15.1.2008 | 13:42
Trúi ekki að Bretar skipti sér af þessu. Trú aftur á móti öllu á Ástralíustjórn...
Þeir eiga bara að sigla með þessa hryðjuverkamenn heim til Japans og draga þá fyrir dóm. Þeir eru réttlausir þar sem þeir ráðast um borð í skip á alþjóða hafsvæði. Og þar að auki gerðir út af glæpamanni, sem gegnir furðu að skuli ganga laus. Ég hef aldrei botnað í þeirri linku sem sýnd hefur verið í málum Sea Shepard, þótt þau kenni sig við umhverfisvernd, eru þetta ekkert annað en glæpasamtök, og ef þeir sem styðja þá að málum eru það ekki líka, eru þeir í meira lagi einfaldir.
Bragð er að þá barnið finnur,segir máltækið. Önnur umhverfissamtök hafa sem minnst viljað hafa samstarf með þeim og það segir sína sögu...
Liðsmenn Sea Shepherd teknir í gíslingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sammála og nú er tími til kominn að leyfa þeim að dúsa bak við lás og slá.
Rósa Aðalsteinsdóttir, 15.1.2008 kl. 14:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.