Barna þrælkun---------Breyttur tíðarandi.

Ekki ætla ég að mæla barnaþrælkun bót, en viðbrögð þeirra sem hafa tjáð sig um þetta mál eru nokkuð dæmigerð fyrir þá þjóðfe´lagsbreytingu sem er að verða.

Borin er saman barnaþrælkun og vinna unglinga sem algeng var á síðustu öld..það er sitthvað Jón og séra Jón.börn innan fermingar voru ekki þrælkuð á síðustu öld hér á landi en það var álitið hollt fyrir unglinga að vinna ,og víðast held ég það hafi verið passað að þeir ofgerðu sér ekki.

Ég vann í mörg ár á vinnustað þar sem byrjað var kl 7 á morgnana og oft unnið til 10 og 11 á kvöldin,á sumrin fengu unglingar vinnu þegar þeir komu úr skólum,og margir þeirra höfðu ,það gott upp úr sumarvinnunni að þeir gátu að nokkru leiti fjármagnað áframhaldandi nám.

En þeir byrjuðu aldrei að vinna fyrr en 8 á morgnana og voru yfirleitt látnir hætta kl 5,við lítin fögnuð þeirra.

Hæfileg vinna og áreynsla drepur engan.

Getur ekki skeð að vaxandi eiturlyfjaneysla sé að hluta vandamál ,vegna þess að fólk, og þá sérstaklega unglingar hafa alltof mikinn tíma sem þeim reynist erfitt að nota.

Það er tilgangslaust að benda á að aldrei hafi verið eins mikið framboð afþreyingar og nú,en ég held að hæfileg vinna og áreynsla færi betur með sálarlíf og líkama unglinganna okkar,heldur en slímsetur fyrir framan tölvuskjái .


mbl.is Börn tína bómull fyrir H&M
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband