Svo verður hver að liggja sem hann hefur um sig búið !!!

Einhvern vegin virðist mér sem "leiðtoginn" hafa hjálpað vel til, við að stinga sig í bakið, það virðist vera fremur djúpt á siðferðisvitund þessa manns ef við tökum svör hans í sambandi við fatakaupin sem dæmi. Mætti þá ekki búast við samkonar sjónarmiðum gagnvart viðlíka málum, ef hann héldi áfram í pólitík ?

 Framsóknarflokkurinn þarf ekki á óvinum að halda, hann sér um þá hlið mála sjálfur með Guðjón Ólaf Jónson í forsæti, sýnist sá drengur hafa skotið sig illilega í fótinn ef hann hefur haldið að "jólaguðspjallið" hans yrði honum og flokknum ti framdráttar. Það eru mörg mannanna meinin og mistökin í pólitíkinni.


mbl.is Mikið áfall fyrir Framsóknarflokkinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Handvömm hvað annað ?

Loksins opinber embættismaður sem reynir ekki að skýla sér á bak við, mistök eða misskilning,heldur nefnir hlutina réttu nafni. Handvömm segir hún og það er rétta orðið yfir svona fljófærnislegan gerning. Nú er spurning hvort Kristín Hrefna heldur áfram á þeirri braut að nefna hlutina réttum nöfnum, eða er þetta bara tilviljun ? 


mbl.is Skipuð formaður barnaverndarnefndar að henni forspurðri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 25. janúar 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband