Færsluflokkur: Dægurmál

Hvernig getur fall verið spennandi skref fram á við ?

Ætli Straumur-Burðarás hafi ekki frétt af KREPPUNNI???


mbl.is Fall: Spennandi skref fram á við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Seðlabankinn kominn í fjárhættuspil???

 Árinni kennir illur ræðari, þessi sígildi málsháttur kemur mér oft í hug þessa dagana, þegar þeir sem eiga að bera ábyrgð, stórnmálamenn, fjármálamenn, og aðrir þeir glæframenn sem sýsla við að hafa vit fyrir okkur, eru búnir að sigla öllu í strand, og benda svo í allar áttir. Sjáðu þetta er svona þarna og þarna o.s.frv.. Og þar með eru þeir búnir á finna eitthvað sem er verra og um leið koma sér upp einkunarorðunum  " Svo skal böl bæta, að finna annað verra."

 Þrátt fyrir að ríkið hafi yfirtekið Glitni er ekki gert ráð fyrir því að uppsagnir séu fyrirhugaðar hjá bankanum.

 Hvað segir þetta okkur,um ráðamenn seðlabanka og ríkisstjórnar?

Auðvitaðá að reka toppana ekki seinna en strax, þeir bera ábyrgina á þessu, það er út í hött að kenna ytri aðstæðum um. Þar eru allir á sama báti,og eiga jafna möguleika,það er ekli eins og allir séu að fara á hausinn, vel rekin fyrirtæki halda áfram. Það er fullt af mönnum sem hafa varað við þessari svokölluðu útrás, og þeim afleiðingum sem af þeirri stefnu gæti hlotist. Það voru úrtölumenn kallaðir.

Hvað gera t.d. eigendur knattspyrnuliðs  við þjálfara sem ekki nær árangri?   Það eina rétta í stöðunni hann fær pokan sinn 

 auk þess sem mánaðarlaun forstjórans, Lárusar Weldings, lækkuðu um helming, úr fimm milljónum í 2,5 milljónir.

Er þetta ekki maðurinn sem fékk nokkur hundruð milljónir bara fyrir að ráða sig í vinnu. Sem hann virðist ekki ráða við. En það er kannski vegna þess að hann var lækkaður í launum.  Það er ekki víst að svona illa hefði farið ef hann hefði fengið sínar fimm miljónir á mánuði. Eða hvað ?

Hvaða vinnuframlag þarf að inna af hendi til að fá svona laun og geta horft framan í fólk og sagt;

ÉG VANN FYRIR ÞESSU. Ætli þessir sömu menn vita hvað VINNA er ?


mbl.is Milljóna tap starfsmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kemur engum á óvart.

 

Þar ræður skinhelgin ríkjum, og amerískur aulahúmor.


mbl.is Gamanþættir gagnrýndir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver borgar partýið á endanum ?

 Hvað segja talsmenn einkavinavæðingarinnar nú ? Ekki var það ríkið sem sem rak þessa stofnun í þrot.

Voru það ekki Jakkalakkarir sem þóttust vera að "bjarga" íslensku efnhagslífi ?

Hvert hefur sú björgun leitt ?. Annað en í ógöngur og öngþveiti.

Manni finnst helvíti hart að á sama tíma og bankarnir eru að mergsjúga okkur með okurvöxtum, allskonar seðilgjöldum og flr, skuli ríkið þurfa að hlaupa undir bagga með þeim. Og þar með auka skuldir okkar ennþá meira.

Eru líkur á því að þessar blóðsugur séu tilbúnar að hætta flottræfilshættinum og fara að haga sér eins og venjulegt fólk ? Held ég geti svarað því strax, líkurnar á því eru minni en engar.

Úr viðtali við Davíð.

Aðspurður um launakjör helstu stjórnenda bankanna, en eins og fram hefur komið  hefur verið lögð mikil áhersla á endurskoðun á ofurlaun helstu stjórnenda fjármálastofnana í Bandaríkjunum við gerð björgunarpakkans svonefnda, segir Davíð að Glitnir hafi tekið vel á því í tíð núverandi stjórnarformanns, Þorsteins Más Baldvinssonar.

Þessi klausa hér fyrir ofan segir okkur ekki neitt. Þótt Davíð segi, að Þorsteinn hafi tekið vel á þessum málum síðan hann tók við stjórnarformennsku. Segir það okkur nákvæmlega ekki neitt, um laun æðstu toppanna, enda vilja fríðindi þeirra oft gleymast þegar launamál þeirra eru rædd.

Það hlýtur að verða krafa okkar eftir að ríkið er búið að taka ábyrgð á óráðsíunni. Að laun þessara manna verði færð í þann farveg, að hægt sé að leiða líkur að því að þeir hafi unnið fyrir þeim.

Það er greinilegt af því sem fram hefur komið að þeir hafa ekki verið að vinna fyrir laununum sínum fram að þessu. Spurning hvort þeir geti unnið fyrir launum á almennum vinnumarkaði.


mbl.is Glitnir hefði farið í þrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lögreglustjórafélag Íslands ???

Hvað er það ?  það er ekki stéttarfélag ef svo væri ætti það að styðja sinn mann, er þetta svokallaða stéttarfélag ekki til heimils hjá Ólafi hlandspreng ?, stofnað fyrir nokkrum mánuðum. Trúlega til að undirlægjur dómsmálaráðherra getið borið saman bækur sínar og samræmt jákórinn.
mbl.is Styðja dómsmálaráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geir sagði ! Geir sagði ! Geir sagði ! Já hvað sagði hann?

Þessi frétt staglast á þessu Geir sagði. En hvað sagði hann;? nákvæmlega ekki neitt. Ég held að allir séu jafn nær sem lesa þessa frétt. Það er alltaf sama tuggan, ríkisstjórnin  með  allt undir kontrol og ástandið sé ekki eins slæmt og okkur finnst, og lagist meira og meira. Hvað er hann búinn að endurtaka oft þessa rullu síðastliðin misseri???
mbl.is Ekki rétt að tala um kreppu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjármálaráðherra vill koma á vistaböndum. Afturhvarf til fortíðar ?

Hrokafullur og laus við allt sem heitir að ræða málin,tekur fjármálaráðherra þann pól í hæðina að kæra ljósmæður, fyrir ólögmæt verkföll. En við skulum ekki gleyma því að hann hefur fyrirmyndina frá núverandi forsætisráðherra sem beitti sér fyrir því í fjármálaráðherratíð sinni, að láta breyta lögum þannig að ríkið ætti hægara með að kúga þá opinbera starfsmenn sem ekki sættu sig við að sitja og standa eins og fjármálaráðherra vildi. Ef það er meginstefna sjáfstæðismanna að semja ekki; bara kúga til hlýðni þá fer að verða erfitt fyrir ríkisstarfsmenn að ná fram leiðréttingum. Ég er ekki lögfróður og fæ þess vegna ekki séð hvernig þeir ætla að fara að. Eftir því sem ég kemst næst liggur ekki félagsleg ákvörðun að baki þessum uppsögnum.  Mér líst ekki á blikuna, ef t.d. ég og samstarfsmenn mínir ákvæðu að segja upp vegna þess að við værum óánægðir með kjör,að þá yrðum við kærðir fyrir samráð. Er ekki málfrelsi í landinu?? Guð hjálpi ríksstarfsmönnum þegar þriðji fjármálaráðherra sjáfstæðismanna tekur við.


mbl.is Gæti orðið erfitt fyrir ljósmæður að vinna málið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afætustofnunum myndi fækka.

Alexander Þórisson framkvæmdastjóri Alskila heldur því fram að ekki séu allir sammála því að fella seðilgjöld niður. Rök hans gegn niðurfellingu eru afar hæpin, ég sé ekki hvaða máli það skiptir hvort fyrirtækin sjálf innheimti þessi gjöld, eða hans fyrirtæki. Á endanum erum það við sem borgum, þar sem í langflestum tilvikum er búið að leggja þetta gjald á vöruna þegar hún er afhent. Málið er að AFÆTUSTOFNUNUM, myndi fækka eitthvað og þar með yrði hann og hans líkar að fara að leita sér að vinnu.

 

 

 


mbl.is Ekki allir sammála um afnám seðilgjalda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrein snilld.

Vildi að mér hefði dottið svona í hug. Inntakið í sögunni passar nákvæmlega við þessa alþingismenn okkar.
mbl.is Þingmenn fá Animal Farm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hinir vammlausu ???

Í mars á síðasta ári voru voru lögð fram drög að reglum um  fjárhagsleg hagsmunatengls alþingismanna.voru þessi drög send öllum þingflokkunum. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og ekkert bólað á vitrænum svörum frá þingflokksformönnum, nema VG sem vill að þessar reglur verði harðari og lögfestar svo hægt verði að framfylgja þeim.

Þegar rætt er við hina þingflokksformennina eru þeir allir komnir með " Villaminni "og muna ekki hvers vegna þeir eru ekki búnir að svara þessu bréfi.

Svo er sama þvælan, Lúvík Bergvinsson vill reglur en fer ekki nánar í þá sálma. Kristinn Gunnarsson telur þetta vitleysu og í rauninni sé engin þörf á svona reglum, Sif Friðleifsdóttir segir að sinn flokkur sé með allt svona uppi á borðinu.

 Arnbjörg Sveinsdóttir vill ekki að reglurnar verði bundnar í lög, þar sem þingmenn séu fyrst og fremst ábyrgir gagnvart kjósendum sínum. Mér finnst nú þessi ummæli bera með sér að hún sé einmitt að bregðast kjósendum sínum með því að vilja ekki lögbinda þetta.

Þingflokkur sjálfstæðisflokksins virðist vera á þessari skoðun, því í pistli sem ég las á heimasíðu Sigurðar Kára Kristjánssonar, heldur hann því fram að engin spilling sé í stjórnmálum á íslandi.???

Dæmi svo hver fyrir sig um það...  Dæmin sýna okkur svo ekki verður um villst að þingmenn eru fljótir til að setja allskonar lög og reglur fyrir land og þjóð, en vilja, og telja jafnvel að þeir eigi að vera undanþegnir slíku.

Við hvað eru þingmenn hræddir af hverju geta íslenskir þingmmenn ekki samþykkt reglur sem virðast vera ráðandi í samanburðalöndunum.? Tilhvers er valkvæð regla ? Er hún ekki sýndarmennska. 'ymislegt fleiramætti spyrja sig að en nóg að sinni.

 

 

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband