Skyldaðir til að éta.

Þurfa að kaupa tvær máltíðir á dag

Gunnar Kárason, fjárhaldsmaður mötuneytisins, segir að þetta sé gert af fjárhagslegum ástæðum

Það var prófað af hafa þetta með öðru móti en það gekk ekki. Einn daginn komu kannski 300 manns í mat og annan daginn 10 manns og maturinn eyðilagðist."

Spurður að því hvort það sé ekki brot á jafnræði við nemendur að þeim sé boðið upp á mismunandi þjónustu eftir búsetu svaraði Gunnar: „Nei.

Hann virðist ekki hafa mikla sýn á það sem hann er að gera ef þetta er eina ráðið til þess að maturinn gangi út.

Miðað við dæmið hans með 300 í mat í gær en bara 10 í dag,var bara ekki svona mikið betri matur í gær?

Það eru örugglega ótal leiðir til að reka mötuneyti skólans án þess að mismuna nemendum svona gróflega.

Hvernig væri  t.d. að gera vikuplan í einu og nemendur skráðu hvað þeir ætluða að borða margar máltíðir þá viku,ef þeir mæta ekki í mat þá er það þeirra skaði en ekki mötuneytisins,sjálfsagt má útfæra þetta á ótal vegu


mbl.is Þurfa að kaupa tvær máltíðir á dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað hefur versnað síðan í fyrra???

Lítil spilling á Íslandi segir í fréttinni,en af hverju erum við á niðurleið?Er það Grímseyjarferjan sem lækkar okkur,hlýtur það dæmi ekki flokkast udir spillingu?Fyrir utan öll hin "Grímseyjarferjumálin".

Meðferð Grímsyjarferjumáls er með þeim eindæmum .að mér sýnist við vera komin með gegnsætt orð þegar spilling er annars vegar,það er auðvitað Grímseyjarferjumál.

Hver matar svona fyrirtæki  eins og T.I.á upplýsingum er það einhver áháður aðili ?

Eigum við yfir höfuð einhvern sem getur talist það?

Einkunnargjöfi ner falleg,en það læðist að mér grunur um prófsvik,og það var talin erkisynd þegar ég var í skóla fyrir margt löngu síðan.


mbl.is Lítil spilling á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað ef Mjólka hefði ekki sýnt þessu áhuga

Mjólkursamsalan (MS) hefur hætt við að loka mjólkurmóttöku sinni á Egilsstöðum.

Ætli að hagræðingarhugmyndin hefði  ekki verið látin halda sér ef Mjólka hefði ekki sýnt þessu áhuga?,MS var búin að  hóta því að þeir myndu ekki afhenda bændum mjókurstöðina til þess að Mjólka gæti farið að keppa við þá,en forráðamenn hennar höfðu lýst vilja og áhuga á því að koma að þessum rekstri.

Þessi hótun virkaði ekki Mjólka ætlaði þá að koma upp sinni eigin vinnslustöð,og þá voru ("80 miljónirnar sem áttu að sparast með þessum aðgerðum")léttvægar á móti því að fá öfluga samkeppni á þetta svæði.

Þetta er dæmigert fyrir vinnubrögð stórfyrirtækja í dag,loka og fara vegna "hagræðingar",ef einhver sýnir áhga að koma í staðin þá hverfa" hagræðingarsónarmiðin" eins og dögg fyrir sólu.

Svona fyrirtæki setja dæmið upp á einfaldan hátt fyrir sig og trúa á þessa formúlu og vinna dygglega eftir henni,  einokun=hagræðing

 


mbl.is MS hættir við að loka á Egilsstöðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En kunna samt ekki ensku þegar skólagöngu líkur.

Aldrei jafn margir að læra ensku í grunnskóla og nú ????

 Enskunemum hefur fjölgað ár frá ári og stunduðu 29.730 grunnskólabörn enskunám skólaárið 2006-2007. Aldrei áður hafa fleiri grunnskólabörn verið að læra ensku

Er ekki alveg að skilja hvað um er að vera,hefur ekki verið athugað hvað mörg grunnskólabörn eru þá að læra íslensku,reikning eða aðrar skyldunámsgreinar.

Síðan er það kapítuli útaf fyrir sig að þegar upp er staðið og grunnskóla líkur geta þessi sömu börn kannski nýtt sér "enskuna sína" til að spyrja til vegar eða eitthvað þessháttar.


mbl.is Aldrei jafn margir að læra ensku í grunnskóla og nú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrirsögnin lítilsvirðing við Apakettina

Það er ekki rétt að kenna svona "menn" við Apaketti , Apakettirnir eru með eitthvert smá heilabú en hjá svona"mönnum"er bara tómarúm þar sem heilinn ætti að vera,það er með ólíkindum hvað við Íslendingar göngum illa um landið okkar bæði hvað varðar landspjöll, og þá ekki síður þá áráttu að losa sig við sorp og hverskonar úrgang hvar sem er.

´Það er samt í þessum efnum sem öðrum, að ekki þarf nema einn gikk í hverja veiðistöð,  þessum fáu umhverfissóðum sem ekkert er heilagt, og koma óorði á alla sem hafa svona tæki undir höndum,hvort sem það eru hjól,bílar eða önnur farartæki.

Þótt umgengni við náttúruna hafi að vísu lagast, má gera gott ennþá betra,  til þess þarf ekki mikið annað en góðan vilja,og staldra aðeins við áður en við ökum út á ósnortin mel eða graslendi og spá í hvort þetta sé nauðsynlegt, mætti bara ekki sleppa þessu eða fara gangandi

Sönnunarbyrði þykir mjög þung í þessum málum og því er Snorri ekki sérstaklega vongóður um að hinir seku verði kallaðir til ábyrgðar, en segir engu að síður að hann treysti því að málið verði tekið alla leið í dómskerfinu.

Þetta er klausa sem ég á erfitt með að skilja,þeir voru staðnir að verki,og merkin sýna verkin,ég hélt að ef menn eru staðnir að svona athæfi ætti ekki að vera erfitt að draga þá fyrir lög og dóm.

 

 


mbl.is Apakettir á vélhjólum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband