Stjórnmálamenn mættu taka Björk til fyrirmyndar.

Láta verkin tala. Mér finnst þetta flott hjá söngkonunni,lætur hvorki Kínverja né aðra slá sig út af laginu.
mbl.is Yfirlýsing frá Björk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er það ekki eitt af verkefnum stjórnarformanns að fylgjast með???

 Er maðurinn í einhverjum sandkassaleik?. Ég sé ekki að hann sanni neitt um tíma sinn eða hæfni til að sinna þessu starfi með neðangreindum ummælum. Fyrir svo utan það að öllu venjulegu fólki veitist alveg nóg að vera í fullu starfi ef það ætlar að skila því sómasamlega. Enda sýnir reynslan oftar en ekki þegar eitthvað kemur upp á, að stjórnarformenn vita þá harla lítið um það sem fram fer í viðkomandi fyrirtæki, og koma yfirleitt af fjöllum og kenna öðrum um...

Ármann vísar slíkum ásökunum á bug. „Ég vil benda á að stjórnarformaður Sorpu er í fullu starfi annars staðar og stjórnarformaður slökkviliðsins er borgarstjórinn í Reykjavík. Þannig að það er alveg ljóst að ég hef síst minni tíma en aðrir í þessum samanburði.“

HVAÐ SANNAR ÞETTA ???

Ef framkvæmdastjórinn vill ekki hafa samskifti við starfsmenn,á þá stjórnarformaðurinn ekki að skoða málið en ekki afgreiða það svona´???

 ... við trúnaðarmennina segir Ármann: „Starfsmannamál eru málefni framkvæmdastjórans og ég treysti honum fullkomlega til að sinna þeim...“

 ...gefið í skyn að sökum margra starfa Ármanns hafi hann ekki tíma til að sinna stjórnarformannsstarfinu, en Ármann er aðalbæjarfulltrúi í Kópavogi og þingmaður, auk þess að gegna starfi stjórnarformanns Strætó bs...


mbl.is Trúnaðarmenn Strætó æfir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Getur einhver þýtt þetta fyrir mig ???

...Fáir forsætisráðherrar þekkja afleiður á fjármálamarkaði enda hafa þeir nóg óstöðugleika af öðru tagi en Geir H. Haarde, forsætisráðherra Íslands, hefur litla möguleika á að fylgjast ekki með afleiðumarkaðnum. Þannig byrjar umfjöllun Financial Times um ástandið á íslenskum fjármálamarkaði...

Hvernig stendur á því að erlendir greinendur skuli vera svona harðir á því að ekki sé allt í lagi hjá Íslenskum bönkum? Hvað þykjast þeir sjá í spilunum ? Og hvað er það þá sem Íslensku bankamennirnir vilja meina að sé ekki rétt með farið.Ef þeir ætlast til að við trúum þeim er ekki nóg að segja að þetta sé ekki rétt hjá þeim.

Er ekki verulega vel að mér í alheimsbankaviðskiptum og þess vegna væri gaman að fá útskýringu á þessu máli.
.

.. Allir bankarnir voru með skuldatryggingarálag í kringum 30 punkta í júlí á síðasta ári en nú er skuldatryggingarálag Landsbankans 469 punktar, Glitnis 664 punktar og Kaupþings 706 punktar.  Þetta þýðir að þú greiðir 706.100 evrur á hverju ári í tryggingu af 10 milljóna evru skuldabréfi Kaupþings til fimm ára... 

...Yfirmenn íslensku bankanna eru að sögn FT mjög ósáttir enda skuldatryggingarálag bankanna oft hærra heldur en hjá fyrirtækjum sem markaðurinn hefur lítið sem ekkert álit á...

...William Symington, sjóðsstjóri hjá Glitni, segir þetta gjörsamlega út í hött. Ekki séu það íslensku bankarnir sem neyddust til þess að afskrifa milljarða vegna undirmálslána og í raun hafi þeir ekki þurft að afskrifa neitt.

 


mbl.is Orðstír Íslands í ólgusjó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er fjármálaráðgjöfin ókeypis...

...eða er þetta bara fyrsta fyrirtækið sem er tilbúið að hjálpa konunni að ráðstafa þessum aurum???

Það er alltaf gleðilegt að heyra þegar vinningar koma til fólks sem virkilega þarf á þeim að halda,og óska ég konunni til hamingju með vinninginn.

...Þess ber að geta að þessum heppna vinningshafa, líkt og öllum öðrum lottóvinningshöfum sem vinna meira en eina milljón í lottó, er boðið upp á fjármálaráðgjöf hjá KPMG..." 

Ætli þeir sem eiga enga peninga séu ekki í meiri þörf fyrir fjármálaráðgjöf ?,eru kannski einhver fyrirtæki sem bjóða slíkt  ?  Varla, það er ekkert að græða á því


mbl.is Einstæð móðir fékk lottóvinninginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og verður trúlega lengi !!!

Þar sem vegurinn liggur ekkert yfir þetta fjall...
mbl.is Enn ófært um Reynisfjall
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband