Færsluflokkur: Dægurmál

Gagnast þetta fleirum en hagstjórninni og bönkunum....................Jú

Lífeyrissjóðirnir telja sig komast í mikil vandræði ef verðtrygging verður afnumin,

 Sú verðtrygging sem þegar er komin á heldur sér að sjálfsögðu en menn þyrftu að horfast í augu við framtíðina ef engir pappírar eru lengur til á markaði sem eru verðtryggðir. Það breytir aðeins stöðunni.

Segir Árni Guðmundsson framkvæmdastjóri Gidis-lífeyrissjóðs.Sem sagt að hans mati eru þetta slæmar hugmyndir,þá þarf nefnilega að fara að vinna fyrir kaupinu sínu,vera á tánum og fylgjast með penigamarkaðinum.

Hvernig fara aðrar þjóðir að,eftir því sem, ég kemst næst erum við ein örfárra þjóða sem notast við þetta kerfi ,sem í fljótu bragði virðist fyrst og fremst hafa gagnast bönkunum í gegnum tíðina,það hljóta að verða viðbrigði fyrir þá, ef þeir þurfa að fara að taka einhverja áhættu hér innanlands,eins myndi ríkið missa mikilvægt hagstjórnatæki,þar sem verðtryggingin hefur hjálpað þeim að viðhalda óráðsíu og ábyrgaðarleysi.Eg gef ekki mikið fyrir álit dýralæknisins á þessum málum,og nú fer að reyna verulega á stjórnendur lífeyrissjóðanna ef þeir þurfa að fara að fjárfesta á almennum markaði án verðtryggingar.


mbl.is Mikið álitamál hvort afnema eigi verðtryggingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarf alltaf að reikna með annarlegum hvötum?

Bónus gefur 25 milljónir til hjálparstarfs innanlands

Og hvað er í raun hægt að segja um það nema allt gott?

Samt eru einhverjir hér inni á Blogginu sem sjá einhverja annmarka á þessu,svo sem að Bónus sé ekki að gefa neitt ,hann fái þetta allt til baka vegna þess að úttektin er miðuð  við Bónusverlsanir.

Aðrir telja að miðað við heisíðuauglýsingar í dagblöðum sem kosti um 700 þúsund krónur,þá sé þetta ódýrt fyrir þá, vegna þeirrar miklu umfjöllunar sem þetta fær í öllum fjölmiðlum.

Mér finnst þetta frábært framtak sem þessi verslun á heiður skilið fyrir,vonandi að takist að úthluta þessu þannig að virkilega þurfandi fá notið þess,það er of mikið af, afætum sem eru tilbúnar hvar sem eitthvað bitastætt rekur á fjörur þeirra.

Ég heyri í fréttum að þriðja hvert barn í Bretlandi fengi ekki nóg að borða,sé lítið af mótmælum bresku stjórnarinnar,um það mál.

Öfugt við það sem hér gerist,hér er neyð þeirra sem verst standa afneitað kröftuglaga,af stjórnvöldum og hugmyndasmiðum þeirra.


mbl.is Bónus gefur 25 milljónir til hjálparstarfs innanlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverkonar framkoma er þetta.?

Það hefur hvergi komið fram að litli drengurinn sem ekið var á sé látinn,enn sem komið er hefur það ekki birst á neinum miðli sem ég hef skoðað.

ER mönnum ekki sjálfrátt,er þatta mál ekki alt saman nógu sorglegt. þótt ekki sé verið með svona þvætting sem engu tali tekur.

Miðað við þetta og mörg önnur mál sem fjallað er um á Blogginu,held ég að það væri hollt fyrir alla Bloggara að gera sér grein fyrir að þetta er ekki fréttamiðill,samt eru margir hér inni sem virðast halda að þeir séu í harðri samkeppni um að vera fyrstir með fréttirnar.

Hvað sagði ekki Einar Ben á sínum tíma,   AÐGÁT SKAL HÖFÐ Í NÆRVERU SÁLAR,  hafi þau átt við þá eigu þau ekki síður við í dag.

Einkunnar orð Bloggverja ættu að ver þau sömu.     AÐGÁT SKAL HÖFÐ Í NÆRVERU SÁLAR


Áskorun

Aðventu-átak.

 

Þórdís Tinna,  Moggabloggari númer eitt,  er engin venjuleg kona.

Hún er skemmtileg, alltaf að hjálpa öðrum og sér það jákvæða við nánast allar kringumstæður.

Eins og flestir vita, á hún við alvarleg veikindi að stríða. 

Það þarf ekkert að kynna Þórdísi Tinnu, svo þekkt er hún orðin fyrir að vera hún sjálf.

Nú er rétti tíminn til að sýna Þórdísi Tinnu stuðning í verki. 

Sýnum samstöðu og styðjum við hana og dóttur hennar, Kolbrúnu Ragnheiði, svo þær geti notið hátíðanna, lausar við fjárhagsáhyggjur.  Þúsundkall eða Fimmþúsundkall..... allt hjálpar.

 

Bankareikningur

0140-05- 015735.     Kt.101268-4039

 

Ég skora á aðra bloggara að taka þátt og birta samskonar færslu á sinni síðu.


Hjátrú og hindurvitni.

Ekki man ég hvenær ég las eða heyrði fyrst um Snjómanninn en sögusagnir um hann voru ansi lífseigar á síðustu öld,og kannski fyrr.

Margir leiðangarar hafa verið gerðir tilað finna þessa furðuveru án árangurs.

Einhvern tíman man ég eftir mynd sem átti að vara af fyrirbrigðinu en hún var svo óskír að hún gat verið af hverju sem var.

Á ofanverðri síðustu öld fór leiðöngurm að fjölga sem lögðu leið sína á Everst,og síða hefur ferðamönnum fjölgað þarna  jafnt og þétt,og ætti þessvegna að vera meiri líkur á sjá  Snjómanninn,en svo virðist ekki vera.

Hann sennilega forðast ferðamenn og er farinn að halda sig annars staðar nú um stundir.


mbl.is Fótspor snjómannsins ógurlega?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Láta hann bara dúsa í 4 ár.............Kannski þroskast hann eitthvað við það!

Kemur kannski vitrari út,og fer að stunda alvöru list.

  Þessir svokölluðu listamenn í dag, eru komnir svo langt frá öllu sem getur talist eðlileg hegðun, hjá sæmilega vitibornu fólki að það hálfa væri nóg.

Það er aumkunarvert að horfa á þessar hörmungar, sem þeir eru að bera á borð fyrir fólk og kalla listaverk.Síðan batnar það ekki ef einhver þorir að viðurkenna að hann skilji ekki listaverkið, og spyr hvað þetta eigi að tákna.

Þar með er búið að hrekja,listaspíruna út í horn þaðan sem hann á enga undankomuleið,tafsandi eitthvert óskiljanlegt rugl um innihald verksins. og þar fram eftir götunum.

Og afhjúpar þannig, að hann hefur í raun enga skýringu á "listaverkinu"


mbl.is Getur búist við 4 ára fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn eitt dæmið um getuleysi yfirvalda:

 Það er merkilegt að að yfirvöld standi ráðþrota gagnvart ólöglegu húsnæði sem virðist vera að aukast,lög og reglugerðir eru til um þessa hluti,og vandlegar skilgreiningar á notkun húsnæðis til hinna ýmsu nota.

En samt sprettur þetta upp eins og gorkúlur og enginn þykist geta tekið í taumana.

Slökkviliðið getur bent á það hvar svona starfsemi fer fram en það eru valdalaust og getur ekki bannað þetta.

Það eru skipulagsyfirvöld við komandi bæjarfélaga sem geta stoppað þetta ef vilji er fyrir hendi,skilgreindu atvinnuhúsnæði má ekki breyta til annarar notkunnar nema með leyfi,sem oftar en ekki er synjað,þar sem búseta manna inni á slíkum svæðum er óheimil

Ætla yfirvöld að bera ábyrgð á því ef kviknar í svona húsnæði og menn deyja vegna engra eldvarna eða flóttaleiða.

Dæmi er um svona húsnæði innst í verkstæðisbyggingu og eina útgönguleiðin í gegnum verkstæðið,og þarf ekki mikið ímyndunarafl til að geta sér til um hugsanlegar afleiðingar,

 

Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði íhuga að skilgreina eitt af gömlu iðnaðarsvæðunum í bænum sem athafnasvæði en á slíkum svæðum er leyfilegt að hafa starfsmannabústaði

 Verði svæðinu breytt opnast farvegur fyrir slökkvilið höfuðborgarsvæðisins að gera kröfur um úrbætur á húsnæði þegar þess er þörf. Það getur slökkviliðið ekki þegar um ólöglegt húsnæði er að ræða


mbl.is Leið til löglegrar búsetu?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverju breytti það?

Lögreglan hefur handtekið karlmann sem er grunaður um að hafa tekið fólk í gíslingu á kosnningaskrifstofu Hillary Clinton í Rochester.

 

Hillary Clinton var viðstödd veislu í Virginíu á meðan atburðurinn átti sér stað. Skv. frásögnum fjölmiðla hætti hún við að halda ræðu þegar fréttir bárust af gíslatökunni.


mbl.is Umsátursástandi lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tvær lestar rákust á?

Einhvernveginn finnst mér að þaðværi réttara að segja,tvær lestir rákust á,við búum ekki við járnbrautarlestir,en í minu ungdæmi var talað um Heybandslestir en ekki lestar.

Síðan má velta því fyrir sér hvort um árekstur eða ákeyrslu var að ræða,samkvæmt fréttum í útvarpi var sagt að farþegalest hefði ekið aftan á kyrrstæða vöruflutningalest


mbl.is Árekstur tveggja lesta í Chicago
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverskonar maður er það sem hagar sér svona?

Í fréttum sjónvarps í kvöld var sagt frá því að í Keflavík, hefði verið ekið á fjögurra ára dreng og ökumaðurinn stungið af frá vettvangi.Hverskonar maður kemur svona fram?,nógu slæmt er nú að verða fyrir svona óhappi,hvað þá að flýja svo frá öllu saman.

Hvað á maður að halda?,varla getur verið að viðkomandi sé með fullum fimm,var hann drukkinn?,undir áhrifum vímuefna?,eða hvaða annarlegu hvatir komu honum til að haga sér svona.

Vonandi nær litli drengurinn sér,enn ég á svo sem engar óskir handa ökumanninum,en varla getur verið mjög gaman hjá honum ef hann hugsar eitthvað.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband