Færsluflokkur: Dægurmál
31.12.2007 | 02:21
Fleiri urðu rafmagnslausir. og lengur en þetta !!!
![]() |
Rafmagn komið á að nýju á Egilsstöðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.12.2007 | 01:42
Hélt að ég væri að fara skoða spennandi frétt.
![]() |
Lögregla gagnrýnd vegna bankaráns |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.12.2007 | 13:07
Hinir geltirnir komust UNDAN !!!
Geltirnir ollu þremur umferðarslysum þar sem fimm bifreiðar skemmdust mikið....
ÉG HEFÐI SAGT AÐ ÞEIR HAFI SLOPPIÐ ,EÐA UNDAN HVERJU VORU ÞEIR AÐ FLÝJA?
![]() |
Villigeltir ollu usla á hraðbraut |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.12.2007 | 12:59
Heimskan ríður sjaldan við einteyming !
Það er í rauninni óþarfi að tjá sig um þetta mál ,mér sýnist flestir sem tjá sig um það vera sammála, um að þetta fólk hafi í besta falli sýnt af sér vítavert hugsunarleysi.
Þetta er ábyrgðarlaust heimskuflan fólks sem annað hvort telur sig vita betur en aðrir,eða hefur ekki rænu á að hlusta á útvarp.
Þótt ég viti að ekki sé vilji hjá bjögunarsveitum að láta fólk sem er hjálparþurfi borga fyrir aðstoðina,og ég sem meðlimur slíkrar sveitar sé sama sinnis,þá liggur við að í svona tilfellum ætti að gera slíkt, þar sem varúðarreglur allra ábyrgra ferðamanna eru þverbrotnar,fyrir svo utan það að stofna bæði sér og þeim sem til bjargar koma í stórhættu.
![]() |
Unnið við erfiðar aðstæður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.12.2007 | 08:34
Stórhækkað matvælaverð vegna verðhækkunnar á Maís !!!
Hinar varanlegu ástæður eru tvær. Annars vegar er stóraukin eftirspurn eftir þessum sömu matvælum og við neytum frá nýríkum þjóðum eins og Kína og Indlandi,.... ákvörðun Bandaríkjastjórnar og fleiri ríkja að framleiða lífrænt eldsneyti ....Þetta hafi m.a. leitt til þess að verð á maís hafi hækkað ....æ meiri afbrigði í veðurfari. Bæði hafi orðið þurrkar og flóð....
Hann nefnir ekki þriðju ástæðuna sem er innlend og það eru væntanlegir kjarasamningar.Venjulega fara allir á fulla ferð og hækka vöru og þjónustu, um leið og kjaraviðræður fara í gang..
Veðurfar getum við lítil áhrif haft á,en að hækkun á Maís réttlæti stóraukna hækkun á matvælaverði finnst, mér fjandi langsótt
![]() |
Útlit fyrir hækkun á matvælaverði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.12.2007 | 21:29
Fölsuð ritgerð hvað er um að vera ?
![]() |
Falsaði fráfall föður í ritgerðarsamkeppni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.12.2007 | 21:17
Svo lengi lærir, sem lifir !
Var að fletta fimmtudagsblaði Mb, blaðalestur setið á hakanum að undanförnu af eðlilegum orsökum.
Þar var grein um hestamenn og viðtal við þá,og allt í lagi með það, ég hnaut um litinn á hestinum, ég er uppalin í sveit meira og minna, og hef umgengist hesta alla mína ævi, án þess þó að vera hestamaður,tel mig vera nokkuð glöggan á lit þeirra og hvað litirnir heita.
Nú virðist vera búið að rækta upp nýtt litaafbrigði í Íslenska hestinn, og heitir nýji liturinn KAMPAVÍNSMOLDÓTTUR
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.12.2007 | 08:17
Muna eftir Björgunar og hjálparsveitunum !!!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.12.2007 | 08:15
Eru Suðurnesjamenn að æfa sig fyrir áramótin?
Það virðist hafa gengið á ýmsu í nótt, bæði í Grindavík og Reykjanesbæ, unglingarnir virðast vera að taka létta æfingu fyrir áramótin, utan sá sem var að dunda sér í kirkjugarðinum, spurning hvað honum hefur gengið til, finnst of ódýrt að afgreiða það með því að "hann var fullur greyið".
Svona mál á að taka föstum tökum og senda skýr skilaboð út í þjóðfélagið um að framkoma sem þessi verði ekki liðin, það er ekki nóg með að fólk sé ekki lengur óhult utandyra þegar kvöldar, það getur ekki heldur treyst því að grafir ástvina þeirra fái að vera í friði.
Heimur versnandi fer var einhverntíma sagt, og hafi það átt við þá, passar það ekki síður nú. Það er eins og fólki sé ekkert heilagt lengur, hvorki eigur manna, né líf og limir.
Fólskulegar og tilefnislausar árásir á fólk bæði heima og heiman, skemmdir á eigum manna svo sem bílum og öðru slíku, þetta er það sem dynur á manni dags daglega bæði í ljósvakamiðlum og dagblöðum.
Getum við átt von á því að eitthvað lagist í þessum efnum á nýju ári, eða heldur þetta áfram að versna ?
Þegar stórt er spurt verður fátt um svör. En það má lifa í voninni.
![]() |
Sló dyravörð í höfuðið með flösku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.12.2007 | 21:46
Muna svo að versla bara við Björgunar og Hjálparsveitir!!!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)