Finnst einhverjum þetta trúverðugur verðsamanburður.

Eru lyfsalar ekki aðilar að SVÞ ? Getum við treyst því að SVÞ sé með óvilhalla könnun ?

Afhverju var miðað við Danmörku einn tiltekinn dag, og örfá lyf skoðuð ?

Mér finnst svona " verðkönnun " hvorki fugl eða fiskur og vantar mikið á að hún hreinsi lyfsölur af því gengdarlausa okri sem viðgengst í þeirra hópi


mbl.is Segja dýrustu lyfin ódýrari á Íslandi en Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reikna sumarhúsaeigendur með sumri allt árið ?

Er hætt að gera ráð fyrir því, þegar sumarhús er byggt að það geti komið frost. Við lestur þessarar fréttar læddist að mér sá grunur að svo muni vera. Ef rétt er að staðið í upphafi er vandalaust að ganga þannig frá að svo til engin hætta sé á frostskemmdum á kaldavatnslögnum. Sé bústaður hitaður með rafmagni eða heitu vatni á ekki aðvera nein hætta á frosti innanhúss,nema lagnir séu  ílla einangraðar,í gólfum,loftum eða veggjum. Í óupphituðum bústöðum er vandalítið að tæma vatnslagnir. Þannig að skemmdir af frosti eru ofatst okkur sjálfum að kenna. 
mbl.is Frostskemmdir koma í ljós
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er áleitnar spurningar sem ekki hefur verið svarað á sannfærandi hátt.

...nágrenni Reykjavíkurflugvallar séu orðnir vanir því að svefn þeirra sé truflaður Gasp vegna umferðar einkaþotna en hvergi í heiminum sé jafnmargar slíkar að finna og á Íslandi... Hvað ætli það kosti reka  svona þotu ? GetLost

 ...Eins sé það á huldu hvaðan auður íslenska athafnamanna hafi komið  í upphafi...Wizard

 Það hafa sjálfsagt margir velt því fyrir sér, en ég hef ekki séð  séð neina trúverðuga skýringu á þessu skyndilega ríkidæmi. Og það er kannski ekki svo skrýtið að  a við almenningur furði okkur á  þessu auði þar sem virtir fjármálaspekingar erlendis eru sama sinnis.Woundering

Baugur, stór á Íslandi,allt í einu orðin mjög  athafnasamur á erlendum fjárfestingamörkuðum. Woundering

 Landsbankinn, allt í einu kemur maður sem hrökklaðist gjaldþrota úr landi fyrir nokkrum árum og kaupir hann,að vísu á spottprís,en samt.Errm

Bakkavör, lítið fiskvinnslufiyrirtæki á vesturlandi,fyrir örfáum árum.

Öll þessi svokölluðu útrásarfyrirtæki voru meira og minna lítið og sum óþekkt fyrir áratug eða svo,núna eru þau að velta tugum miljarða,er ekki von einhverjir séu hissa ?Woundering

Það hefur verið sagt að einhverntíma komi að skuldadögunum, og hvernig fer þegar kemur að þessum skuldadögum, það er nokkuð ljóst,við þessi með breiðu bökin, launþegarnir fáum að borga brúsann Angry

 

 


mbl.is Er allt á niðurleið á Íslandi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Furðulegt fyrirbæri Mannanafnanefnd

Hef oft furðað mig á röksemdum þessarar nefndar þegar hún er að samþykkja eða hafna mannanöfnum, mörg af þeim nöfnum sem hafa verið samþykkt eru svo heimskuleg að maður myndi ekki einu sinni  nota það á hund. Eitt af þeim nöfnum sem ég skil ekki er kvenmannsnafnið Ilmur,er þetta ekki karlkynsorð, eða hvað ?, segir maður ekki að hann, ilmurinn sé góður ?, mér finnst það hljóma betur, en hún ilmurinn er góður
mbl.is Piu og Sven hafnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætli fari ekki að vanta skóflur í Kína ?

 ..Ríkisstjórnin hefur sent 300 þúsund hermenn til aðstoðar og 1,1 milljón varaliða hersins hafa verið kallaðir út vegna veðurofsans...

Hvað ætli c.a. ein og hálf miljón manna með skóflur í höndum geti mokað marga kílómetra á klukkustund? Sá í einhverjum frétta tíma fjölda manns vera að moka af einhverjum vegi


mbl.is Vetrarhörkur í Kína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband