Færsluflokkur: Dægurmál

En við veltum fyrir okkur hver þau voru?????????

Patreksfirðingar standa á gati og velta mikið fyrir sér hver er á bak við skilaboðin
mbl.is Leynihópurinn gleður á Patró
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dæmigerð vinnubrögð nefnda.

Ég hef velt fyrir mér hverju þessi "rannsókn" á að skila,fórnarlömb þessa sorglega máls eru öll orðin fullorðin og hafa þurft að lifa með þessu fram að þessu,væri ekki nær að gera eitthvað fyrir þau ef hægt er,frekar en að velta sér upp úr af hverju og vegna hvers þetta skeði, og var látið viðgangast,opinbera kerfið hefur aldrei lært af reynslunni,og kemur ekki til með að gera það heldur í þetta sinn,þótt einhver nefnd  sé skipuð.

Íslenskir embættismenn margir hverjir,haga sér eins og kóngar í ríki sínu,og komast upp með það,það virðist vera afskaplega lítið um að eftirlit sé haft með kerfinu,ég hef altaf haldið að embættismannakerfið væri,(eða ætti að minnsta kosti að vera)undir eftirliti hinna ýmissu ráðuneyta og þar með undir stjórn viðkomandi ráðherra sem ætti að bera lokaábyrgð á því sem gert er í nafni þess.En þá byrjar sandkassaleikurinn, ekki benda á mig,málinu drepið á dreif fram og aftur í kerfinu,að sjálfsögðu án ábyrgðar,og þegar liðið er komið út í horn, er sett á laggirnar nefnd til að rannsaka málið,sem kannski skilar af ser einhverri langloku sem enginn botnar í,  málið dautt og árangur af öllu saman núll. 

Ef svona rannsókn næði að skila því að einhver væri látinn taka pokann sinn þá mætti fara að vænta breytinga,en ég sé engin merki þess,ÁBYRGÐ er framandi hugtak fyrir ráðamenn þessa lands hvar í flokki sem þeir standa,VIÐ STÖNDUM HVAÐA BANANALÝÐVELDI SEM ER,FYLLILEGA Á SPORÐI Í ÞEIM EFNUM


mbl.is Breiðavíkurnefnd fær lengri frest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dæmigert mat dómara!!!!!

Það sannast eina ferðina enn, þegar dómarastéttin á í hlut, að þá er ekki sama,Jón og séra Jón,á sama tíma og fórnarlömb naugana og kynferðisofbeldis fá nokkrar krónur,stundum ekki neitt,þá eru t.d. þessum manni, dæmdar óskiljanlega háar bætur fyrir tiltölulega saklaus ummæli,sem þar að auki hann og allur meginþorri manna er búinn að gleyma þegar dómur fellur.

Mér finnst ljótt að tala illa um fólk,það skilar engum árangri,og er að öllu jöfnu mikið verra fyrir þann sem viðhefur þau,heldur en hinn sem fyrir verður.


mbl.is Fær 1,5 milljónir í bætur fyrir meiðyrði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skýring á "knattspyrnunefbroti

Þótti réttinum ósannað að fanginn hefði farið út fyrir það sem vænta mætti við iðkun knattspyrnu þegar leikmönnum hlypi kapp í kinn.

Að mati réttarins, er eðlilegt að ganga svo hart fram í leiknum,að stórmeiðsli geti hlotist af.

Það gilda sem sagt aðrar viðmiðanir um meiðsli íþróttamanna ef þeir eru að leika knattspyrnu.


mbl.is Fangi sýknaður af ákæru fyrir knattspyrnunefbrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er um nokkuð annað að ræða en bera þau.??......................................................

 Vilja bera brjóstin
mbl.is Vilja bera brjóstin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Putin lyginn?

Um persónuleg samskipti sín við George W. Bush Bandaríkjaforseta sagði Pútín þau vera góð. „Hann er áreiðanlegur samstarfsaðili og heiðursmaður.

VIÐ VITUM AÐ ÞETTA ER HAUGALYGI,AF HVERJU SEGIR MAÐURINN ÞETTA?


mbl.is Dregin upp mynd af Rússum „nýkomnum niður úr trjánum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar er aðhaldið,væri ekki hægt að spara þarna?

Er það ekki hámárk ósvífninnar að kalla inn varamenn,svo aðalmennirnir geti skroppið frá til að spila.eru engar reglur um innköllun varamanna, getur aðalmaður ákveðið það á eigin spýtur að kalla inn varamann.Ég tel víst að aðalmennirnir séu áfram á launskrá þótt þeir taki sér frí,varamaður fær 20 þús fyrir fundinn hvort sem hann er langur eða stuttur,ólíklegt´þykir mér að fundir í borgarstjórn standi allan daginn,ég væri himinsæll með þessi laun fyrir 8 tíma vinnuna mína.Dreg í efa að meðal fundaseta nái þessum tíma til jafnaðar.
mbl.is Inn og út af borgarstjórnarfundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eftir þennan lestur er ég ekki lengur hissa á Ástralíubúum.

Hef löngum verið undrandi á þessum afkomendum breskra glæpamanna,vegna afstöðu þeirra til hvalveiða okkar Íslendinga,en er það ekki lengur,las þessa frétt tvisar til að sanfærast um  að þetta væri ekki grín,hef áður bloggað um hvað mér finnst, allavega um ráðamenn þessa lands,er næsta viss um að þrátt fyrir allt geti leynst innanum ágætis fólk
mbl.is Hegðið ykkur vel í vinnunni um jólin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki alveg að sjá hvernig þetta sparar,og ef læknaritarar spítalanna

eru ekki starfi sínu vaxnir þar. er ekki fýsilegt fyrir verktaka úti í bæ að ráða þá.

Og hins vegar viljum við kanna hvort við fáum þetta á skilvirkari hátt og á hagkvæmari kjörum en ef við gerum þetta sjálf.

Eru ekki líkur á því þegar þetta er komið í einkavæðingarpyttinn,þá hækki verðið og þjónustan versni eins og raunin er með megnið af þeirri einkavæðingu sem framin hefur verið á síðustu árum.Nægir þar að nefna,t.d.Símann.Rarik svo aðeins stærstu dæmin séu tekin,en af nógu er að taka.


mbl.is Sjúkraskrár ritaðar úti í bæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju má hún ekki lesa erótískar sögur?

Mér sýnist þetta vera hin snotrasta kona og mynd hafa hið besta gaman af að hlusta á hana lesa erótíska sögu,vel að merkja ég geri verulegan greinarmun á erótískri sögu og klámsögu.

Fæ ekki skilið þessar hneykslunarraddir þótt konan lesi svona sögur, og enn síður vandlætinguna yfir því að hún muni fá greitt fyrir lesturinn.

Ég held að enginn myndi hneykslast á mér eða Jónu í næsta húsi þótt við gæfum okkur út í svona bissnes,þannig að ef þú ert frægur verður þú að haga þér eftir einhverjum ímynduðum staðli sem almenningur setur hverju sinni,ef þú ert ekkifrægur,þá máttu næstum því haga þér að vild.


mbl.is Prinsessan las erótísk ævintýr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband