Heimskan ríður sjaldan við einteyming !

Það er í rauninni óþarfi að tjá sig um þetta mál ,mér sýnist flestir sem tjá sig um það vera sammála, um að þetta fólk hafi í besta falli sýnt af sér vítavert hugsunarleysi.

Þetta er ábyrgðarlaust heimskuflan fólks sem annað hvort telur sig vita betur en aðrir,eða hefur ekki rænu á að hlusta á útvarp.

Þótt ég viti að ekki sé vilji hjá bjögunarsveitum að láta fólk sem er hjálparþurfi borga fyrir aðstoðina,og ég sem meðlimur slíkrar sveitar sé sama sinnis,þá liggur við að í svona tilfellum ætti að gera slíkt, þar sem varúðarreglur allra ábyrgra ferðamanna eru þverbrotnar,fyrir svo utan það að stofna bæði sér og þeim sem til bjargar koma í stórhættu.


mbl.is Unnið við erfiðar aðstæður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórhækkað matvælaverð vegna verðhækkunnar á Maís !!!

Það er ekkert sem bendir til annars en að matvælaverð muni fara stórhækkandi á næstunni,....

Hinar varanlegu ástæður eru tvær. Annars vegar er stóraukin eftirspurn eftir þessum sömu matvælum og við neytum frá nýríkum þjóðum eins og Kína og Indlandi,“.... ákvörðun Bandaríkjastjórnar og fleiri ríkja að framleiða lífrænt eldsneyti ....Þetta hafi m.a. leitt til þess að verð á maís hafi hækkað ....æ meiri afbrigði í veðurfari. Bæði hafi orðið þurrkar og flóð....  

Hann nefnir ekki þriðju ástæðuna sem er innlend og það eru væntanlegir kjarasamningar.Venjulega fara allir á fulla ferð og hækka  vöru og þjónustu, um leið og kjaraviðræður fara í gang..

Veðurfar getum við lítil áhrif haft á,en að hækkun á Maís réttlæti stóraukna hækkun á matvælaverði finnst, mér fjandi langsótt 

 


mbl.is Útlit fyrir hækkun á matvælaverði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fölsuð ritgerð hvað er um að vera ?

ER EKKIALVEG AÐ SKILJA Í HVERJU FÖLSUNIN ER FÓLGIN, HEFUR MAÐUR EKKI FRJÁLSAR HENDUR UM EFNISVINNSLU ÞÓTT MANNI SÉ ÚTHLUTAÐ EINHVERJU ÁKVEÐNU AÐ SKRIFA UM ?
mbl.is Falsaði fráfall föður í ritgerðarsamkeppni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svo lengi lærir, sem lifir !

Var að fletta fimmtudagsblaði Mb, blaðalestur setið á hakanum að undanförnu af eðlilegum orsökum.

Þar var grein um hestamenn og viðtal við þá,og allt í lagi með það, ég hnaut um litinn á hestinum, ég er uppalin í sveit meira og minna, og hef umgengist hesta alla mína ævi, án þess þó að vera hestamaður,tel mig vera nokkuð glöggan á lit þeirra og hvað litirnir heita.

Nú virðist vera búið að rækta upp nýtt litaafbrigði í Íslenska hestinn, og heitir nýji liturinn KAMPAVÍNSMOLDÓTTUR


Muna eftir Björgunar og hjálparsveitunum !!!

Ekki versla við afæturnar.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband