Færsluflokkur: Dægurmál
24.1.2008 | 16:20
Held að þetta sé ekki marktækur álitsgjafi ?
mbl. leitar á dálítið vafasamar slóðir með álitsgerð Stefaníu Óskarsdóttur stjórnmálafræðings, held að hún sé tengd sjáfstæðisflokknum of sterkum böndum til að geta kallast óvilhallur dómari um þessi mótmæli í ráðhúsinu.
...segist ekki telja þá atburði sem nú eru að eiga sér stað í Ráðhúsi Reykjavíkur vera sögulega þrátt fyrir að fátítt sé að lögregla sé kölluð til vegna pólitískra...
...Stefanía að sér hafi sýnst álíka margir ungliðar úr Sjálfstæðisflokknum vera á áheyrendapöllunum og ungliðar minnihlutaflokkanna.
Þeir hafi hins vegar sýnt háttvísi og látið sér nægja að klappa er fulltrúar flokksins voru kjörnir í embætti.
Segir Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur og varaþingmaður sjálfstæðisflokkins
![]() |
Mótmælin ekki alveg marktæk" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.1.2008 | 10:32
Er ég bundinn einhverjum trúnaði við tannlækna ??
Get ekki skil þessa vitleysu í sambandi við að birta gjaldskrá hjá tannlæknum,öðruvísi en svo að þeir séu að reyna að fela eitthvað sem ekki þolir dagsins ljós.
Hvað kemur þessari "persónuvernd" við hvort Tryggingastofnun eða einhver annar birtir þessa gjaldskrá, hvað er hún að vernda ?, tannlæknana ?
Ef ég fer til tannlæknis, þarf ég þá leyfi þessarar nefndar ef mér dettur í hug að birta reikningin sem ég þurfti að greiða ?
Sérfræðingar Neytendastofu og Tryggingastofnunar munu vinna að málinu. Það þarf að ganga úr skugga um hvað eigi að birta af þeim upplýsingum sem Tryggingastofnun hefur undir höndum og hvernig. Um leið þarf að skoða að allur lagagrundvöllur sé réttur, segir Tryggvi...
Er það ekki skylda Tryggingarstofnunar, ef hún er með gögn um mál sem orka tvímælis, að koma þeim í réttar hendur til skoðunar ?
![]() |
Neytendastofa hyggst birta verð tannlækna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.1.2008 | 10:11
Bakgrunnurinn á þessari mynd bendir ekki til gleði
Þessir oddvitar hefðu átt að líta aðeins aftur fyrir sig þega þeir voru að tíunda í sjónvarpinu hvað þetta væri mikið heillaspor fyrir Reykjavík.Mér sýnist á fulltrúunum sem að baki standa að þeir séu ekki mjög kátir með þennan gjörning. Getur skeð að þeir hafi orðið efins á síðustu stundu. Fréttu þeir ekki rétt áður en þetta viðtal fór fram að Ólafur stæði einn.
Þetta er nú að verða ein furðulegasta birtingarmynd póltískra loddarabragða sem menn hafa orðið vitni að. Ólafur segir sig úr Frjálslynda flokknum. Vilhjálmur svíkur Ólaf, og býður Birni Inga upp í dans, Björn Ingi svíkur Vilhjálm, og gengur til liðs við vinstri flokkana, og Ólaf. Ólafur svíkur þá og býður Vilhjálmi helmingaskipti.'Ólafur svíkur varamann sinn Margréti, hún veit ekkert hvað um er að vera fyrr en allt er klappað og klárt. Síðan bítur Ólafur höfuðið af skömminni með því að gera væntanlegum samstarfsmönnum sínum ekki grein fyrir því að hann standi einn.
Þetta er svona í hnotskurn það sem ég get fundið út úr fréttum af þessum sirkusæfingum, sem sýna okkur, að þegar völd eru annars vegar getur sannfæringin farið til fjandans. Svo er ætlast til að við sýnum svona mönnum traust!!!
![]() |
Útilokar ekki samstarf við Frjálslynda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.1.2008 | 09:40
Ætlaði hann kannski að bjarga Krókódílnum ?
![]() |
Bjargaði vinnufélaga úr krókódílskjafti og skaut hann óvart |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.1.2008 | 06:42
Hvað á almenningur að borga mikið af því ?
Ef reikna á árlegan hagnað af Kárahnjúkavirkjun þá er hann metinn af Landsvirkjun á 4,22 milljarða króna á verðlagi ársins 2008. Er þá miðað við 40 ára sölu orku frá virkjuninni en áætlaður líftími virkjunarinnar er lengri.
Það er kannski ekki ástæða til að mála skrattann á veggin, og þó þegar Landsvirkjun á í hlut sýnir reynslan að tölfræði hennar er stundum meiri óskhyggja en raunveruleiki, þótt þeir segi nú að endurskoðað arðsemismat leiði í ljós meiri hagnað en gert var ráð fyrir í upphafi,má efast. Er t.d. búið að ganga frá öllum málum við Impregilo, það er eins og mig minni að þeir hafi ekki verið alveg ánægðir með ýmislegt í útboðinu sem þeir áskildu sér rétt til að sækja aukagreiðslu fyrir. Kannski er þetta bara misminni.
![]() |
|
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.1.2008 | 18:11
Svo er hneykslast á Birni Inga !!!
![]() |
Þrír þiggja laun borgarstjóra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.1.2008 | 12:49
Er Reykjavík ekki höfuðborg landsins ?
Ég tel sem landsbyggaðrmaður að borgarstjórnin sé ekkert einkamál Reykvíkinga, þar sem við þurfum að sækja nálega alla opinbera þjónustu til borgarinnar á einn eða annann hátt.
Einnig tel ég staðsetningu flugvallar, ekki síður mál landsbyggðar en Reykvíkinga,og margt fleira mætti tína til.
![]() |
Mótmæla nýjum meirihluta í borginni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.1.2008 | 06:52
Hver er að misskilja hvað ?
Við erum þessi litli fjölskylduvæni bær; þar sem börnin ganga um og hafa það mjög gott, en ekki þetta samfélag þar sem einhverjir handrukkarar vaða uppi. Það er mikill misskilningur...
Ég las nú þessa frétt um handrukkarana í Vogunum, hún kveikti ekki á neinu hjá mér þess efnis að handrukkarar væru þar á hverju strái, ég skil ekki alveg þessa klausu bæjarstjórans, er kannski einhver efi í hans huga um þennan litla fjölskylduvæni bæ; þar sem börnin ganga um og hafa það mjög gott ???
![]() |
„Misskilningur að handrukkarar vaði uppi“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.1.2008 | 06:34
Ætlar hann að meta hvað skiptir máli ?
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn....Við munum setja allt upp á borð sem skiptir máli... Ætlar hann að meta það sjálfur hvað skiptir máli ?, hræddur um að ef það gæti komið famtíð hans illa, að það verði áfram undir borðinu.
Ég bý ekki í Reykjavík, en veit samt að ef ég hefði búið þar hefði ég ekki haft mikla trú á honum eftir þessi klúður hans, og á bágt með að trúa að hann eigi framtíð fyrir sér í borgarmálum þegar þessu kjörtímabili líkur.
Það virðist ekki vera heil brú í þessu ráðleysisrugli, það er makkað fram og aftur, hvar er metnaður Ólafs, sveik Vilhjálmur hann ekki og tók Björn Inga framyfir. Ég gef skít þá skýringu Ólafs að hann þoki þessu eina áhugamáli sem hann hefur, (flugvallarmálið) fyrir utan það að hanga í borgarsjórn, nokkuð áleiðis. Þar fyrir utan kostar það sjálstæðismenn ekki nokkurn skapaðan hlut að þykjast vera að mestu sammála Ólafi, því þessi "málefnasamningur"er þannig úr garði gerður, að það eru ekki minnstu líkur á, að þeir þurfi að standa við neitt af því sem þar var tíundað
Þetta er mikið stærra mál en svo að það leysist á næstu tveimur árum . Gerist það fyrr, þá verður það gert með einhverjum bellibrögðum...
![]() |
Allt upp á borð varðandi REI |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.1.2008 | 12:37
Greinilega full þörf á að hafa glugga á líkkistum.
Og svona til að tryggja öryggið enn meira,mætti setja farsíma í hönd þess látna...
![]() |
Vaknaði í eigin kistulagningu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)