Hálfvitagangur og stórmennskubrjálæði..

Þetta er glöggt dæmium það hvað misvitrir stjórnmálamenn gera til að líta framhjá því sem er að ske við bæjardyrnar hjá þeim. Hefði ekki verið þjóðhagslega hagkvæmara að nota það fé sem verið er að spreða í þetta  "gæluverkefni" t.d. til að liðka fyrir samningum við heilbrigðisstéttirnar. Það virðist aldrei vera þurð eða hörgull á fé ef ráðamönnum dettur einhver svona vitleysa í hug.
mbl.is Stuðningur við framboð til Öryggisráðs eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta ekki frekar aðferð til að koma af stað ólátum ???

 Rétt aðferð ???  Woundering

Mér finnst að þessi skýring sé frekar máttlaus. Ef lögreglan er að taka einhverja útlenda taktik til fyrirmyndar sýnist mér að svona aðferð gæti snúist illilega í öndverðu sína.  Police  Eða þeir ekki tekið rétt eftir. Ég get ekki ímyndað mér að þar sem samankomin er æstur mannfjöldi, sé það leið til að stilla hann, að senda menn af stað með gasbrúsa organdi eitthvað sem enginn skilur. Þeir gátu gert þessa menn sýnilega og notað til dæmis gjallarhorn til að koma á framfæri að þessari aðferð yrði beitt. Svona aðferð sýnist mér geta falið það í sér að lögreglan missi alla stjórn á hlutunum og geti staðið frammi fyrir meiri háttar slagsmálum með tilheyrandi slysum á fólki. Errm

 

 


mbl.is Rétt aðferð við beitingu piparúða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 28. apríl 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband