Færsluflokkur: Dægurmál
28.12.2007 | 21:41
Bretar öfundsjúkir eins og við.
Framkvæmdastjóri bresku launþegasamtakanna, Brendan Barber, varar við samfélagslegum afleiðingum sem ofur-auðsöfnun á fárra hendur geti haft, segir "gremju krauma" meðal miljóna opinberra starfsmanna vegna launamála.
Þetta virðist vera hliðstæða við það sem er að gerast hér á landi, og hefur verið afgreitt þannig að þeim sem blöskri þetta, gangi ekkert annað til en öfund, það er ódýr lausn fyrir rökþrota menn, að afgreiða þetta á þann hátt.
Nú hefur okkur borist liðsauki, nokkrar miljónir Breta sem eru lika að drepast úr öfund. Þá fer nú að verða spurning með meiri hluta, og minni hluta, á ekki meiri hlutinn yfirleitt síðasta orðið ?
Það virðist vera það mikið af hátekjumönnum á Íslandi að þeir séu tilbúnir að verja þessa ofurlaunuðu, og á meðan stór hópur peningamanna og viðhlægjenda þeirra hefur tögl og halgdir í þjóðfélaginu, er lítil von breytinga.
![]() |
Kraumandi gremja vegna ofur-ríkidæmis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.12.2007 | 21:01
Þetta er greinilega hægt. Guð láti gott á vita.
![]() |
Sló á laugardag - dæmdur í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.12.2007 | 10:41
Afætur.
Það er merkilegur hugsanagangur hjá sumu fólki, það hefur verið að færast í vöxt að einkaaðilar sem ekki eru í neinum svona bissnes, geta ekki látið þessa fjáröflunarleið Björgunar og Hjálparsveita í friði.
Það er eins og sumu fólki sé ekkert heilagt, ætli þeir sem eru að keppa við sveitirnar, til að fjármagna einkaneyslu sína, geri sér grein fyrir því fórnfúsa og óeigingjarna starfi sem þær leggja af mörkum til samfélagsins.
Eða er gróðavonin svo yfirgnæfandi að það skipti þá engu máli, það er harkalegt að svona fólk skuli yfirleitt fá leyfi til að selja þessa vöru,og ekki nóg með það, heldur reyna þeir að planta sér niður einhversstaðar í nánd við sölustövar sveitanna, og hika ekki við að líkja eftir þeim í klæðaburði
þeir vita vita sem er, að asinn og stressið er í fullum gangi hjá fólki, það sér fugeldasölu og spáir ekki í, hverjum hún er að þjóna.Skreppur inn og verslar,hugsar svo kannski á eftir, ég hefði auðvitað átt að kaupa þetta af einhverri björgunarsveitinni,en þá er það orðið of seint.
Bkörgunarsveitafólk þarf að vinna fyrir sér eins og aðrir þegnar þessa lands, með þátttöku sinni í hjálpar eða björgunarsveit, er það að leggja sjálfviljugt á sig þá kvöð að vera á bakvakt árið um kring, mikið af frítíma þessa fólks fer í æfingar, viðhald á búnaði, auk leitar og björgunarstarfa, oft við skilyrði sem eru næsta ómannúðleg, og oftar en ekki stórhættuleg.
Ég skora á fólk að athuga hver söluaðilinn er áður en inn er gengið til að versla.
GANGIÐ ÚR SKUGGA UM AÐ ÞAÐ SÉU BJÖRGUNAR OG HJÁLPARSVEITIR, MEÐ ÞVÍ AÐ VERSLA VIÐ ÞÆR RENNIR ÞÚ STYRKARI STOÐUM UNDIR STARFSEMI ÞEIRRA
![]() |
Þeir líkja eftir okkar útliti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.12.2007 | 05:49
Rússneskur jólasveinn ?
Skil ekki þennan gauragang út af jólasveinum, ég þekki ekkert barn sem hefur skemmst verulega af því að trúa á jólasveininn.. Mín reynsla er sú, að þetta eldist af þeim um 8- 10 ára aldur, þá eru þau almennt búinn að sjá í gegnum þetta og virðast sátt við það.
Af hverju er þá í lagi að staðhæfa að Jesús hafi fæðst á jólunum, það er engin sönnun til fyrir því, og engin tilraun gerð til þess að leiðrétta þau "ósannindi".
![]() |
Jólaveinninn er til í Rússlandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.12.2007 | 05:25
Fer heimilisofbeldi ekki yfirleitt fram innan veggja heimilisins ?
Kona sökuð um að hafa notað lögregluþjón sem vasaklút, tildrögin voru þau að hann segist hafa séð hana slá til manns, bíta hann í olnbogann, og hrækja svo framan í hann
En hvers vegna hann tók ekki strax í taumana, ef hann hefur verið staddur á heimili hennar, eða mannsins, fylgir ekki sögunni.
Mér finnst vanta í fréttina hvað lögregluþjónninn var að gera á heimilinu.
![]() |
Hreinsaði úr nefholunum á skyrtu lögreglumanns |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.12.2007 | 00:04
Þeir hafa þá ekki tekið allt.
![]() |
Danske Bank býður fé fyrir upplýsingar um ræningja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.12.2007 | 14:17
Hvað gætu þeir þá orðið margir ef fargjöldum væri stillt í hóf??
![]() |
Hálf milljón farþega með innanlandsflugi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.12.2007 | 13:41
Hjá hverjum vöknuðu þessar spurningar??????????
![]() |
Vilja láta leita að minnismerki um Snorra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.12.2007 | 08:20
Varla verður hann eilífur..............
Annars hef ég alltaf haft dálæti á Castro,ekki vegna stjórnmálaskoðanna hans,heldur vegna þess hvernig hann hefur staðið uppí hárinu á bandaríkjamönnum í öll þessi ár,og fengið þjóðina í lið með sér þrátt fyrir allskonar þrengingar sem hafa staðið landinu fyrir þrifum vegna aðgerða kanans,sem þrátt fyrir allt hafa ekki virkað nema að nokkru leiti.
Þrátt fyrir greinilega fátækt landsmanna,virðast þeir vera glaðlyndir, og umfram allt ótrúlega úrræðagóðir,og nægir í því sambandi að benda á bílaflota þeirra,það er ævintýri líkast að sjá þessa gömlu bíla á ferðinni,og ólíkt meiri tilbreyting að virða fyrir sér umferðina með þessum bílum sem hver og einn hefur sinn karakter ,eða að horfa á venjulega umferð þar sem er meiri velmegun og allir bílarnir steyptir í sama móti,sérkennalausir að mestu.
![]() |
Castro býður sig fram til þings |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.12.2007 | 17:20
Hvaða afturfótafæðing er endalaust hjá dómskerfi okkar???????????????
Mál skemmdarvargs sem stakk gat á hjólbarða á fimm lögreglubílum hjá lögreglu Suðurnesja á jólanótt er nú borði rannsóknardeildarinnar.
Hvað þarf að rannsaka ?
Liggur ekki málið ljóst fyrir,maðurinn nánast staðinn að verki:ef að líkum lætur verður þetta "rannsakað" í einhverjar vikur dómstólar neita að hafa manninn í gæslufangelsi svo hann eigi hægara með að koma sér úr landi.
Maður er að verða svo gáttaður á seina og vandræðagangi lögreglu og dómara að það hálfa væri nóg.
Dæma manninn strax, stinga honum inn án möguleika á styttingu refsingar,og vísa honum síða úr landi,án möguleika á því, að fá að koma nokkurn tíma aftur til landsins aftur.
'Ég gæfi ekki mikið fyrir íslenska landamæragæslu ef við byggjum við landtengingu við fleiri lönd,þegar ekki tekst betur til með gæsluna á eyju sem enga landtengingu hefur, og í raun fáar leiðir út úr landinu, sem ekki er hægt að vakta á tiltölulega auðveldan hátt
![]() |
Mál skemmdarvargs á borði rannsóknardeildar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)