16.10.2007 | 22:44
Hvað eiga þau að eyða mörgum miljónum til að læra af mistökum.
Í utandagskrárumræðu um fjárheimildir til endurnýjunar Grímseyjarferjunnar á alþingi í dag var Birkir Jón Jónsson harðorður í ræðu sinni."Ætlar enginn að viðurkenna ábyrgð sína í þessu máli?",spurði Birkir.
Er Birkir ekki formaður fjárlaganefndar alþingis,eða var hann það?,skiptir samt ekki öllu máli hann hefði getað opnað sig fyrr ef hann er hvítþveginn af þessari hneisu.
Aftur á móti geta fjármálaráðherra og fyrrverandi samgönguráðherra ekki skafið af sér skítasletturnar í þessu máli,þótt þeir rembist eins og rjúpan við staurinn að benda á einhverja aðra. Báðir þessir ráðherrar hafa sýnt ótrúlegt dómgreindarleysi í þessu máli og reyndar fleirum og virðist sem þeim sé fyrirmunað að skammast sín,( enda ekki sterkasta hlið stjórnmálamanna) mér finnst oft á tíðum þegar ég heyri í fjármálaráðherra að það orki tvímælis hvort óhætt væri að treysta honum fyrir einföldum heimilisreikningi,hvað þá ríksisreikningunum.
Og síðan er reynt að drepa málinu á dreif,með svona frasa..Árni sagði jafnframt mikilvægt að læra af mistökum sem hafi verið gerð og horfa fram á við.
Og bergmálið lét ekki á sér standa
Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður samgöngunefndar tók svo undir orð fjármálaráðherra og hvatti til þess að lært yrði af mistökunum.
Birkir Jón Jónsson: Ríkisstjórn og Alþingi leynd mikilvægum gögnum um Grímseyjarferjuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.