Hvar var Gísli Marteinn??

 

Vissi borgarfulltrúi Björn Ingi Hrafnsson ekki að með því að samþykkja samrunann var hann að láta fjölda milljarða renna til manna sem hafa stýrt Framsóknarflokknum undanfarin ár,” sagði Gísli Marteinn.

Var Gísli Marteinn ekki á þessum fundi??

Getur einhver útskýrt fyrir mér hvernig Björn Ingi gat haft meira vægi í fráfarndi borgarstjórn,en sjö fulltrúar sjáfstæðismanna?????????????


mbl.is Gísli Marteinn: Milljarðar renna til manna sem stýrðu Framsóknarflokknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað eiga þau að eyða mörgum miljónum til að læra af mistökum.

Í utandagskrárumræðu um fjárheimildir til endurnýjunar Grímseyjarferjunnar á alþingi í dag var Birkir Jón Jónsson harðorður í ræðu sinni."Ætlar enginn að viðurkenna ábyrgð sína í þessu máli?",spurði Birkir.

Er Birkir ekki formaður fjárlaganefndar alþingis,eða var hann það?,skiptir samt ekki öllu máli hann hefði getað opnað sig fyrr ef hann er hvítþveginn af þessari hneisu.

Aftur á móti geta fjármálaráðherra og fyrrverandi samgönguráðherra ekki skafið af sér skítasletturnar í þessu máli,þótt þeir rembist eins og rjúpan við staurinn að benda á einhverja aðra. Báðir þessir ráðherrar hafa sýnt ótrúlegt dómgreindarleysi í þessu máli og reyndar fleirum og virðist sem þeim sé fyrirmunað að skammast sín,( enda ekki sterkasta hlið stjórnmálamanna) mér finnst oft á tíðum þegar ég heyri í fjármálaráðherra að það orki tvímælis hvort óhætt væri að treysta honum fyrir einföldum heimilisreikningi,hvað þá ríksisreikningunum.

Og síðan er reynt að drepa málinu á dreif,með svona frasa..Árni sagði jafnframt mikilvægt að læra af mistökum sem hafi verið gerð og horfa fram á við.

Og bergmálið lét ekki á sér standa 

Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður samgöngunefndar tók svo undir orð fjármálaráðherra og hvatti til þess að lært yrði af mistökunum.

Þetta er  dýr lærdómur,  ég held að hann geti ekki leitt til annars, en þetta fólk ætti að sjá sóma sinn í því að hætta þessu vafstri í pólitík,og snúa sér að einhverju sem ekki yrði svona dýrt fyrir þjóðina.

mbl.is Birkir Jón Jónsson: Ríkisstjórn og Alþingi leynd mikilvægum gögnum um Grímseyjarferjuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Björn Ingi galdramaður ???

Eins og ég hef sagt hér áður hef ég ekki verið hallur undir Framsóknarflokkinn og er svo enn,það fara nú samt að renna á mig tvær grímur,og sennilega tímabært að fara að endurskoða það mál,miðað við afrek Björns Inga í borgarstjórninni.

Það eru slöpp meðmæli með borgarstjórnarmönnum Sjáfstæðisflokksins að hann einn skyldi getað vafið þeim um fingur sér,eða ég skil málflutning þeirra þannig.Einn á móti sjö er ekki lítið afrek,Hvað voru þessir sjö menn að gera EF það er satt að þeir viti ekki almennilega hvað sé um að vera.Ekki hafði hvarflað að mér að bláa höndin væri svona báeygð,að láta einn mann plata sig upp úr skónum.Að skrifa undir eitthvað sem maður hefur ekki lesið lýsir fullkomnu dómgreindarleysi,og svoleiðis menn ættu að sjá sóma sinn í því, að biðjast afsökunar á gjörðum sínum,og hætta síðan hið snarasta.

Það hlýtur að vera lágmarks krafa að fulltrúarnir séu læsir á enska tungu ef þeir skrifa undir samning á því máli,og ef þeir skilja ekki ensku (sem má efast um) þar sem þeir skilja ekki íslensku,ja þá eru þeir orðnir atvinnulausir að mínum dómi.

Þetta mál virðist allt ein flækja fyrir þeim hvort sem er á íslensku eða ensku,en endilega fráfarandi borgarfulltrúar munið að hinn almenni kjósandi er ekki fífl þótt hann hafi kosið ykkur,þvert á móti hélt hann að þau loforð sem þið gáfuð fyrir kosningar myndu standa,það yrði unnið eftir þeim en ekki einhverjum pólitískum hrossakaupum um stjórnir og stöður.

Og endilega, ekki reyna að telja okkur trú um að einn maður í borgarstjórninni hafi afrekað alla þessa vitleysu hjálparlaust.

Hefðu þið verið í vinnu hjá mér,hefði ég rekið ykkur snúningalaust fyrir slæleg vinnubrögð

Legg svo til að stórnmálamenn beri ábyrgð á gerðum sínum og athöfnum


Bloggfærslur 16. október 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband