Færsluflokkur: Dægurmál

Útsog

Heldur finnst mér nú ósmekkleg athugasemd "hallzen" um konuna sem fórst í Reynisfjöru,ber ekki með sér að viðkomandi hafi náð fullum þroska,og þaðan af síður að hann viti hvernig öldugangur og útsog við land getur hagað sér.Þarna sem og víða annarsstaðar vantar góðar merkingar vegna þess að meginþorri fólks sem er að koma á svona staði gerir sér enga grein fyrir því hvað hættulegt getur að fara of nálægt fjöruborðinu.

Eftir Kosningar

Angry   Af hverju er Jón Sigurðsson svona reiður núna allt í einu? Getur það verið vegna þess að hann er orðin atvinnulaus? Sér núna að hann hefur veðjað á kolrangan hest og hefði betur verið áfram í blýantsmusterinu við Kalkofnsveg Woundering   

Vangaveltur

Hvernig stendur á því að varðhundar ríkisguðsins eru svona reiðir út í fríkirkjuprestinn?Varla ætti öllum prestaskara landsins að stafa mikil hætta af einum manni,er það kannski vegna þess að þeir standa höllum fæti gegn þeirri gagnrýni sem hann hefur sett fram á ríkiskirkjuna? Ekki veit ég neitt um það en amma mín heitin sagði oft, sannleikanum er hver sárreiðastur. 

Nú á víst að fara að koma Wilson Muuga á flot og ekkert nema gott um það að segja,og þó, ég er ekki hrifin af því að þurfa að taka þátt í kostnaðinum,mér finnst að í þessum efnum ætti þetta að vera alveg á ábyrgð eigenda,það er ekki okkur skattborgurum að kenna að svona fór.Eða eigum við bara að láta sem ekkert sé og vona að það gangi bara betur næst?

Þjóðin þarfnast reynslu og þekkingar hinna eldri segir Geir,hvað er það búið að taka hann mörg ár að komast að því?

Hestur hljóp á hús,knapinn fluttur á sjúkrahús,hvað varð um hestinn?


Hafís yfir landið

úr Fréttum Mbl í dag..Gervihnattarmyndin yfir vestfjörðum sýnir  hvernig hafísinn hefur teygt sig   "yfir" landið


Hvað hef ég nú gert?

Var að skoða mig um í bloggheiminum og sá ástæðu til að hæla síðu sem ég var að skoða,þá var boðið uppá þennan kost svo ég ákvað að láta slag standa og skrá mig hvað sem framhaldið verður í þessu.'Eg hef skoðanir á ýmsum málum og máski viðra ég þær hér en það kemur í ljós,mér sýnist að í þessum bloggheimi sé ekkert heilagt öll mál og málaflokkar tekin fyrir hér og skoðanirnar og álitin í samræmi við það.

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband