Færsluflokkur: Dægurmál

Það eru ekki heilbrigðir einstaklingar sem svona gera.

Jafnvel þótt bæði þeir og aðrir haldi að svo sé,það er  gersamlega allt á móti svona verknaði,þetta þjónar ekki einu sinni skemmdarfýsn,þetta er örugglega mjög vanheilt og vansælt fólk sem svona gerir,svo er bara spurning hvort eða hvenær það leitar sér hjálpar.Ég er alveg sammála lögreglunni svona á ekki að sjást um jólin ,og raunar aldrei.
mbl.is Skemmdarvargar á Reyðarfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er eitthað til, sem er öruggt í þessu landi. nema morð og ofbeldi?

Svona frétt er eiginlega bara skondin,þótt það sé ekki hlægjandi að stríðógnunum sem hrjá þetta land og hafa gert svo lengi sem elstu menn muna.

Ég meina, fyrirsögnin er eiginlega öfugmæli,þarna er hver höndin upp á móti annari,og ættflokka erjur landlægar,sem hljóta að ógna öryggi landsins einar og sér,þar sem margir þessir ættflokkar njóta stuðnings utanaðkomandi afla,og á ég þar við t.d.,Bandaríkjanna,Rússa,Kínverja og annara landa sem telja sig hafa hagsmuni af því að styðja við bakið á einhverjum af þessum smákóngum sem bygggja þetta land.

Tveir menn ógna ekki öryggi lands,ef þeir gera það þá eru þeir með sterkan aðila á bak við sig,sem hlýtur að vera einhver ríkisstjórn sem finnst hagsmunum sínum ógnað.

Flest stríð sem eru í gangi i dag má beint og óbeint rekja til Bandaríkjanna , Rússlands og Kína .Þessi lönd eru með allar klær úti til að halda í hlunnindi,pólitísk áhrif, og  annað sem þeim má að gagni verða á þessum átakasvæðum.

Þeim er yfirleitt skítsama um almenning í viðkomandi lödum.


mbl.is Tveir Bretar handtekir í Afganistan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orkusparnaður hjá Orkuveitunni ?

og sjö viðbragðsteymi .Ekki hafði ég hugmynd um að orkustofnun væri búin að taka þarfasta þjóninn í notkun,en það hlýtur að vera fyrst þeir eru með öll þessi teymi,í mínu ungdæmi var algengt að tveim hestum væri beitt fyrir erfiðari tæki svo sem sláttuvélar,og var þetta par yfirleitt kallað teymi og þetta orð ekki notað yfir annað,en í seinni tíð hefur einhver snillingurinn rekist á þetta orð einhversstaðar og fundist tilvalið að slá um sig með því ,trúlega án þess að vita um merkingu oðsins,og nú eru allskonar flokkar og vinnuhópar kallaði teymi....Það er lengi hægt að teyma fólk á asnaeyrunum.   
mbl.is Fylgst með orkunotkun um jólin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólalög ! Hvað er það ?

Aðfangadagsmorgun,hef verið að velta fyrir mér í morgun spurningu sem oft hefur  leitað á þegar jólin nálgast.Og hún er ,hvað ræður spilun jólalaga í útvarpi allra landsmanna?,þáttastjórnendur þrástagast á því að ekki MEGI spila jólalög fyrr en í fyrsta lagi eftir 1 des.

Hver bannar það,af hverju má ég ekki panta mér jólalag í þáttum sem bjóða upp á slíkt,þó á miðju sumri sé?Og af hverju fæ ég það ekki spilað?Af hveju eru þá sumar og vorlög ekki bönnuð eftir fyrsta vetrardag?Af hverju eru þá  trúarlegir  söngvar ekki bannaðir, nema á sunnudögum?

Svona mætti endalaust spyrja, ef á að fara að flokka tónlist eftri árstíðum og tilefnum,oft hefur RÚVINU tekist vel upp í þessum efnum en aldrei held ég, samt sem nú,,ég hef að vísu ekki neinar tölur um spilun jólalaga á RÚV,en í klukkutímum talið, það sem af er þessum mánuði eru þeir ekki margir,þeir eru mjög fáir,og miðað við aldur og fyrri störf eru líkur á að þau heyrist enn þá minna eftir daginn í dag.

Eru þessar "jólalagareglur" settar af stjórnendum hinna ýmissu þátta, eða er þetta ákvörðun dagsskrárstjóra,rekur hann þá sem spila mikið af jólalögum?

Það er tönglast á því að það verði að spila svona lög í hófi svo menn verði ekki leiðir á þeim,er meiri hætta á að verða leiður á þeim en síbyljunni sem dynur í eyrum manna allan ársins hring?

Ég opnaði fyrir "útvarp allra landsmanna" kl að ganga sex í morgun, kl 7 held ég að búið hafi verið að spila 3-4  jólalög,hitt var þessi sama graðhestamúsík sem spiluð er allan ársins hring.

Mér finnst tónlistarspilun rásar 2 einkennast að miklu leyti af því sem viðkomandi þáttastjórnendur hafa gaman af sjálfir,af hverju mátti Gestur Einar ekki  halda áfram með þáttinn Grátt í vöngum,var það vegna óánægju hlustenda eða var það vegna þrýstings frá Graðhestamúsíkmönnunum,fengu þeir minni tíma fyrir vikið?

Þykist þetta unga fólk sem ræðst í þessar stöður, þess umkomið að hafa tónlistarsmekk fyrir hlustendur vegna þess að þeir viti  ekki, á hvað þeir vilja hlustaÞa.

Það eru ekki allir landsmenn milli fermingar og þrítugs,smekkur manna fyrir tónlist breytist með aldrinum,og menn fara þá gjarnan að hlusta á öðruvísi músík,ætli að meirihluti þeirra sem hlusta á útvarp sé ekki komin yfir fertugt,og fyrir hverja er þá verið að spila rafmangsmúsík,og ýmislegt sem ég kann ekki að nefna,en finnst ekki minna mig neitt á tónlist,eins og þáttur sem ég heyrði ávæning af fyrir nokkrum kvöldum sem saman stóð af einhverjum rymjandi og stynjandi,sennilega mönnum,er þó ekki viss,og mismunandi barningi á trommur auk þess sem annað slagið rauk upp eitthvert geðveikslegt píp,þetta varði í klukkutíma eða meira,og þáttastórnandinn  hélt vart vatni af hrifningu yfir þessari frábæru músík,mér fannst lítið til koma, þetta virkaði á mig eins og útvarpið væri bilað.

En ég vil fá að heyra jólalög í útvarpinu,minnsta kosti á jólunum og helst bara þegar mig langar til.

 Þeim sem hafa nennt að lesa þetta óska ég árs og friðar.Kveðja  Ari

 

 


Snöggir piltar.

Þeir láta ekki að sér hæða sjúkraflutningsmenn á Akureyri,við útkall voru allir heima hjá sér, en samt liðu ekki nema 34 mínútur, þá voru þeir mættir á Húsavik að sækja sjúklingin.Ekki er ég viss um að allir geri sér grein fyrir því hvað þessir menn eru, ásamt lögreglu, slökkviliði  fljótir að bregðast við,og virðist þá litlu skipta hvort þeir eru á vakt eða í fríi heima hjá sér.

Sama er að segja um áhugamannaliðin, og björgunarsveitirnar,þeir eru mættir á svipstundu þótt þeir séu við vinnu sína hingað og þangað.


mbl.is Erill í sjúkraflugi undanfarna daga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afskaplega eru þetta viðkvæm farartæki.

Þeir ættu að fá framleiðanda pallbílsins sem ók á hreindýrin á Kárahnúkaveginum til að hanna þessa vagna.Það yrði meiriháttar slys ef svona lest keyrði á 13 Geitur að ég tali nú ekki um villisvín
mbl.is Lest í árekstri við villisvín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólafríið hans dugir ekki til þess,hann hefur engar burði til að koma með

trúverðugan röksturning,því hann er ekki til.
mbl.is Árni segist munu skila ítarlegum rökstuðningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er engin óvissa! Það er örugg vissa fyrir því að ALLT hækkar um og

upp úr áramótum, Mjólkursamsalan er búin að tilkynna hækkanir,Pósturinn ætlar að hækka póstburðargjöld um áramót,þetta er bara byrjunin eins og alltaf þegar kjarasamningar fara í hönd,þá keppast framleiðendur,innflytjendur,seljendur þjónustu  og aðrir, við að hækka vörur sínar og þjónustu,þannig að ávinningur þeirra verst settu stendur í stað ef þeir eru heppnir,en rýrnar þó oftar en hitt.
mbl.is Óvissa um framvindu verðlags á næsta ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um hvað er þessi frétt? Hvaða rugludallur skrifar svona?

Þetta er átta ára gamalt mál eftir fréttinni að dæma,ef konan varð fyrir skoti 1999,,en Clinton hjónin flytja ekki í nágrenni við meintan morðingja  fyrr en 2001,ég kem ekki auga á samhengið,,hvernig hefði þetta átt að geta haft einhver áhrif á öryggi þeirra hjóna,þar sem þau voru ekki flutt á svæðið?

Nágranni Bill og Hillary Clinton verið ákærður fyrir að skjóta konu sína til bana. Maðurinn var handtekinn á heimili sínu, sem skammt frá heimili Clintonhjónanna í Chappaqua í New York ríki.


mbl.is Nágranni Clintonhjónanna ákærður fyrir morð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimska eða hroki----nema hvoru tveggja sé!!!!!!!!!!!

Til hvers að skipa matsnefnd í svona málum,þegar við höfum á að skipa manni sem veit og kann mikið meira en venjulegir dauðlegir menn,hvað eru einhverjir fúskarar að semja umsagnir um menn og málefni sem þeir hafa ekkert vit á, þegar svona séní er annars vegar ?

Dýralæknirinn hefur talað,og lýst áliti sínu á þessari matsnefnd,sem hann gefur skít í,því RÁÐHERRANUM ER ÆTLAÐ AÐ SKIPA,en dómnefndinni að gefa umsögn,og ekki nein ástæða til að taka mark á henni,en rökstuðningur hans er veikur finnst mér,hann telur Þorsteini fyrst og fremst til tekna að hafa unnið sem aðstoðarmaður Björns Bjarnasonar,spurning hvað það vegur þungt þegar málið er skoðað faglega.

Hann lítur alveg franhjá þeirri flokkun sem matsnefndin styðst við,og er í fjórum liðum,Mjög vel hæfur,Vel hæfur,Hæfur og Óhæfur,þrír umsækjendur fá einkunina Mjög vel hæfir,og tveir fá Hæfirog er þorsteinn annar þeirra og er ráðherran mjög ósammála þeirri skilgreiningu án þess að rökstyðja það með haldbærum rökum.

Ég þekki störf Þorsteins ekki neitt,og hef þar af leiðandi ekki myndað mér neina skoðun um hann,hann er sjálfsagt vænsti piltur,en miðað við álit sumra sem um þetta hafa tjáð sig og finna honum helst til foráttu að vera sonur Davíðs Oddsonar stendur hann kannski ekki vel að vígi,ég legg engan dóm á hann þess vegna,hann verður að fá að sanna sig strákurinn.

En þrátt fyrir það verður ekki komist hjá því að finna einhverja fjandans lykt sem sem stundum gýs upp þar sem Sjáfstæðismenn véla um mannaráðningar.


mbl.is Gagnrýna skipun í dómaraembætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband