9.1.2008 | 11:51
Leikur hennar er ekkert annað en frábær snilld ?
Get ekki betur séð en frúin sé á grænni grein. þótt hún nái ekki útnefningu til forsetakjörs.
Eftir þessa leiksýningu hljóta Hollyvood leikstjórar að rífast um að fá hana í hlutverk, sjaldan séð betri útfærslu, og tímasetningu á krókódílatárum.
![]() |
Gáfu tárin Clinton byr? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.1.2008 | 08:23
Baldursgötureitur ! = Braskreitur ?
Byr búinn að lána tæpar fjörutíu miljónir út á ónýt hús.
Kanna lánastofnanir ekki sjálfar ásigkomulag þeirra eigna sem menn eru að taka lán út á?
Er nóg að mæta í jakkafötum með bindi og skjalatösku, ásamt mynd af nærliggjandi húsi sem lítur sæmilega út ?
Eru þeir kannski að fara út í hótelrekstur,standa þeir að baki Baldursgötu ehf ?
Baldursgata 32 hefur verið yfirgefið hús í tvö ár að sögn Helgu Láru og hefur útigangsfólk hafst þar við. Það virðist vera regla þegar gömul hús eiga í hlut, ef braskarar sjá sér hag í að kaupa, þá komast þeir upp með það að láta þau grotna niður, til að auðvelda sér eftirleikinn. þeir vita að í flestum tilvikum þegar þeir bera víurnar í svona hús, að það muni verða andstaða gegn niðurrifi þeirra. Þegar eignarhaldi er náð, þá eru þessi hús gjarnan höfð mannlaus, til að flýta fyrir hnignun þeirra. Og svo þegar þeir láta til skarar skríða, eru helstu rök þeirra að það sé nauðsynlegt að rífa þessi hús því þau séu ónýt.
Borgaryfirvöld standa sig ekki í þessum efnum, því þeir hafa úrræði bæði í reglugerðum og lögum til að skikka húseigendur til að hugsa sómasamlega um fasteignir sýnar.
"Mér blöskrar að borgin skuli vera að hampa mönnum sem ganga svona um eignirnar sínar,segir Helga Lára Þorsteinsdóttir , íbúi á umræddum Baldursgötureit,
.
![]() |
Lykt af braski í borginni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)