28.11.2007 | 20:40
Sá hlær best sem síðast hlær.
Embætti ríkislögreglustjóri hefur unnið að því í samvinnu við Barnaheill og netþjónustur, að koma upp síum á myndefni, sem ætti að koma í veg fyrir dreifingu á netinu á myndum, sem tengjast ofbeldi á börnum og barnaklámi.
Þetta kom m.a. fram í svari Björns Bjarnasonar, dómsmálaráðherra, við fyrirspurn Steingríms J. Sigfússonar, þingmanns VG, í dag.
Björn sagði einnig, að til stæði að koma upp svonefndum rauðum hnappi, sem hægt væri að ýta á til að tilkynna lögreglu um varhugaverð samskipti á netinu, sem gætu skaðað börn.
Steingrímur sagði m.a. að hann hefði verið gagnrýndur fyrir ummæli um að lögregla ætti að geta beitt sér gegn lögbrotum á netinu.
Hvað segja þeir nú sem mest gerðu gys aðSteingrími,og sökuðu hann um að vilja koma á netlögreglu ?
![]() |
Unnið við að setja upp síur fyrir myndefni á netinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.11.2007 | 20:31
Hættulegt starf !
Árás í sænskum skóla
Það virðist sem kennsla fari að verða með hættulegri störfum ,hvar sem er í heiminum.
Kennarar hljóta að fara krefjast áhættuþóknunar, ef fram fer sem horfir.
Ég tala nú ekki um ef þeir eru eins illa launaðir og íslenskir kennarar
![]() |
Árás í sænskum skóla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.11.2007 | 12:54
Var síðasta heimsmetið að hverfa sporlaust?

![]() |
Vilja að Steve Fossett verði úrskurðaður látinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.11.2007 | 08:10
Ruglingsleg útvarpsfrétt kl 08. Svona er staðan kl 08
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.11.2007 | 07:57
Finnst Kolbrúnu nýfædd börn vera kynlaus.
Hélt satt að segja þegar ég sá fyrirsögnina að nú ætti að fara að taka tímaritið Bleikt og Blátt til bæna,en það var nú heldur betur annað.
Eru líkur á að þessi hefð sé til komin í heilbrigðisráðuneytinu,hefði ekki verið nærtækara að spyrjast fyrir um þetta á fæðingardeildinni,og meiri líkur að einhver þar vissi eitthvað um þetta.
Ég hef aldrei skilið þessa bleiku og bláu merkingu á börnum,finnst hún heimskuleg, en það hefur aldrei pirrað mig neitt.
En ef þetta er eitthvað sem ástæða er til að ræða í þinginu,þá má spyrja sig að því hvernig þingmenn hagi vinnu sinni,og hvað þeir telji að gagnist landi og lýð.
Við eigum allt okkar eftir þó börn á fæðingardeildum séu auðkennd með bleiku og bláu,það á hreinlega að banna svona heimskulegar fyrirspurnir sem þjóna engum tilgangiog gera ekkert nema að tefja fyrir vitlegri umræðu.
. Kolbrún Halldórsdóttir alþingismaður Vinstri grænna hefur lagt fram fyrirspurn til heilbrigðisráðherra á Alþingi um hvernig sú hefð hafi mótast að klæða stúlkur í bleikt og drengi í blátt á fæðingardeildum og auðkenna þá með bláum armböndum og stúlkur með bleikum. Spyr Kolbrún hvort ráðherra telji koma til greina að því verði breytt þannig að nýfædd börn séu ekki aðgreind eftir kyni og að þau verði framvegis klædd í hvítt eða aðra kynhlutlausari liti.
![]() |
Ekki meira blátt og bleikt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)