Undalegt niðurlag á þessari frétt.

 Samkvæmt fréttinni er ekki að sjá neinn efa um sekt þeirra, og úr þvi þetta var kært til lögreglu hlýtur þetta að vera ólöglegt. Af hverju þá, EF þeir verða fundnir sekir ?

 

Þeir eiga yfir höfði sér allt að 10 ára fangelsi ef þeir verða fundnir sekir.


mbl.is Svíar ákærðir fyrir lyfjasölu á netinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað þarf marga flugvirkja til að skipta um eitt hjól undir smáflugvél ?

Flugvél með sprungið dekk...
mbl.is Nefhjól sprakk í lendingu á Gjögri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Finnst einhverjum þetta trúverðugur verðsamanburður.

Eru lyfsalar ekki aðilar að SVÞ ? Getum við treyst því að SVÞ sé með óvilhalla könnun ?

Afhverju var miðað við Danmörku einn tiltekinn dag, og örfá lyf skoðuð ?

Mér finnst svona " verðkönnun " hvorki fugl eða fiskur og vantar mikið á að hún hreinsi lyfsölur af því gengdarlausa okri sem viðgengst í þeirra hópi


mbl.is Segja dýrustu lyfin ódýrari á Íslandi en Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reikna sumarhúsaeigendur með sumri allt árið ?

Er hætt að gera ráð fyrir því, þegar sumarhús er byggt að það geti komið frost. Við lestur þessarar fréttar læddist að mér sá grunur að svo muni vera. Ef rétt er að staðið í upphafi er vandalaust að ganga þannig frá að svo til engin hætta sé á frostskemmdum á kaldavatnslögnum. Sé bústaður hitaður með rafmagni eða heitu vatni á ekki aðvera nein hætta á frosti innanhúss,nema lagnir séu  ílla einangraðar,í gólfum,loftum eða veggjum. Í óupphituðum bústöðum er vandalítið að tæma vatnslagnir. Þannig að skemmdir af frosti eru ofatst okkur sjálfum að kenna. 
mbl.is Frostskemmdir koma í ljós
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 4. febrúar 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband