Held að þetta sé ekki marktækur álitsgjafi ?

mbl. leitar á dálítið vafasamar slóðir með álitsgerð Stefaníu Óskarsdóttur stjórnmálafræðings, held að hún sé tengd sjáfstæðisflokknum of sterkum böndum til að geta kallast óvilhallur dómari um þessi mótmæli í ráðhúsinu.

 ...segist ekki telja þá atburði sem nú eru að eiga sér stað í Ráðhúsi Reykjavíkur vera sögulega þrátt fyrir að fátítt sé að lögregla sé kölluð til vegna pólitískra...

 ...Stefanía að  sér hafi sýnst álíka margir ungliðar úr Sjálfstæðisflokknum vera á áheyrendapöllunum og ungliðar minnihlutaflokkanna.

Þeir hafi hins vegar sýnt háttvísi og látið sér nægja að klappa er fulltrúar flokksins voru kjörnir í embætti.

Segir Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur og varaþingmaður sjálfstæðisflokkins


mbl.is „Mótmælin ekki alveg marktæk"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ég bundinn einhverjum trúnaði við tannlækna ??

Get ekki skil þessa vitleysu í sambandi við að birta gjaldskrá hjá tannlæknum,öðruvísi en svo að þeir séu að reyna að fela eitthvað sem ekki þolir dagsins ljós.

Hvað kemur þessari "persónuvernd" við hvort Tryggingastofnun eða einhver annar birtir þessa gjaldskrá, hvað er hún að vernda ?, tannlæknana ?

Ef ég fer til tannlæknis, þarf ég þá leyfi þessarar nefndar ef mér dettur  í hug að birta reikningin sem ég þurfti að greiða ?

Sérfræðingar Neytendastofu og Tryggingastofnunar munu vinna að málinu. „Það þarf að ganga úr skugga um hvað eigi að birta af þeim upplýsingum sem Tryggingastofnun hefur undir höndum og hvernig. Um leið þarf að skoða að allur lagagrundvöllur sé réttur,“ segir Tryggvi...

Er það ekki skylda Tryggingarstofnunar, ef hún er með gögn um mál sem orka tvímælis, að koma þeim í réttar hendur til skoðunar ?


mbl.is Neytendastofa hyggst birta verð tannlækna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bakgrunnurinn á þessari mynd bendir ekki til gleði

Þessir oddvitar hefðu átt að líta aðeins aftur fyrir sig þega þeir voru að tíunda í sjónvarpinu hvað þetta væri mikið heillaspor fyrir Reykjavík.Mér sýnist á fulltrúunum sem að baki standa að þeir séu ekki mjög kátir með þennan gjörning. Getur skeð að þeir hafi orðið efins á síðustu stundu. Fréttu þeir ekki rétt áður en þetta viðtal fór fram að Ólafur stæði einn.

Þetta er nú að verða ein furðulegasta birtingarmynd póltískra loddarabragða sem menn hafa orðið vitni að. Ólafur segir sig úr Frjálslynda flokknum. Vilhjálmur svíkur Ólaf, og býður Birni Inga upp í dans, Björn Ingi svíkur Vilhjálm, og gengur til liðs við vinstri flokkana, og Ólaf. Ólafur svíkur þá og býður Vilhjálmi helmingaskipti.'Ólafur svíkur varamann sinn Margréti, hún veit ekkert hvað um er að vera fyrr en allt er klappað og klárt. Síðan bítur Ólafur höfuðið af skömminni með því að gera væntanlegum samstarfsmönnum sínum ekki grein fyrir því að hann standi einn.

Þetta er svona í hnotskurn það sem ég get fundið út úr fréttum af þessum sirkusæfingum, sem sýna okkur, að þegar völd eru annars vegar getur sannfæringin farið til fjandans. Svo er ætlast til að við sýnum svona mönnum traust!!!


mbl.is Útilokar ekki samstarf við Frjálslynda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætlaði hann kannski að bjarga Krókódílnum ?

Fátítt er í Ástralíu að krókódílar ráðist á fólk,... og einnig gerist það sjaldan að menn verði fyrir byssuskotum, ??? Set spurningamerki við þessa.
mbl.is Bjargaði vinnufélaga úr krókódílskjafti og skaut hann óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað á almenningur að borga mikið af því ?

Ef reikna á árlegan hagnað af Kárahnjúkavirkjun þá er hann metinn af Landsvirkjun á 4,22 milljarða króna á verðlagi ársins 2008. Er þá miðað við 40 ára sölu orku frá virkjuninni en áætlaður líftími virkjunarinnar er lengri.

Það er  kannski ekki ástæða til að mála skrattann á veggin, og þó þegar Landsvirkjun á í hlut sýnir reynslan að tölfræði hennar er stundum meiri óskhyggja en raunveruleiki, þótt þeir segi nú að endurskoðað arðsemismat leiði í ljós meiri hagnað en gert var ráð fyrir í upphafi,má efast. Er t.d.  búið að ganga frá öllum málum við Impregilo, það er eins og mig minni að þeir hafi ekki verið alveg ánægðir með ýmislegt í útboðinu sem þeir áskildu sér rétt til að sækja aukagreiðslu fyrir. Kannski er þetta bara misminni.


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband