Hvað, eru hafrannsóknarskipin ekki haffær,

Hvað þarf að gera klárt?, hvert er hlutverk þessara skipa, ef ekki að vera tilbúin á svona tíma?.

Þarf ekki að fara að taka  leikskólan Hafró til endurskipulagningar, er ekki mál til komið að þessir menn sem þar ráða fari að standa reikningsskil gerða sinna, og sýni fram á með gildum rökum að þeir eigi rétt á að gegna þessum störfum?.

Nei, núna þegar allt er í upplausn með loðnuveiðar, þá ætla þeir að dunda við að gera skipin klár til leitar í næstu viku eða svo. Það er ekki asinn á þeim bænum.

ERU ALLIR FISKIFRÆÐINGAR SEM EKKI STARFA HJÁ HAFRÓ HÁLFVITAR. ?

Margir sem eru  menntaðir í þessum fræðum hafa gagnrýnt Hafró harkalega,án þess að reynt hafi verið með haldbærum rökum að reka það til baka. ER Hafró hafin yfir gagnrýni? 

Og loksins þegar Bjarni Sæmundsson kemst  á miðin á hann að  fara í einn vitlausasta leik sem Hafró hefur fundið upp og kallar " togararall ", sem aldrei hefur skilað neinum marktækum árangri...


mbl.is Hafrannsóknarskipin enn í höfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver er Olga Lísa ?

Það hefði gefið fréttinni meira gildi að segja eitthvað um Olgu Lísu,nema fréttin sé bara fyrir þá sem þekkja hana... ?
mbl.is Olga Lísa skipuð skólameistari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er forsætisráðherra ókunnur fjármálum ríkisins.???

 Hann heldur því fram að skattur á olíu og bensín renni nær óskiftur til vegamála,og að auki leggi ríkssjóður talsvert meira fé til uppbyggingar vega... ???

Ég reyni yfirleitt að vera ekki mjög stórorður,en þetta er haugalygi.

 ..Það er því einföldun á málinu að segja að ríkissjóður fái sjálfkrafa tekjuaukningu út á þessa hækkun olíuverðs... Woundering

Hann telur af og frá að lækka skattheimtu á eldsneyti, enda sennilegt að fólk dragi úr notkun á bifreiðum sínum eða þá öðrum þeim vörum sem virðisskattskyldar eru. Errm

Og þá tapar ríkissjóður.

Enn einu sinni varpa ég þeirri spurningu fram, halda ráðamenn landsins að við séum fífl???.

Það er að vísu eðlilegt að þeir líti svo á, alltaf kjósum við þá aftur og aftur.???

 

 

 


mbl.is Segir ríkissjóð græða milljarð á bensínhækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 22. febrúar 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband