2.2.2008 | 20:55
Furðulegt fyrirbæri Mannanafnanefnd
Hef oft furðað mig á röksemdum þessarar nefndar þegar hún er að samþykkja eða hafna mannanöfnum, mörg af þeim nöfnum sem hafa verið samþykkt eru svo heimskuleg að maður myndi ekki einu sinni nota það á hund. Eitt af þeim nöfnum sem ég skil ekki er kvenmannsnafnið Ilmur,er þetta ekki karlkynsorð, eða hvað ?, segir maður ekki að hann, ilmurinn sé góður ?, mér finnst það hljóma betur, en hún ilmurinn er góður
Piu og Sven hafnað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Mér finnst Ilmur fallegt nafn.
Mér finnst alveg merkilegur andskoti hvernig mannanafnanefnd er haldið við störf á meðan Ísland er að verða alþjóðlegur staður. Hvernig er hægt að skikka fólk til að heita nöfnum sem hægt er að beygja á íslenskan hátt. Meiri vitleysan.
Jóna Á. Gísladóttir, 2.2.2008 kl. 21:22
Mér finnst allt í lagi með nafnið,en mér finnst nefndin ekki vera samkvæm sjálfri sér í því að leyfa og hafna...
Kveðja
Ari Guðmar Hallgrímsson, 2.2.2008 kl. 21:28
Alveg sammála þér þar sem þessari nefnd hafa aukinheldur verið furðulega mislagðar hendur við að velja og hafna.
Kveðja
Ari Guðmar Hallgrímsson, 2.2.2008 kl. 22:01
Sæll Ari. Skemmtilegur pistill. Orðheppinn að vanda. Þessi nefnd er ekki samkvæm sjálfum sér. Man að það kom einhvern tímann upp algjört rugl og þau vildu banna nöfn sem höfðu viðgengist hér til fjölda ára. Því miður man ég ekki nöfnin en þetta hefði verið efni í Áramótaskaupið.
Rósa Aðalsteinsdóttir, 2.2.2008 kl. 23:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.