16.1.2008 | 22:56
Hafa skal það sem sannara reynist !!!
Forsíðufrétt í Bændablaðinu 15.1 2008. Segir nýtt sláturhús í bígerð á Austurlandi, Sláturfélag Austurlands hefur mikinn hug á að byggja upp nýtt sláturhús á Austurlandi,en eins og staðan er nú er engi slátrun á svæðinu frá Húsavík til Hafnar í Hornafirði...
Ekki hefur blm Bændabl... fengið nákvæmar upplýsingar hjá þeim félögum Sigurjóni Bjarnasyni,sem verið hefur umsjónarmaður fyrir Austurlamb og Þorsteini Bergssyni formanni Sláturfélags Austurlands.
Þeir hafa varla getað fengið háa einkun í landafræði miðað þessi ummæli um slátrunina, en allt fram að þessu hefur Vopnafjörður verið þarna á milli, og þar hefur verið rekið sláturhús svo lengi sem elstu menn muna, og er gert enn.
Leyfi mér að stinga hérna inn glefsu úr frétt RÚV 19.9.2007 Slátrun gengur vel hjá Sláturfélagi Vopnafjarðar, en þegar er búið að slátra í kringum sjö þúsund fjár. Vinna hófst rétt fyrir síðustu mánaðamót og stendur fram yfir tuttugasta október. Þórður Pálsson sláturhússtjóri segir að alls verði slátrað 25.500 fjár í haust en það er aukning frá því í fyrra þegar slátrað var 24.000 fjár. Í kringum fjörutíu manns vinna í sláturhúsinu þegar mest er, þar af fimmtán útlendingar...
Og eins og sést á þessari frétt er þegar lógað umtalsvert fleiru fé hjá Sláturfélagi Vopnafjarðar en fyrihugað er hjá Sáturfélagi Austurlands
Ég þekki nokkuð til þessara mála því ég keyri frystivélar í sameiginlegum vélasal fyrir frystihús og sláturhús.
En það sem mér finnst einkennkennilegast við þessa frétt og viðtöl, er að hvorugur þessara manna skuli minnast á Sláturfélag Vopnafjarðar, og þó einkun og sér í lagi að Þorsteinn geri það ekki, þar sem móðir hans er gift framkvæmdastjóra Sláturhúss Vopnfirðinga, og ég veit ekki betur en hann hafi lógað sínu fé hér í haust...
ER ÞETTA GLEYMSKA ! EÐA HVAÐ ?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Það er merkilegur andskoti, að 20-30 menn geti verið með sömu sannfæringuna, er það kannski vitleysa í mér að þingmenn eigi samkvæmt stjórnarskrá að vinna eftir eigin sannfæringu ? Ég man þá tíð að sjálfstæðismenn höfðu ekki allir sömu sannfæringuna, og voru ófeimnir við að verja sína, hvað sem flokksbræðrum þeirra leið, og raunar var það svo í öllum flokkum.
Það er makalaust að menn skuli verja rangan málstað fram í rauðan dauðan, þrátt fyrir að vera á annari skoðun, mér finnst skondið að sjá skrif þeirra og máttleysislega tilburði til að verja þetta Þorsteinsdómarahneyksli. Þeir reyna að villa um fyrir fólki með því að kenna matsnefndinni um hvernig komið er. Við vitum öll að hún er umsagnaraðili, á faglegum nótum ekki pólitískum, ég hef hvergi getað séð á prenti að þeir hafi haldið því fram að þeir ættu að ráða þessu.
En hvaða tilgangi þjónar að skipa nefnd sem á að veita faglega umsögn um hæfi manna í þetta embætti ef ráðherra lítur ekk einu sinni á hana. Ég gef lögfræðimenntun og reynslu þessara manna í nefdinni, ekki háa einkun ef maður með dýralæknismenntun er þeim svona miklu fremri.
ER þá ekki ráð að fara að læra dýralækningar frekar en lögfræði.
![]() |
Ósammála ráðherra um mat á umsækjendum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
16.1.2008 | 13:13
Hver bauð þeim um borð ?
Sea Shepherd segir að mönnunum sé haldið gegn vilja sínum....
![]() |
Ásakanir á báða bóga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.1.2008 | 13:42
Trúi ekki að Bretar skipti sér af þessu. Trú aftur á móti öllu á Ástralíustjórn...
Þeir eiga bara að sigla með þessa hryðjuverkamenn heim til Japans og draga þá fyrir dóm. Þeir eru réttlausir þar sem þeir ráðast um borð í skip á alþjóða hafsvæði. Og þar að auki gerðir út af glæpamanni, sem gegnir furðu að skuli ganga laus. Ég hef aldrei botnað í þeirri linku sem sýnd hefur verið í málum Sea Shepard, þótt þau kenni sig við umhverfisvernd, eru þetta ekkert annað en glæpasamtök, og ef þeir sem styðja þá að málum eru það ekki líka, eru þeir í meira lagi einfaldir.
Bragð er að þá barnið finnur,segir máltækið. Önnur umhverfissamtök hafa sem minnst viljað hafa samstarf með þeim og það segir sína sögu...
![]() |
Liðsmenn Sea Shepherd teknir í gíslingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.1.2008 | 12:45
Þurfa helst að eiga meira yfir höfði sér en ákæru...
![]() |
Tíu ára syni Frakklandsforseta hótað lífláti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)