Færsluflokkur: Dægurmál

Það svíkur ekki umburðarlyndið og mannkærleikurinn hjá kirkjunnar mönnum

á sama tíma og þeir básúna um frið og kærleika vaða þeir uppi með ófrið og erjur bæði við lærða sem leika. Endalaust þras og innbyrðisdeilur, ásamt með yfirgangi og frekju,eru þeirra .ær og kýr.

Og þarf engar kirkjujarðir til að búa með slíkt.

Það átti að vera búið að ganga frá þessum jarðamálum kirkjunar fyrir lifnadi löngu,og ætti ekki að vera flókið mál, svo til allar, ef ekki allar kirkjujarðir hafa komist í eigu kirkjunar á einn eða annann hátt með svikum og prettum, það vita allir sem vilja vita, að einar almestu blóðsugur á álþýðu manna hér áður fyrr voru prestarnir.

Og enn eru þeir við sama heygarðhornið ,að fá allt fyrir ekkert, að vísu eru menn innan prestastérttarinnar sem vilja virkilega láta gott af sér leiða, en hófsemin á löngum erfitt uppdráttar, gegn frekjunni.

Hvað ætlar kirkjan að gera við Laufás þetta var í niðurníðslu þegar séra Pétur kom þangað, nú er búið að byggja þarna upp blómlegan búskap sem kirkjunnar menn ætla að leggja af, það ber ekki mikið á þekkingu hjá þessum herrum á búskap,þeir bjóða jú syni séra Péturs leigusamning í fjögur ár ella fara með allt sitt hafurtask.

Ætli þeir yrðu mjög sáttir við það að vera ráðnir í fjögurr ár í senn,með enga tryggingu um áframhaldandi starf ?


mbl.is Sala Laufáss ekki útilokuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Borgin búin að leysa vandann eða hvað ???

...Þetta er í annað sinn sem þetta gerist, en fyrra skiptið var um áramótin, þótt það hafi ekki verið eins rosalegt og nú. Reykjavíkurborg hefur ekki fundið lausn á þessum vanda,“ segir hún, en borgin leigir SÍM aðstöðuna...

Tók ég ekki rétt eftir, að í einhverjum fréttatíma í gær hafi komið fram ,að borgin væri búin að segja upp leigusamningi sínum við SÍM  ???


mbl.is Tugir listaverka skemmdust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Getur eigandi Unuhúss sett skipulagsyfirvöldum úrslitakosti ???

...sem fer fram á að húsið verði friðað þannig að fasteignagjöld verði felld niður...

... Að öðrum kosti fer hann fram á að tillaga að friðun á deiliskipulagi verði felld niður...   ???


mbl.is Vilja friða Unuhús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grímseyingar seinþreyttir til vandræða...

Hafa loksins ákveðið að kæra Brynjólf Árnason,  sem var vikið úr starfi í lok nóvember vegna gruns um auðgunarbrot, en áður var búið að kæra hann fyrir olíuþjófnað...
mbl.is Ákveðið að kæra fyrrum sveitarstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórmerkilegt!!! Gagnlegur fundur???

Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, segir fund fulltrúa læknaritara með forstöðumönnum Landspítalans um fyrirhugaða „útvistun" á störfum læknaritara á sjúkrahúsinu, og málefni sem því tengjast, hafa verið gagnlegan...

 þetta þykja mér tíðindi ef hægt er að halda gagnlegan fund með svona apaköttum og einkavæðingarvitleysingum sem þessir forstöðumenn virðast vera

Það væri gaman að sjá rökstudda útreikninga frá þeim um að ódýrara sé að kaupa svona þjónustu úti í bæ.Ég get ekki ímyndað mér að læknaritara séu á svo háum launum að það sé grundvöllur fyrir útboði á þessum störfum.


mbl.is Gagnlegur fundur um málefni læknaritara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það hefði ekki skaðað ef hún hefði verið slyng förðunardama líka.

Hefði þá kannski náð afturgöngusvipnum af borgarstjóranum...
mbl.is Ráðin aðstoðarmaður borgarstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svon rangfærslur þarf að leiðrétta.

Ætla ekki að tjá mig um þessa frétt fyrr en ég veit það sanna í málinu. Bíð þessvegna spenntur eftir leiðréttingu og skýringum SVÞ...

Þeir verða ekki í vandræðum með það, ef ég þekki mína menn rétt.


mbl.is Matur og drykkur 64% dýrari en í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefði kannski trúað þessu ef einhverjir aðrir en bandaríkjamenn hefðu

skýrt frá þessu. þeir svífast einskis við að réttlæta glæpastarfsemi sína, bæði heima og heiman...
mbl.is Myndbönd sýna börn bera vopn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ævintýramennska ?

Eru lífeyrissjóðir svo sjálfstæðar stofnair að þeir þurfi ekki að gera neinum grein fyrir því hvernig þeir starfa? .Á það ekki að vera stefna þeirra að ávaxta sjóðina á sem öruggastan og hagkvæmastan hátt? Er það ásættanlegt fyrir þá sem eiga að njóta góðs af þessum sjóðum í fyllingu tímans, að forráðamenn þeirra séu að nota fé sjóðanna í ævintýramennsku. Ég er ekki slyngur fjármálamaður enda ekki efnast stórlega um ævina,en ég skulda heldur engum neitt, og myndi aldrei láta mér til hugar koma að leggja fé mitt í þessi "útrásarfyrirtæki" hverju nafni sem nefnast. Ég er ekki áhættufjárfestir og mér finnst að lífeyrissjóðirnir eigi ekki að vera það heldur...


mbl.is Með um 3% hlut í FL Group
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geta lyfsalar ekki tekið þetta að sér sem aukavinnu.?

Miðað við fréttir undanfarið um lægri álagnigu þeirra en Danskra,er ég handviss um að þeir gætu bjargað bændum,og náð betri samningum en Norðmenn...
mbl.is 33% hækkun í Noregi en 70% hækkun á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband