Hvern er umhverfisráðherra að vernda?

Heyrði í hádegisfréttunum viðtal við forstjóra Iclandic Express,um innanlandsflug,hann vildi meina að málið strandaði hjá samgöngumálaráðhera,þar sem þeir fái engin svör við því hvernig hægt sé að ráða bót á aðstöðuleysinu á Reykjavíkurflugvelli,en eins og flestu mun kunnugt eiga keppinautar þeirra þá aðstöðu ,og eru ekkert endilega útfalir að deila henni með öðrum,og síst þeim eins og gefur að skilja.Hann sagði jafnframt að þeir sæu tækifæri í þessari samkeppni, ef og þegar þeir fengju betri aðstöðu,og að línurnar þyrftu að fara skýrast svo þeir gætu farið að undirbúa næsta sumar.Það er orðin full ástæða til að Smárason Group eða hvað þetta fjandans okur flugfélag heitir í dag fái einhverja samkeppni, heyrði í útvarpinu um daginn viðtal við sveitarstjórann á Vopnafirði,þar sem fram kom að dýrasta fargjaldið Vopnfjörður-Reykjavík væri 38 þúsund krónur ef ég man rétt,þó eru þeir að fljúga þangað á ríkisstyrk.

Er þetta föst staða?

Tvísýn atkvæðagreiðsla á ársfundi ASÍ

Af hverju má ekki skifta Ingibjörgu út eins og öðrum sem kosnir eru til starfa fyrir hreyfinguna.

Mér finnst eins og hún sé búin að vera í þessu lengur en elstu menn muna,og samtökin eru illa á vegi stödd ef engin er hæfur til að taka við af henni


mbl.is Tvísýn atkvæðagreiðsla á ársfundi ASÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrir hvern starfar Gylfi Arnbjörnsson?

Öryrkjar sjálfum sér verstir,hvað segir svona setning okkur um Gylfa,ég segi að maðurinn sé fullur af hroka,og líki enganvegin við fólk sem er á annari skoðun.

Hann segir að Öryrkjabandalagið ráðist af heift gegn humyndum SA áður en þær séu tilbúnar,ég las þessa grein og get nú ekki séð að sé nein heift í henni,það væri gaman ef Gylfi benti okkur á,í hverju þessi heift er fólgin,ég á ekki von á að það verði gert, enda þegar menn hafa vondan málstað að verja eru rök  lítilsvirði


Við höfum margítrekað boðið stjórn Öryrkjabandalagsins kynningu sem hefur verið afþakkað." Sigursteinn telur að verið sé að skapa velferðarkerfi atvinnulífsins. Sem er fráleitt að mati Gylfa.

Hvað er þá verið að gera?

Er einhver ástæða til að fara í kynnigarstarfsemi á máli sem sem vonandi verður blásið af áður enn illa ferTil hvers þurfa SA að vera með puttana í þessu,þessi mál hafa verið á sæmilegu róli án þeirra,og örugglega affarasælast fyrir þá sem þurfa á þessari þjónustu að halda að hafa það svo áfram


mbl.is Öryrkjar sjálfum sér verstir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 19. október 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband