Færsluflokkur: Dægurmál
10.11.2008 | 18:00
Andskotans þvættingur sí og æ.
Hvað eigum við að sitja lengi undir þessum helvítis lygaþvættingi ráðamanna, það er logið hægri vinstri, étið oní sig jórtrað og byrjaður annar umgangur. Það eru altaf sömu svörin.
Ef eitthvað óheiðarlegt hefur verið aðhafst ?...
Ef tilefni er til ákæru verður það skoðað...
Dómsmálaráðherra ætlar bráðum að leggja fram frumvarp um sérstakan saksónara...
Svona eru svörin sem ráðherrar og talsmenn stjórnarinnar gefa ef þeir svara yfirleitt, er hægt að undarst það þótt venjulegu fólki sé farið að blöskra og það mikið. Á meðan EF og BRÁÐUM veltist í kerfinu, er markvisst stungið undan gögnum. Þannig að þegar EF og BRÁÐUM tekur til starfa verða þessi fyrirtæki með svo engil hreina pappíra, að í þá verður ekki litið nema með verulega góðum snjóbirtugleraugum
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.11.2008 | 13:36
Verðum við þá að hætta, að vera góð.?
Styðja illa Íslendinga hjá IMF,
![]() |
Styðja illa Íslendinga hjá IMF |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.11.2008 | 12:53
Hver skeit þá á sig?
Eru engin takmörk fyrir því sem þessum bankaræningjum dettur í hug að bera á borð fyrir okkur. ég er að vísu ekki " hagfræðingur " ( guði sé lof og dýrð). En hvað skeði ef nægar eignir voru til fyrir innstæðum? Væri ekki ráð fyrir þessa stjóra að halda kjafti er ekki nóg að gert samt ? Það er ekki nóg með að þeir reyni á allan háttað fyrra sig ábyrgð, sem þeir hafa aldrei borið á neinu sem þeir hafa gert, þeir kunna heldur ekki að skammast sín. Ábyrgð og Skömm eru orð sem þeir hafa séð á prenti, og heyrt aðra tala um, en aldrei skilið merkingu þeirra.
![]() |
Icesave upphæðir jukust ekki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.11.2008 | 09:01
Hvern andskotan er viðskiftaráðherra að gera ???
Hvað er FME að gera ???. Hvað er ríkisstjórnin að gera???.Ég segi nú bara eins og barnið. Hvar eru allir???. Það rignir yfir mann fréttum af hverskonar spillingu í bankakerfinu,embættismannakerfinu flokkakerfinu, og-og-og !
Hópur lykilstjórnenda hjá Kaupþingi, með aflátsbréf frá sjáfum sér sem hvítþvo þá af öllum fyrri syndum,svo þeir geti haldið áfram fyrri iðju í bankanum og nú í algjöru skjóli ríkistjórnarinnar. Enda er það nauðsynlegt því, þeir verða að vera með pappír uppá hreint mannorð.
Það þarf að mínum dómi meira en skrautritað a4 blað í svoleiðis hreinsun. Efast um að Atlanshafið dygði nema kannski til að skólpa mesta skítinn af þeim. Og fyrir sæmilega réttsýnt og heiðarlegt fólk verður alltaf skítalykt af þeim og þeirra stuðningsmönnum
Í yfirlýsingu sem Nýi Kaupþing sendi frá sér í gær kemur fram að engin ákvörðun hafi verið tekin um uppgjör þeirra skulda sem ráðstafað hefur verið til bankans samkvæmt ákvörðun Fjármálaeftirlitsins (FME).er að ræða á fjórða tug einstaklinga og hluti þeirra starfar hjá Nýja Kaupþingi
Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra sagðist ekki hafa neinar upplýsingar um málið í gær en vissi að hvorki skilanefndir né nýjar bankastjórnir bankanna hafa tekið ákvarðanir um niðurfellingu krafna af þessu tagi.
Hvað er verið að gera þarna þrátt fyrir fagurgalan að hafa allt uppi á borðinu,meiri hluti rænigjaflokkins sem sat í bönkunum situr þar enn. ( Fer lögreglan kannski að hafa innbrotsþjófa og aðra glæpamenn sér til ráðgjafar þegar hún fer að rannsaka mál þeirra??? ), er virkilega svo mikill hörgull á hæfum einstaklingum í þessi störf að það þurfi að endurráða´"óreiðumennina".
Af hverju er engin ákvörðun tekin ? Það er sama hvar er borið niður sama svarið alls staðar, ( ef svar fæst ). Verið að skoða málið. Málið á svo viðkvæmu stigi. Mál einstaklinga ekki rædd. Ekki tímabært að leita sökudólga. Gefa okkur vinnufrið. Eintóm svona svör sem eru út í hött.
Er ekki bara unnið hörðum höndum bak við tjöldin að bjarga flokksgæðingum og reyna að breiða yfir tengsl stjórnmálaflokkana Mér sýnist nefnilega að það sé ekki mikill vandi að finna fólk í þessi störf,það er ekki vandfyllt í sæti þessara lygamarða og ræningja. Gætum örugglega fengið miklu hæfara fólk með því að fara í símaskrána og pikka út einhver nöfn.
Viðskiftaráðherra er alltaf haldið utan við allt, eða hvað? Aðspurður veit hann yfirleitt ekkert um málið eða hefur ekki upplýsingar. Er þetta ekki einmitt vettvangur hans ?, ætti hann ekki að vera með allt uppi á borði hjá sér viðvíkjandi þessum bankaránsmálum ?.
Að endingu í þetta sinn, hvað er svo búið að gera bitastætt í þessum málum, síðastliðnar 5-6 vikur???
![]() |
Þurfa ekki að greiða fyrir hluti í Kaupþingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
3.11.2008 | 20:07
Þeir ljúga því.!!!
![]() |
Engar niðurfellingar hjá Landsbanka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.10.2008 | 12:20
Enginn tími fyrir smámál. En hvað ég skil hann vel
Er þetta bara ekki eitt af því sem Geir ætlar að gera seinna, þegar hann verður búinn að losa stóru málin úr fanginu á sér. Einhvernvegin þannig komst hann að orði við fréttamann að það væri ekki hægt að sinna einhverjum smámálum þegar hann væri með fangið fullt af stórmálum.
Tala tala tala,suð,suða suða þvæla,þvæla þvæla,og allt hvað heiti hefur, þetta er það sem ríksistjórnin hefur verið að gera undanfarin mánuð, tuða, þykjast vera kanna hitt og þetta, þykjast vera að leggja einhverjar línur til framtíðar, þykjast þetta, þykjast hitt. Árangurinn er ekki einu sínni núll hann er svo fjarlægur að núllið sést ekki. Hvað þarf að velta fyrir sér þessum eftrilaunaósóma ?sem verða mun þingmönnum til ævarandi skammar og áfellis.Afnema hann strax. enga breta í stríðsleik. Loka flestum montsjoppunumk sem ég kýs að kalla sendiráðin, það má ugg laust finna miklu meira , en þetta eru einhverhundur miljónir og þær telja. Eigum bara við launþegarnir í landinu að taka á okkur skellinn,e r ekki mál til komið að sjálftökuliðið hjálpi til við að rétta kúrsin .
![]() |
Eftirlaunafrumvarpi flýtt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.10.2008 | 10:55
Bara eitt orð yfir svona fólk.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.10.2008 | 09:00
Hvað er langt síðan ???
Eru ekki að verða 18 eða 20 dagar síðan þetta fár skall á þjóðinni, hvað hafa ráðamenn verið að gera?, ég fer að halda, EKKI NEITT, ( er ekki þing á Íslandi til hvers eru þingmenn?) það er boður blaðmannafundur á blaðamannafund ofan til þess eins að segja fréttamönnum að það sé ekkert að frétta, málin séu á svo viðkvæmu stigi að ekki sé hægt að ræða um þau við okkur HÁLfVITANA.
Þetta er auðvitað rétt hjá þeim, þeir eru löngu búnir að sjá það, þeir sætu ekki svona tryggir við ríkisjötuna ef ekki væri fyrir heimsku okkar, við erum bara atkvæði í þeirra augum þegar nálgast kosningar, þegar vel tekst til heilsað jafnvel með handabandi. Síðan stendur loforðabunan út úr þeim. Og það er verst að þeir eru svo vissir um heimsku okkar að þeir eru hættir að koma með ný loforð vita sem er að atkvæðin muna ekki hverju var lofað fyrir fjórum árum. Og þess vegna ástæðulaust að þreyta sig á því að búa til ný. Reglulega á fjögurra ára fresti neyðast þeir til að ræða við atkvæðin eins og þau væru menn sem hefðu eitthvað bitastætt til málanna að leggja. Geir og Björgvin og nú síðustu daga Geir og Ingibjörg Sólrún, mæta galvösk til að tilkynna þjóðinni að það sé ekkert að frétta. Það hefur hvarlað að mér síðan þau Geir og Ingbjörg fóru að koma saman til að ræða ástandið, hvort helvítis kaninn hafi fiktað eitthvað í heilanum á henni, það er eins og hún sé með sama heila og Geir þau HUGSA EINS og TALA EINS.
![]() |
Furðulegt að samtalið skyldi leka í fjölmiðla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.10.2008 | 08:27
Ég hefði sagt nauðsynlegt.
Kattarþvottur, hverjir verða svo fengnir til ráðgjafar aðrir, en BANKARÆNINGJARNIR.???
![]() |
Bogi Nilsson stýrir gerð bankaskýrslunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.10.2008 | 08:04
Hvaða andskotans tuð er í manninum
Er forsætisráðherra ekki búinn að átta sig á því enn þá að við erum búin að mála okkur útí horn, rúin öllu trausti víðast hvar erlendis, erum auralaus og höfum hvergi lánstraust. Samt er hann að japla enn þá á því ,að að séum við setjum skilyrði í samningum við Alþjóðagjaldeyrissjóðin.
Við séum ekki að fara fram á aðstoð bara samvinnu við þá um hvernig eigi að leysa málið.
Er ekki málið það að þessi sjóður vilji hafa einhverja hönd í bagga með því hvernig þessu fé yrði varið. Og þar standi hnífurinn í kúnni. Við erum búin að sýna alþjóðasamfélaginu, að við kunnum ekkert með peninga að fara. OG SVO ÆTLUM VIÐ AÐ SETJA SKILYRÐI.
![]() |
Einhugur um að sækja um lán |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)