Hver bauð þeim um borð ?

 Sea Shepherd segir að mönnunum sé haldið gegn vilja sínum....

 


mbl.is Ásakanir á báða bóga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trúi ekki að Bretar skipti sér af þessu. Trú aftur á móti öllu á Ástralíustjórn...

Þeir eiga bara að sigla með þessa hryðjuverkamenn heim til Japans og draga þá fyrir dóm. Þeir eru réttlausir  þar sem þeir ráðast um borð í skip á alþjóða hafsvæði. Og þar að auki gerðir út af glæpamanni, sem gegnir furðu að skuli ganga laus. Ég hef aldrei botnað í þeirri linku sem sýnd hefur verið í málum Sea Shepard, þótt þau kenni sig við umhverfisvernd, eru þetta ekkert annað en glæpasamtök, og ef þeir sem styðja þá að málum eru það ekki líka, eru þeir í meira lagi einfaldir.

Bragð er að þá barnið finnur,segir máltækið. Önnur umhverfissamtök hafa sem minnst viljað hafa samstarf með þeim og það segir sína sögu...


mbl.is Liðsmenn Sea Shepherd teknir í gíslingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þurfa helst að eiga meira yfir höfði sér en ákæru...

Svona menn þarf að ákæra og dæma. Og dæma þá þungt. það er mikill glæpur að hringja í tíu ára barn og hóta því lífláti. Svon menn eru auðvitað sjúkir á sálinni, en það er engin afsökun fyrir svona glæp...
mbl.is Tíu ára syni Frakklandsforseta hótað lífláti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sinn er siður í landi hverju. og við það menn verða að sætta sig, Ætli þeir að ferðast

Mér finnst bara sjálfsagt að þær konur sem vilja vera berbrjósta fái að vera það,það er nóg af boðum og bönnum þótt ekki sé nú líka farið að stjórna klæðaburði fólks. Þeir sem ekki þola að sjá ber brjóst hvort sem það er karl eða kona, ættu að athuga hugsanagang sinn hann hlýtur að vera á einhverju vafasömu plani. Varðandi ummæli þessarar Magneu í Bláa lóninu,spyr maður sig hvað konan sé að meina, eiga gestgjafar að breyta venjum sínum og siðum, ef skeð gæti að eitthvað gæti farið í pirrurnar á gestunum.

Ég sætti mig alveg við það þegar ég er að ferðast, að ýmislegt er öðruvísi en ég á að venjast, og ég verð að sætta mig við það, ég valdi þennan stað eða land, og verð að taka því með kostum þeirra og göllum, ef eitthvað hneykslar mig sem ég sé eða heyri, þá er það mitt vandamál, ekki gestgjafanna.


mbl.is Ber brjóst bönnuð í lóninu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað með atvinnufrelsið ? Hvað með þrýstihópana ?

Af hverju má ég ekki leyfa reykingar á mínum bar,hverjum kemur það við ?, ég gæti sett upp varúðarskilti fyrir þá sem þola ekki tóbaksreyk þannig að þeir væru ekkert að álpast inn til mín.

Ég er fyrrverandi reykingamaður og hætti vegna þess að ÉG vildi það, en ekki með neinum þrýstingi frá öðrum. Þeir  sem eru hvað hatrammastir út í reykingar eru yfirleitt fyrrverandi reykingamenn sem hafa neyðst til að hætta, þeir verða yfirleitt flestir mjög fanatískir í þessum efnum.Það hefur engin áhrif á mig þó aðrir reyki, það er þeirra líf og heilsa sem þeir leggja undir, og mér kemur það ekki við.

þess vegna finnst mér, að ef ég ræki bar, mætti ég og mínir gestir reykja þar að vild, þeir sem ekki reykja geta bara farið annað.

Ég er orðinn hundleiður á þessum boðum og bönnum,sem í flestu tilfellum er ekkert annað en tvískinnungur af verstu sort.

 Af hverju hættir ríkið ekki að selja tóbak og brennivín ?, væri það ekki mikið viskulegra en að selja okkur hvoru tveggja, og banna okkur síðan að nota það víðast hvar ?

Það vantar alveg þrýstihóp til að berjast fyrir því.

EINHVER TILBÚINN Í SLAGINN ???


mbl.is Í hungurverkfall vegna reykingabanns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband