Færsluflokkur: Dægurmál

Er ekki sami tími á öllu landinu ?

| mbl.is | 18.11.2007 | 8:07
Mynd 445058 

Snjóblástur á Suðurlandsvegi kl 1100 í morgun Júlíus Sigurjónsson

Þetta var komið á vefinn kl átta í morgun  

 


mbl.is Verið að moka á heiðum á Norðaustur- og Austurlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvort er meira virði líf manna,eða hvala?

 Hávær gagnrýni hefur komið fram vegna hnúfubakaveiðanna og hafa áströlsk stjórnvöld m.a. sagt, að þar í landi yrði litið á slíkt sem ögrun og yrði til þess fallið að sverta orðstír Japana meðal Ástrala.

 Hvernig væri fyrir þessa glæpamannastjórn í Ástralíu að taka til í eigin landi áður en þeir fara að skipta sér at atvinnumöguleikum annara þjóða.

Er þetta kannski áróðursbragð af þeirra hálfu að hafa nógu hátt á þessum vettvangi til að draga athyglina frá því hvernig þeir hafa farið með frumbyggjana,kengúrurnar,og fleira.

 

Og bandarísku umhverfisverndarsamtökin Sea Shepherd segja, að þau muni líta á veiðar á hnúfubökum sem stríðsyfirlýsinu.

Um  þessi svokölluðu "umhverfisverndarsamtök "Sea Shepherd er lítið annað að segja, en eins og þeir hafa stimlpað sig á kortið,er þetta lítið annað en samsafn af ofbeldisfullum og grunnhyggnum hálfvitum.


mbl.is Japanar á leið á hnúfubakaveiðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vita þetta ekki allir?Þurfti heilan her fræðimanna til að komast að þessu?

 Ekki er afraksturinn mikill eftir þessar áratugalöngu rannsókinir,þetta hefur íslenskt alþýðufólk vitað lengi  

Á Forvarnardaginn er lögð megináhersla á að koma því til skila sem áratugalangar rannsóknir íslenskra fræðimanna við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík hafa sýnt að skili mestum árangri í forvörnum gegn fíkniefnum:

1. Að foreldrar og ungmenni verji sem mestum tíma saman.

2. Að börn og unglingar taki þátt í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi.

3. Að ungmenni fresti því sem lengst að hefja neyslu áfengis


mbl.is Viljastyrkur ungs fólks skiptir mestu í baráttunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Væri ekki réttara að segja þær úr hættu?.......................

þar sem þær gætu hvílt sig á þessu innantóma og heiladrepandi bandaríska kjaftæði.
mbl.is Hetjur og húsmæður í hættu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta gáta eða frétt?

Kona á áttræðisaldri sem í fyrra naut akstursþjónustu Reykjavíkurborgar treystir sér ekki til að sækja um hana að nýju. Henni finnst skilmálarnir um þjónustuna ógeðfelldir þótt aksturinn hafi verið henni til mikils gagns.    Hvaða skilmálar eru það?

 Ólafía Sigríður Guðbergsdóttir neitar að sæta yfirheyrslum eftir ársviðskipti við borgina.Er þetta konan sem um ræðir, hvaða yfirheyrslum þurfti hún að sæta og vegna hvers?

 

Öryrkjar og aldraðir þurfa að slást við kerfið til að komast leiðar sinnar. Akstursþjónustan þykir góð en er á stífu tímaplani og þótt allir geri sitt besta kemur fyrir að þiggjandinn lendi í hremmingum.

Hvenig er þetta tímaplan?

 

Maður, sem aðeins getur staðið í göngugrind, lenti í því að vera skilinn eftir af því hann beið óvart fyrir utan rangar dyr verslunarkjarna. Hann bjargaði sér heim í leigubíl. Biðin er þó oftar af því fólk hefur ekki þorað annað en að áætla ríflegan tíma.


mbl.is Mótmælir óvirðingu við aldraða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig er hægt að kaupa eitthvað af höndum sér?

Væru þá t.d. hendurnar á mér að reyna að selja mér eitthvað??


mbl.is Vilja kaupa dönsku ríkisstjórnina af höndum sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju er ég ekki hissa??................

Hvað er í gangi?

Er ríkið ekki vinnuveitandinn?

Ber ekki vinnuveitanda að sjá til þess að öryggi starfsmanna þeirra sé tryggt?

Getur ríkið með hjálp dómstóla fyrrt sig allri ábyrgð? Slíkar og þvílíkar hugsanir leita á mann þegar maður les svona fréttir,var nóg að greiða annari konunni bætur,og hvers vegna bara henni,það er að skilja á fréttini að sami sjúklingur hafi átt hlut að máli í báðum tilvikum sem eru þá í eðli sínu mjög svipuð ef ekki eins.

Það væri gaman að heyra rökin fyrir allri þessari vitleysu.

Ríkið móti almenningi,dæmt í málinu ríkið sýknað,kannast ekki einhver við þetta,er þetta ekki algengara en hitt??.


mbl.is Íslenska ríkið sýknað af bótakröfu hjúkrunarfræðings á Kleppi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dæmigerð vinnubrögð þess opinbera.

 

Mynd 444920 Íslensk erfðagreining gæti hæglega sinnt DNA-rannsóknum fyrir lögregluna, sem nú eru send til Noregs.

 

 


mbl.is Ráðuneyti vildi ekki rannsóknir Íslenskrar erfðagreiningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dýr myndi Hafliði allur.........

Grænlenskir Bananar aðeins 7200 krónur kílóið
mbl.is Fyrsta bananauppskeran á Grænlandi boðin upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er að þessu fólki?...........Vonandi ekkert, bara að grínast?

Ég trú varla að sveitarstjórnarmenn þarna á svæðinu hafi látið sér detta í hug malbikaður vegur inn í þórsmörk,eða eru þeir svo blindaðir af peningagræðgi að því fleiri á svæðið því meiri velta,hvernig halda þeir að yrði umhorfs þarna innfrá eftir nokkur ár, ef gerður yrði greiðfær vegur sem menn gætu farið á hvaða druslu sem er.

Er ekki einmitt það sem heldur þessu svæði að stórum hluta í horfinu, þetta takmarkaða aðgengi sem er.

Ísland er bara þannig að það er ekki hægt að ferðast um allt á hvaða bíl sem er,og best að hafa það svo framvegis.

Ég pípi á þau rök t.d.sem halda því fram að það eigi ekki allar jeppa,og geti þess vegna ekki komist á ýmsa staði á hálendinu,ég á ekki jeppa og sætti mig alveg við að koast ekki það sem þeir komast.

Ef ég er ekki sáttur verð ég bara að fá mér jeppa,en ekki krefjast vegagerðar.

 


mbl.is Ekki lögð malbikuð hraðbraut í Þórsmörk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband