Færsluflokkur: Dægurmál

Nú liggja Danir í því

Føroya Banki opnar útibú í Danmörku.

Það á ekki af Dönum að ganga,fyrst innrás Íslendinga inn á markað í Danmörku,og nú fylgja frændur okkar Færeyingar fast á eftri.Endar þetta ekki bara með því að fyrrum nýlenduherrar verða leiguliðar okkar og Færeyinga??????


mbl.is Føroya Banki opnar útibú í Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útlit fyrir frekari lækkun á heimsmarkaðsverði á olíu

Hvort nota sjálftökufurstarnir þetta til hækkunar eða lækkunar????????
mbl.is Útlit fyrir frekari lækkun á heimsmarkaðsverði á olíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flottræfilsháttur

Frekarfinnstmér það ódýrt hjá Kaupþingsmönnum að bjóða öllum landsmönnum til tónleika í Laugardalnum,þetta gildir í mesta lagi fyrir stór Reykjavíkursvæðið og búið,efast reyndar um að Laugardalsvöllur rúmi nema lítinn part af þeim sem búa á svæðinu hvað þá öllu landinu.Mér finnst að ef þá langaði til að halda upp á afmælið með hætti sem munað yrði eftir hefðu þeir átt að láta það fé sem fer í kostnað vegna þessara tónleika renna til einhverra sem hefðu virkilega þörf fyr aðstoð,og þeir eru margir á þessu landi.Mitt álit er að þegar til lengri tíma er litið verði þessara tónleika minnst frekar í neikvæðum tón samanber yfirskriftina.
mbl.is Undirbúningur Kaupþingstónleika í fullum gangi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sankti Sturla

Alveg hafa þeir farið á kostum í dag sálufélagarnir og flokksbræðurnir Sturla og Árni,Sturla í því að reyna að koma fólki til að trúa því að hann sem fyrrverandi samgöngumálaráðherra geti á engan hátt borið ábyrgð á Grímseyjarferjuklúðrinu,það sé vandamál núverandi samgöngumálaráðherra .Hvernig sem það má nú vera þar sem hann er ný tekin við embætti.Það er frekar ódýrt að skýla sér á bakvið það að ráðherra verði að treysta  undirmönnum sínum og geti ekki fylgst með öllu sem er að gerast.

Svo kemur Dýralæknirinn og segir að engin skaði sé skeður það séu til nógir peningar,ef tiltekin upphæð nægi ekki í eitthvert verkefni megi taka það sem á vantar úr einhverju öðru verkefni.Hann hélt fram í fréttum í kvöld að það væri engin skaði skeður, og það fé sem búið væri að leggja í ferjuna væri innan ásættanlegra marka og allt benti til að þetta yrði ódýrari kostur en nýsmíði. Ekki veit ég hvar þeir félagar ala manninn dags daglega eða á hvað þeir hlusta,en þeir eru greinilega ekki að hlusta eftir því sem atkvæðunum þeirra finnst um framgang þeirra í þessu máli.En það er greinilegt á orðum Árna að hann stendur dyggilega við bakið á flokksbróðir sínum og reynir að berja í brestina fyrir hann.


Hvar býr Gunnar Birgisson ??

Þegar ég las neðanskráða klausu varð mér hugsað til þess hvort það gæti verið að Gunnar búi ekki í Kópavogi.Það eru búin að vera endalaus mótmæli og fundir samt er hann efins um að bæjarbúar séu á móti stækkununni.

 

Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri sagði að það kæmi sér á óvart hversu hávær gagnrýnin væri. Fyrirætlanirnar hefðu legið fyrir á aðalskipulagi og sú mynd sem samtökin drægju upp af áhrifum þeirra væri verulega ýkt. Sagðist hann fagna athugasemdum og gagnrýni sem fram kæmi um skipulagið, þær yrðu hins vegar að vera sanngjarnar og á rökum reistar. Fyrir liggur deiliskipulagstillaga um stækkun hafnarinnar og sagði Gunnar að farið yrði yfir athugasemdir íbúa vegna hennar. Ef í ljós kæmi að íbúar væru á móti stækkuninni þá yrði hún ekki framkvæmd


mbl.is Kópavogshöfn verður ekki stækkuð gegn vilja íbúanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verklagsreglur brotnar/ Hvað á þá að gera???

Samgöngumálaráðuneytið sendi frá sér yfirlýsingu vegna greinargerðar Ríkisendurskoðunar sem inniheldur meðal annars neðanskráða klausu.

Tekið verður á því með viðeigandi hætti og í samræmi við góða stjórnsýslu."Grin

Spurning  hvernig er þessi viðeigandi háttur? og hvað er góð stjórnsýsla í þessum efnum?

Eini maðurinn sem rætt hefur verið við og talið sig og sína stofnun bera ábyrg er Jón Rögnvaldsson Vegamálastjóri,allir aðrir fara undan í flæmingi og telja þetta þurfi rannsóknar við sem er hverjum manni augljóst.En er ekki nokkurn vegin vissa fyrir því að þegar upp verður staðið þá verðum við að borga brúsan, en þeir sem stóðu fyrir klúðrinu halda sínum stöðum eins og ekkert hafi í skorist.

Það er spurning hvort Kári eigi ekki að fara að leita að Ábyrgðargeninu sem yrði þá kannski hægt að græða í stjórnmálamenn ef það finnst.?Það virðist vera sama hvern fjandann þessir karlar gera alltaf koma þeir gleiðbrosandi og glaðhlakkalegir fram fyrir alþjóð  og telja að þetta hafi allt verið misskilningur.


mbl.is Verklagsreglur samgönguráðuneytisins brotnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig mannar maður áhafnir??????

Spyr sá sem ekki veit
mbl.is Lystisnekkjur nýr valkostur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvenær er maður laus undan ábyrgð????

Einar Hermannsson, skipaverkfræðingur, sagði í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins, að hann hafi ekki komið að málefnum nýrrar Grímseyjarferju í meira en eitt ár...............Er þetta ekki maðurinn sem var ráðgefandi fyrir Vegagerðina í þessum kaupum,sé ekki að hann sé laus undan ábyrgð þótt hann hafi ekki komið að þessum málum upp á síðkstið.
mbl.is Segir samgönguráðherra gera sig að blóraböggli í málinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ferjuslys??????????

  Grímseyjarferja  Vandamálin má rekja til ófullnægjandi undirbúnings.

Það hefur verið athyglisvert að fylgjast með fréttum af svokallaðri Grímseyjarferju og hvernig að þeim málum hefur verið staðið.Eins og venjulega þegar ríkið á í hlut er farið að leita að einhverjum sem kenna má um þessa handvömm.Ég fann strax sökudólgana og þá sem bera ábyrgð á þessu,það eru Ríkisendurskoðun og Vegagerðin,þessar stofnanir hunsuðu álit starfsmanns Siglingamálastofnunar sem kom því til skila á tiltölulega vel skiljanlegu mannamáli að þetta skip væri sem næst því að vera ÓNÝTT. Samt reyna þessar stofnanir að klóra yfir skítinn að vanda með því að kenna öðrum um.Meðal annars er tönnlast á því að kröfur Grímseyinga og áhafnar Sæfara hafi gert sitt til að hleypa kostnaði úr böndunum,gaman væri að fá að vita hvaða kröfur það eru,en það kemur ekki fram í varnarskjali þessara ríkisstofnana.


mbl.is Vandamálin má rekja til ófullnægjandi undirbúnings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðkirkja

Á hvers framfæri er Þjóðkirkjan ef ekki ríksins?????Það kom fram nú í hádegisfréttum að siðanefnd þjóðkirkjunnar hefði sýknað Hjört Magna af kæru "áttmenninganna"en samt væru ýmsar ragnfærslur hjá honum varðandi kirkjuna,til dæmis að hún væri á framfæri ríkisins sem ekki væri rétt,því vaknar sú spurning á hvers framfæri þá?

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband