Svona eiga sýslumenn að vera!

 

Gott hjá Sarkozy að standa upp og fara,hann hlýtur að hafa komið þeim skilaboðum skýrt til fréttamannsins frá 60 mínútum að hann hafi ekki komið í þennan þátt til að ræða einlalíf sitt.


mbl.is Frakklandsforseti stóð upp og fór í miðju sjónvarpsviðtali
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki seinna vænna.! Af hverju fær náttúran aldrei að njóta vafans??

Sænskir kvikmyndatökumenn vinna að heimildamynd um urriðann.

Það er vonandi að þeir geri Þinvallavatnsurriðanum góð skil áður en honum verður endanlega útrýmt,allavega er að heyra og sjá að rök vatnalíffræðinga megi sín lítils vegna væntamlegrar hraðbrautar um nágrennið.


Er það ekki útgerðin sem þarf að selja afurðirnar???

Einars K. Guðfinnssonar, sjávarútvegsráðherra, að ekki gefa út veiðikvóta vegna atvinnuhvalveiða fyrr en markaðsaðstæður fyrir hvalkjöt hafa batnað.

 Sér sjávarútvegsráðuneytið um sölumál fyrir Kristján Loftsson?


mbl.is Meirihluti styður ákvörðun um að gefa ekki út hvalveiðikvóta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta nýtt afbrigði eikavæðingar

NL annist ein akstur gesta Kringlunnar

Væri ekki nær að fara að huga að því hætta þessu sérleyfiskjaftæði í þessari atvinnugrein sem gerir það eitt að það er engin samkeppni.

Gæti ekki skeð að leigubílar yrðu bara ódýrari ef þetta yrði gefið frjálst.

þarna er verkefni fyrir þá Vínfrumvarpsmenn.


mbl.is NL annist ein akstur gesta Kringlunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú verður Kristján að svara strax og undanbragðalaust!Eða ætlar hann að nota silfurfati?

Hibernia ætlar í hart.

Veit ekki neitt um þessi fyrirtæki sem eru í þessum sæstrengjabransa,en það hlýtur að vera gróðavegur ef slegist er um, að reka þessa strengi.

Mér finnst að það eigi að tala við þessa Hibernia menn áður en farið er að færa einhverjum öðrum þetta, á silfurfatinu góða,sem virðist vera í fullri notkun þótt Framsókn sé ekki lengur í stjórn.


mbl.is Hibernia ætlar í hart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 29. október 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband