Hvern andskotan er viðskiftaráðherra að gera ???

Hvað er FME að gera ???. Hvað er ríkisstjórnin að gera???.Ég segi nú bara eins og barnið. Hvar eru allir???. Það rignir yfir mann fréttum af hverskonar spillingu í bankakerfinu,embættismannakerfinu flokkakerfinu, og-og-og !

Hópur lykilstjórnenda hjá Kaupþingi, með aflátsbréf frá sjáfum sér sem hvítþvo þá af öllum fyrri syndum,svo þeir geti haldið áfram fyrri iðju í bankanum og nú í algjöru skjóli ríkistjórnarinnar. Enda er það nauðsynlegt því, þeir verða að vera með pappír uppá hreint mannorð.

Það þarf að mínum dómi meira en skrautritað a4 blað í svoleiðis hreinsun. Efast um að Atlanshafið dygði nema kannski til að skólpa mesta skítinn af þeim. Og fyrir sæmilega réttsýnt og heiðarlegt fólk verður alltaf skítalykt af þeim og þeirra stuðningsmönnum

 Í yfirlýsingu sem Nýi Kaupþing sendi frá sér í gær kemur fram að engin ákvörðun hafi verið tekin um uppgjör þeirra skulda sem ráðstafað hefur verið til bankans samkvæmt ákvörðun Fjármálaeftirlitsins (FME).er að ræða á fjórða tug einstaklinga og hluti þeirra starfar hjá Nýja Kaupþingi

Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra sagðist ekki hafa neinar upplýsingar um málið í gær en vissi að hvorki skilanefndir né nýjar bankastjórnir bankanna hafa tekið ákvarðanir um niðurfellingu krafna af þessu tagi.

Hvað er verið að gera þarna þrátt fyrir fagurgalan að hafa allt uppi á borðinu,meiri hluti rænigjaflokkins sem sat í bönkunum situr þar enn. ( Fer lögreglan kannski að hafa innbrotsþjófa og aðra glæpamenn sér til ráðgjafar þegar hún fer að rannsaka mál þeirra??? ), er virkilega svo mikill hörgull á hæfum einstaklingum í þessi störf að það þurfi að endurráða´"óreiðumennina".

Af hverju er engin ákvörðun tekin ? Það er sama hvar er borið niður sama svarið alls staðar, ( ef svar fæst ). Verið að skoða málið. Málið á svo viðkvæmu stigi. Mál einstaklinga ekki rædd. Ekki tímabært að leita sökudólga. Gefa okkur vinnufrið. Eintóm svona svör sem eru út í hött.

Er ekki bara unnið hörðum höndum bak við tjöldin að bjarga flokksgæðingum og reyna að breiða yfir tengsl stjórnmálaflokkana Mér sýnist nefnilega að það sé ekki mikill vandi að finna fólk í þessi störf,það er ekki vandfyllt í sæti þessara lygamarða og ræningja. Gætum örugglega fengið miklu hæfara fólk með því að fara í símaskrána og pikka út einhver nöfn.

Viðskiftaráðherra er alltaf haldið utan við allt, eða hvað? Aðspurður veit hann yfirleitt ekkert um málið eða hefur ekki upplýsingar. Er þetta ekki einmitt vettvangur hans ?, ætti hann ekki að vera með allt uppi á borði hjá sér viðvíkjandi þessum bankaránsmálum ?.

Að endingu í þetta sinn, hvað er svo búið að gera bitastætt í þessum málum, síðastliðnar 5-6 vikur???

 


mbl.is Þurfa ekki að greiða fyrir hluti í Kaupþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: ÖSSI

Ákvörðun um hvað...mér finnst ekki þörf á neinum ákvörðunum í þessu máli. Ef menn skulda eitthvað þá ber þeim að greiða það. Nú ef þeir geta það ekki þá eru þeir gjaldþrota eins og hver annar...

Ef þetta er rétt þá er mér mjög misboðið.....

ÖSSI, 4.11.2008 kl. 09:40

2 Smámynd: Sævar Einarsson

Þetta kallast á góðri Íslensku skattsvik, þjófnaður og bankarán. Skattsvik fyrir að borga 10% fjármagnstekjuskatt af arði hlutabréfa sem þeir áttu ekki, þjófnaður að stinga 90% af arðinum beint í vasann og bankarán að afskrifa skuldir sín á milli. Hvaða dóm ættu þessir menn að fá og hvenær ætli þeir verði dæmdir ?

Sævar Einarsson, 4.11.2008 kl. 10:44

3 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Ari minn.

Nóg af öðru fólki sem getur tekið við í bönkunum.

Nú er kominn tími til að hreinsa til og fá fagfólk sem er ekki gegnsósa af pólitískri spillingu.

Baráttukveðjur/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 4.11.2008 kl. 20:28

4 identicon

Sæll Ari minn, takk fyrir falleg orð í garð stelpnanna minna . En ég er líka algerlega sammála þér, þetta land okkar Ísland er farið að lykta af illri skítalykt ef satt skal segja .

Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 4.11.2008 kl. 21:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband