18.10.2007 | 15:20
Ekki alls varnað eða hvað??
Nýtt pósthús í Stykkishólmi
Af hverju þurftu þeir að byggja nýtt,
hvað varð um gamla pósthúsið var það ekki nógu flott.?
Þetta afsprengi einkavæðingarinnar er vonandi með þessum byggingaráformum að sýna viðskiptavinum sínum þá lágmarks kurteisi að afgreiða þá við mannsæmandi aðstæður.
Það hefur skort víða á það síðan þessi vitleysa var sett á, það stórversnaði allt,bæði hvað varðar opnunartíma og aðgengi að þjónustunni,þessu hefur verið hrúgað inn á verslanir.banka,sjoppur og víðar þar sem engin leið er að veita almennilega þjónustu,vegna þrengsla og mannleysis,því mjög víða var þessu bætt á þann mannskap sem fyrir var,fylgdi kannski sumstaðar einn og einn maður með sem þeir vildu að hefðu vinnu.
Ég held að það sé reynsla æði margra að allt þetta einkavæðingarkjaftæði hafi ekki skilað öðru en verri þjónustu fyrir kúnnan,tapi fyrir ríkið, en gróða fyrir þá sem fengu allt á silfurfati.
![]() |
Nýtt pósthús í Stykkishólmi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.10.2007 | 10:01
Ætlar ASÍ að ganga erinda atvinnurekenda???????
Íslensk velferð í fremstu röð?????????
Ég set mörg spurningamerki við þessa yfirskrift,því hún er algert öfugmæli við það sem stjórn ASÍ leggur á stað með á þennan fund.
Það er mál til komið að þessir menn fari að vinna fyrir kaupinu sínu,sem verður æ erfiðara fyri þá, þar sem í mörg ár hafa forsvarsmenn í þessum æðstu hreyfingum lítið gert annað en að glopra niður flestum nothæfum samningum sem gömlu verkalýðsjaxlarnir höfðu barið fram með dugnaði og ósérhlífni,þá var barist fyrir hugsjónir en ekki að hafa hlýja og góða skrifstofu og öll sín laun á þurru,það er oft býsna holur tónn í því að maður sem er með 4-500 þúsund á mánuði,skuli vera að semja um laun, sem eru fyrir neðan þau mörk sem talið er, að fólk þurfi til að komast af,og ekki von á mikilli hörku í þeim samningum, þar sem hann hefur sitt fastákveðna kaup.
Eru forsvarsmenn ASÍ að verða blindaðir af ameríska draumnum?, ég er búinn að hafa afskifti af verkalýðsmálum og taka þátt í mörgum samningum í gegnum árin,og oft hafa komið misgáfulegar hugmyndir upp á borð þegar verið er að leggja línurnar,en svona arfavitlaus hugmynd held ég að hafi aldrei heyrst fyrr,hvað verður næsta skref hjá ASÍ?,láta atvinnurekendur semja við sjálfa sig um kaup og kjör launþeganna?
Með fullri virðingu fyrir atvinnurekendum, skulum við halda puttunum á þeim sem lengst, frá tilhögun bótagreiðsla vegna veikinda-, slysa og örorkuréttar,á að fara að draga menn í dilka sem gefa mönnum mismikil réttindi,? ef ég væri í hæsta gæðaflokki samkvæmt þessari hugmynd,fengi ég þá hærri bætur ef ég fótbrotnaði í vinnunni,heldur en sá sem væri í lægsta flokki??
Heimska að láta sér detta í hug að ætla að deila út veikinda-slysa-og örkubótum, með því að búa til tvö kerfi,þetta eina kerfi sem í gangi er núna vefst nóg fyrir mönnum þegar á reynir,hvað þá ef þau væru tvö.
Með þessu nálgumst við hratt ameríska kerfið þar sem hart er gengið að launþegum," segir Sigursteinn í samtali við 24 stundir
.
![]() |
"Nálgumst hratt ameríska kerfið" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)