1.12.2007 | 21:01
Áskorun
Aðventu-átak.
Þórdís Tinna, Moggabloggari númer eitt, er engin venjuleg kona.
Hún er skemmtileg, alltaf að hjálpa öðrum og sér það jákvæða við nánast allar kringumstæður.
Eins og flestir vita, á hún við alvarleg veikindi að stríða.
Það þarf ekkert að kynna Þórdísi Tinnu, svo þekkt er hún orðin fyrir að vera hún sjálf.
Nú er rétti tíminn til að sýna Þórdísi Tinnu stuðning í verki.
Sýnum samstöðu og styðjum við hana og dóttur hennar, Kolbrúnu Ragnheiði, svo þær geti notið hátíðanna, lausar við fjárhagsáhyggjur. Þúsundkall eða Fimmþúsundkall..... allt hjálpar.
Bankareikningur
0140-05- 015735. Kt.101268-4039
Ég skora á aðra bloggara að taka þátt og birta samskonar færslu á sinni síðu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.12.2007 | 17:19
Hjátrú og hindurvitni.
Ekki man ég hvenær ég las eða heyrði fyrst um Snjómanninn en sögusagnir um hann voru ansi lífseigar á síðustu öld,og kannski fyrr.
Margir leiðangarar hafa verið gerðir tilað finna þessa furðuveru án árangurs.
Einhvern tíman man ég eftir mynd sem átti að vara af fyrirbrigðinu en hún var svo óskír að hún gat verið af hverju sem var.
Á ofanverðri síðustu öld fór leiðöngurm að fjölga sem lögðu leið sína á Everst,og síða hefur ferðamönnum fjölgað þarna jafnt og þétt,og ætti þessvegna að vera meiri líkur á sjá Snjómanninn,en svo virðist ekki vera.
Hann sennilega forðast ferðamenn og er farinn að halda sig annars staðar nú um stundir.
![]() |
Fótspor snjómannsins ógurlega? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kemur kannski vitrari út,og fer að stunda alvöru list.
Þessir svokölluðu listamenn í dag, eru komnir svo langt frá öllu sem getur talist eðlileg hegðun, hjá sæmilega vitibornu fólki að það hálfa væri nóg.
Það er aumkunarvert að horfa á þessar hörmungar, sem þeir eru að bera á borð fyrir fólk og kalla listaverk.Síðan batnar það ekki ef einhver þorir að viðurkenna að hann skilji ekki listaverkið, og spyr hvað þetta eigi að tákna.
Þar með er búið að hrekja,listaspíruna út í horn þaðan sem hann á enga undankomuleið,tafsandi eitthvert óskiljanlegt rugl um innihald verksins. og þar fram eftir götunum.
Og afhjúpar þannig, að hann hefur í raun enga skýringu á "listaverkinu"
![]() |
Getur búist við 4 ára fangelsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.12.2007 | 08:26
Enn eitt dæmið um getuleysi yfirvalda:
Það er merkilegt að að yfirvöld standi ráðþrota gagnvart ólöglegu húsnæði sem virðist vera að aukast,lög og reglugerðir eru til um þessa hluti,og vandlegar skilgreiningar á notkun húsnæðis til hinna ýmsu nota.
En samt sprettur þetta upp eins og gorkúlur og enginn þykist geta tekið í taumana.
Slökkviliðið getur bent á það hvar svona starfsemi fer fram en það eru valdalaust og getur ekki bannað þetta.
Það eru skipulagsyfirvöld við komandi bæjarfélaga sem geta stoppað þetta ef vilji er fyrir hendi,skilgreindu atvinnuhúsnæði má ekki breyta til annarar notkunnar nema með leyfi,sem oftar en ekki er synjað,þar sem búseta manna inni á slíkum svæðum er óheimil
Ætla yfirvöld að bera ábyrgð á því ef kviknar í svona húsnæði og menn deyja vegna engra eldvarna eða flóttaleiða.
Dæmi er um svona húsnæði innst í verkstæðisbyggingu og eina útgönguleiðin í gegnum verkstæðið,og þarf ekki mikið ímyndunarafl til að geta sér til um hugsanlegar afleiðingar,
Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði íhuga að skilgreina eitt af gömlu iðnaðarsvæðunum í bænum sem athafnasvæði en á slíkum svæðum er leyfilegt að hafa starfsmannabústaði
Verði svæðinu breytt opnast farvegur fyrir slökkvilið höfuðborgarsvæðisins að gera kröfur um úrbætur á húsnæði þegar þess er þörf. Það getur slökkviliðið ekki þegar um ólöglegt húsnæði er að ræða
![]() |
Leið til löglegrar búsetu? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.12.2007 | 07:36
Hverju breytti það?
Lögreglan hefur handtekið karlmann sem er grunaður um að hafa tekið fólk í gíslingu á kosnningaskrifstofu Hillary Clinton í Rochester.
Hillary Clinton var viðstödd veislu í Virginíu á meðan atburðurinn átti sér stað. Skv. frásögnum fjölmiðla hætti hún við að halda ræðu þegar fréttir bárust af gíslatökunni.
![]() |
Umsátursástandi lokið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.12.2007 | 07:30
Tvær lestar rákust á?
Einhvernveginn finnst mér að þaðværi réttara að segja,tvær lestir rákust á,við búum ekki við járnbrautarlestir,en í minu ungdæmi var talað um Heybandslestir en ekki lestar.
Síðan má velta því fyrir sér hvort um árekstur eða ákeyrslu var að ræða,samkvæmt fréttum í útvarpi var sagt að farþegalest hefði ekið aftan á kyrrstæða vöruflutningalest
![]() |
Árekstur tveggja lesta í Chicago |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)