir og afleiðingar hennar???

Mér finnst það...


mbl.is Hermenn á heimleið millilentu á Íslandi vegna bilunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband