Vafasamur heiður. Eða er Geir bara grænn ???

  "  Þeir hjá Newsveek eru ekki svo grænir  "

Það hefur nú til skamms tíma þótt heldur lítilsvirðandi að vera talinn grænn. Ég veit að þessir kallar eru allir meira og minna " grænir" en  vera bestur ???.


mbl.is Geir er grænastur leiðtoga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er ekki nóg að vera með járbentan kjaft !!!

 Merkileg þessi eilífa barátta Heilbrigðisráðuneytis og LSH við starfsfólk sitt.

   Guðlaugur Þór vonast til að deilan muni leysast og að þeir hjúkrunarfræðingar sem sagt hafa upp komi aftur til starfa. „Ég held að allir hlutaðeigandi séu reiðubúnir til þess að finna leið til að leysa málið,“ segir hann...

 Þar stendur hnífurinn í kúnni, það eru nefnilega ekki allir hlutaðeigrndur reiðubúnir,allavega ekki stjórn LSH sem valtar yfir starfsfólk með gerræðislegum ákvörðunum án nokkurs samráðs eða samtarfs við fólkið sem þarf að VINNA VERKIN. Heilbrigðisráðherra er aftur á móti í þeirri stöðu að hafa ekki undan að vera hissa á frekju starfsfóksins

Lýstu forsvarsmenn spítalanna allir vilja sínum til að koma að áætluninni í góðu samstarfi við sitt starfsfólk. Í hverju var sá vilji fólgin,ef þið gerið eins og við viljum verður allt í lagi,svona samningar kallast í besta falli einhliða,en eru í raun kúgun


mbl.is Neyðaráætlun með öðrum spítölum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hálfvitagangur og stórmennskubrjálæði..

Þetta er glöggt dæmium það hvað misvitrir stjórnmálamenn gera til að líta framhjá því sem er að ske við bæjardyrnar hjá þeim. Hefði ekki verið þjóðhagslega hagkvæmara að nota það fé sem verið er að spreða í þetta  "gæluverkefni" t.d. til að liðka fyrir samningum við heilbrigðisstéttirnar. Það virðist aldrei vera þurð eða hörgull á fé ef ráðamönnum dettur einhver svona vitleysa í hug.
mbl.is Stuðningur við framboð til Öryggisráðs eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta ekki frekar aðferð til að koma af stað ólátum ???

 Rétt aðferð ???  Woundering

Mér finnst að þessi skýring sé frekar máttlaus. Ef lögreglan er að taka einhverja útlenda taktik til fyrirmyndar sýnist mér að svona aðferð gæti snúist illilega í öndverðu sína.  Police  Eða þeir ekki tekið rétt eftir. Ég get ekki ímyndað mér að þar sem samankomin er æstur mannfjöldi, sé það leið til að stilla hann, að senda menn af stað með gasbrúsa organdi eitthvað sem enginn skilur. Þeir gátu gert þessa menn sýnilega og notað til dæmis gjallarhorn til að koma á framfæri að þessari aðferð yrði beitt. Svona aðferð sýnist mér geta falið það í sér að lögreglan missi alla stjórn á hlutunum og geti staðið frammi fyrir meiri háttar slagsmálum með tilheyrandi slysum á fólki. Errm

 

 


mbl.is Rétt aðferð við beitingu piparúða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjir hafa rétt fyrir sér umhverfisstofnun eða peningarnir ???

Ég veðja á þá síðarnefndu...
mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband