Færsluflokkur: Dægurmál

Hvar er rannsóknarblaðamennskan nú?

Fékk Vilhjálmur listann?

Mál málanna í gær var hins vegar ekki forkaupsrétturinn í Hitaveitu Suðurnesja, heldur hvort Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri hafi á eigendafundi í síðustu viku fengið eintak af lista með nöfnum þeirra starfsmanna sem fá áttu sérkjör á hlutabréfakaupum í REI.

 Vilhjálmur segist hafa vitað um samninga við þessa starfsmenn, en aldrei séð listann og honum hafi ekki verið dreift.

 Svandís Svavarsdóttir segist hins vegar hafa fengið listann á fundinum.

Það getur varla verið stórmál að komast að því hvort þeirra er að segja ósatt,ég veðja á Villa hann hefur lítið gert annað síðan hann varð borgarstjóri en klúðra málunum,og fara yfirleitt heilan hring þegar rætt er við hann.


mbl.is Undrun á sölu hlutarins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrir hvað stendur DV og hvað hefur það fram að færa??????????????

Ég er sammála Dorrit um að þessi frétt sé bæði móðgandi og særandi,aldrei bjóst ég við því að DV og Davíð Oddson yrðu bandamenn en það virðist vera orðin raunin.Var það ekki Davíð og hans nánasta hirð sem gaf veiðileyfi á forsetaembættið eftir að Ólafur Ragnar sigraði þeirra átrúnaðargoð glæsilega.?

Fróðlegt verður að fylgjast með því hvort eftirmaður Ólafs Ragnars verður í skotlínu fjölmiðla og annara sem telja sig vera réttborna til gagnrýni.

Það má sjálfsagt margt finna að Ólafi Ragnari,en ég held að þetta sé fyrsti forseti okkar sem hefur komið Íslandi virkilega á kortið,og fyrir hans tilkomu að ýmsum málum á erlendri grund hafa útrásarhópar og önnur Íslensk fyrirtæki átt greiðari leið en ella inn í ýms lönd sem hafa verið frekar treg á að viðurkenna vestrænan hugsanagang.

Ólafur Ragnar sagði að hann myndi ekki sitja með hendur í skauti á Bessatöðum,og það hefur hann ekki gert.Mér finnst að forseti okkar eigi ekki að vera einhver puntudúkka sem sé dregin fram þegar misvitrum stjórnmálamönnum býður svo við að horfa,og ég sé heldur ekkert athugavert við það þó hann nýti sér þau tækifæri sem bjóðast að ferðast með einkaaðilum þegar það býðst.Þar sem forseti hefur ekkert fast starf í stjórnkerfinu finnst mér þetta alveg gráupplagt hjá honum.


mbl.is Dorrit segir frétt DV móðgandi og særandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kokhraustir þrælasalar

Mönnum hreinlega ofbýður ósannindin"

Þetta segir Marteinn Másson lögmaður Nordic construction line (NLC)

Hann er ekki einn um það,ég held að felstum hugsandi mönnum ofbjóði hvernig þessar starfmannaleigur starfa,og ósannindin í eigendum þeirra. 

 

En Afl starfsgreinafélag hefur gert alvarlegar athugasemdir við starfsemi  þeirra og GT verktaka,það er ekki langt síðan Arnarfell skar GT verktaka úr snörunni vegna þessara sömu mála,og það er ekki smuga til að fá mig til að trúa því að Afl starfgreinafélag leggi þetta fyrirtæki í einelti.

Ofast er eldur þar sem er reykur.Mér hefur fundist frá því að ég heyrði fyrst um svona starfmannaleigur að það væri hálfgerð ólykt af þessari starfsemi,í flestum tilfellum er verið að níðast á verkamönnunum, og notfæra sér neyð þeirra,þeir eru í flestum tilfellum allsendis ókunnugir starfsemi verkalýðsfélaga og vita ekkert um kaup eða kjör í landinu,hvað þá að þeir eigi einhver réttindi,mér segir svo hugur að starfsmannaleigan hlaupi hratt yfir þá sögu ef hún jafnvel "gleymir" því ekki alveg.

 Hvernig á svo að fjármagna dæmið, sá sem rekur leiguna gerir það ekki af takmarkalausri gæsku sinni, hann ætlar að græða á henni,og gerir það,stjórnvöld hér á landi hafa flotið sofandi að feigðarósi og ekkert gert sem vit er í til að koma böndum á þessa starfsemi sem er ekkert annað en ÞRÆLAHALD klætt í nýjan búning.

Svo má velta því fyrir sér hvað lögreglan gerir í máli þessara átta sem plataðir voru suður í gær þegar búið var að hella í þá víni,ætlar hún að sleppa þeim úr landi eins og nauðgaranum um daginn,eða ætlar hún að kyrrsetja þá sem vitni????????????????

 

 


mbl.is „Mönnum hreinlega ofbýður ósannindin"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úr Blaðinu

 

Get ekki stillt mig um að koma hérna með udirfyrirsögn úr Blaðinu

Ein flensa getur lokað heilum leikskóla


Atvinnumenn og fúskarar

                    Enginn hefur játað aðild að þjófnuðum

Í dómi Hæstaréttar kemur fram að enginn hinna grunuðu hafi játað aðild sína að þjófnaðarmálunum. Hins vegar er fallist á að rökstuddur grunur sé um að svo kunni að vera

Eiginlega kemur þessi frétt mér dálítið í opna skjöldu,það er búið að hantaka fjölda manns vegna þjófnaða úr verslunum,þýfið fundist heima hjá þeim,engin játað þjófnað,en fallist á að það sé rökstuddur grunur um að mennir séu þjófar.

Það er eins og mig reki til þess minni, að þegar venjulegir innlendir fúskarar í þessari grein eru teknir og eitthvað finnst heima hjá þeim, af varningi sem þeir geta ekki gert grein fyrir þá séu þeir taldir meira en líklegir sökudólgar,..

Útlendir atvinnumenn í faginu virðast fá aðra meðferð miða við þessa frétt,og sennilega vegna þess að þeir eru fagmenn

 

 


mbl.is Enginn hefur játað aðild að þjófnuðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ennþá bilað, en verð að koma þessu að.

Boðað var til eigendafundar í OR í fyrradag, með innan við sólarhrings fyrirvara. Samkvæmt eigendasamningi Orkuveitunnar þarf að boða skriflega til slíkra funda með viku fyrirvara.

Hversvegna þurfti þennan asa með þennan fund?

Var verið að að gera eitthvað sem orkar tvímælis?,mér hefur fundist bera á því nú á þessum síðustu og verstu tímum að  "óhrein" mál séu  keyrð áfram og oft með vafasömum aðferðum miðað við eðlileg vinnubrögð og fundarsköp.

Einhver lögfræðingur segir að þetta sé allt löglegt vegna þess að "eigendurnir" hafi allir verið mættir, ég héltað þessir "eigendur" væru fulltrúar þeirra sveitarstjórna sem þarna eiga hlut að máli.

Hefði ekki verið eðlilegra að þær hefðu fjallað um þetta áður en "eigendurnir" samþykktu,er ekki einhver ólykt af öllum þessum hamagangi.

Hvað hagnast margir þóknalegir við þessa sameiningu?

Hvað græða raunverulegir EIGENDUR á þessu,mér virðist að þetta eikavæðingar kjaftæði sé komið langt út fyrir allt sem hægt er að kalla skynsemi,fyrirtæki í opiberri eigu sem skila hagnaði eru seld fyrir slikk,af því að þau eru sögð skekkja samkeppnisaðtöðuna. En hin sem ekki bera sig mega áfram vera í eigu þess opibera,því þar er engin samkeppni.

Hvað er búið að gefa mörg fyrirtæki til eika aðila síðan þessi hringavitleysa fór af stað?

Nettenging ennþá biluð stalst í tölvu til að pára þetta,verður stundum dálítið heitt í hamsi þegar þessi mál eru annars vegar

 

 


mbl.is Grundvöllur fyrir höfðun dómsmáls til ógildingar eigendafundar í OR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Biluð nettenging

Kemst vonandi í lag í kvöld eða á morgun

Hverjum er treystandi????????

Gildistöku vatnalaga verði frestað fram á næsta ár

Í frumvarpinu er lagt til að gildistöku vatnalaga verði frestað til 1. nóvember á næsta ári, en tilgangurinn með frestuninni er að veita nefnd fulltrúa allra flokka færi á að taka til skoðunar samræmi laganna við önnur lagaákvæði sem varða vatn og vatnsréttindi.

og að skipuð yrði nefnd fulltrúa allra þingflokka auk eins fulltrúa sem tilnefndur skyldi af umhverfisráðherra og formmanns sem skipaður skyldi án tilnefningar. Hlutverk nefndarinnar var að taka .

Mikið að gera á stóru heimili,nú þarf að fresta þessari gildistöku um eitt ár svo þessir pótintátar geti kynnt sér málið, en eru allir sem eiga að vera í nefndinni til þess bærir að fjalla um svona málefni bara af því að þeir eru þingmenn?,er það nóg, þurfa þeir ekkert að hafa annað til brunns að bera?

Mér finnst þetta vera málaflokkur sem krefst verulegar þekkingar á lögum,eignarrétti og ýmsu fleiru sem ég kann ekki skil á enda ekki "þingmaður".

Því miður, með fullri virðingu fyrir þessum mönnum sé ég fulla ástæðu til að vantreysta þeim,það er eins og það sé ekki hægt að koma neinu frá þessu þingi sem ekki er götóttara  en sigti.

Algengara en ekki er að þegar búið er að setja einhver lög eða reglur, standast þær ekki nánari skoðun vegna þess að gleymdist að taka hitt og þetta með í reikinginn,ég hef líka fyllstu ástæðu til að treysta ekki umhverfisráðherra vegna framgöngu hans í Gjábakkamálinu,þar fékk hún tækifæri til að sanna sig í starfi, en lét það sér úr greipum ganga og samþykkti vitleysu fyrirrennara síns.


mbl.is Gildistöku vatnalaga verði frestað fram á næsta ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sá sem kastar fyrsta steininum

Slapp naumlega er bremsurnar biluðu.

Ég ætla að taka það fram að ég þekki þennan pilt ekki neitt,og á engra hagsmuna að gæta.

Þessi fyrirsögn í mbl virðist ætla að kalla fram skoðanir manna í frekar neikvæðum anda.Nú vitum við ekkert um þetta mál nema það sem pilturinn segir.

Eigum við ekki að bíða með að dæma hann þangað til búið er að rannsaka málið? 

Ég sé í fljótu bragði ekki hvað gæti vakað fyrir piltinum,nýkomin með próf á nýlegum bíl,tryggingasvik segir einhver,útilokað að bremsur og handbremsa bili í einu segir annar,síðan má búst við að fleiri hafi skoðun á þessu og fer þá ekki að styttast í nýtt Lúkasarmál.

Bloggheimurinn hlýtur að hafa lært eitthvað af því,er ekki ráð að hægja aðeins á sér í dómunum þar til búið er að rannsaka málið,amríska aðferðin dugir ekki hér "skjóta fyrst spyrja svo"

 


mbl.is Slapp naumlega er bremsurnar biluðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Neytendur eiga ekki lögvarinn rétt ??????Hvað þá.........?

Er þetta eitt dæmið af hundrað þúsund sem hafa farið fram hjá löggjafanum?

Er nú svo komið að það þurfi sérstök lög til þess að Íslendingar geti verslað á sínu móðurmáli ?

ER ekki löggjafarvaldið hjá alþingi?

Ef þarf sérstaka lagagerð til að þessi réttur sé virkur af hverju í ósköpunum er ekki búið að kippa þessu í liðinn ?

Það er einkennilegt að þetta skuli hafa farið alveg framhjá öllum sem á þingi hafa setið og sitja enn þeir virðast endalaust vera að grafa eftir einhverju sem þeir geti sett um, reglur eða lög.

Nema skýringin sé sú að yfirleitt fer lítið fyrir talsmönnum neytenda á þingi ,og ríkisstjórnir síðustu ára hafa verið mjög sinnulausar um þessi mál, og hafa heldur þrengt að málefnum neytenda ef nokkuð er.

Það hlýtur að vera krafa okkar að þeir sem fást við þjónustustörf geti að minnsta kosti skilið og gert sig skiljsnlega á íslensku.

Þetta er að vísu kærkomin lausn fyrir verslunareigendur sem vilja spara það þarf ekki að greiða þessum útlendingum eins hátt kaup og íslendingum.

Segir það ekki eitthvað um launakjörin ef starfmannavelta er um 100% á ári? 


mbl.is Neytendur eiga ekki lögvarinn rétt á að versla á íslensku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband