Þegar Rúv.klikkar.hún heyrist um allt land en ekki "Úvarp allara landsmanna"
Samhliða rafmagnstruflunum sem urðu á Austurlandi í nótt, duttu niður útvarpssendingar, hjá "útvarpi allra landsmanna" hér á Vopðnafirði heyrðum við ekki í útvarpi, eða sáum sjónvarp fyrr en komið var langt fram á dag, eiginlega var bara komið kvöld.
Við gátum aftur á móti hlustað á Bylgjuna í allan dag...því ekki að auglýsa bilun á Rúv. hjá þeim ?
Mér finnst að það sé löngu kominn tími á að endurskoða þessa nafngift, útvarp allra landsmanna, hún stendur engan vegin undir nafni, ef verða einhverjar rafmagnstruflanir, þá er útvarpið dottið út og kemur síðan ekki inn aftur, fyrr en eftir dúk og disk.
Þetta á að vera öryggistæki og vara menn við náttúruhamförum og öðru slíku ef vá er fyrir dyrum, en er eitt það fyrsta sem klikkar þegar eitthvað bjátar á.
Og það sem meira er það er ekkert reynt að koma orðsendingu til notenda hvað sé á seyði,það ættu að vera hæg heiman tökin að vera með þetta á Netinu t.d. Í dag hefur ekkert verið minnst neitt á þetta í þeim fréttum sem ég hef séð, og raunar ekki um þessar truflanir á rafmagni sem þessi knappa klausa segir frá
.
ÞAÐ ER EKKI HÆGT AÐ SEGJA AÐ ÞJÓNUSTAN HAFI BATNAÐ HJÁ PÁLSSTOFU ÞÓ BREYTT HAFI VERIÐ UM REKSTRARFORM.
![]() |
Rafmagnstruflanir á Austurlandi í nótt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
20.1.2008 | 13:12
Af hverju ekki að skjóta þá bara strax ?
![]() |
|
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Guðjón Ólafur Jónsson fyrrverandi þingmaður framsóknarflokkins, velur einkennilega aðferð til að bjarga þessum deyjandi flokki sínum. Mér virðast þessi skrif hans frekar vera til að ýta undir sundrungina sem ríkir á því kærleiksheimli,fremur en hitt´
Nú veit ég ekkert um klæðaburð framsóknarmanna,né fatakaup,einnig er langtímaminni mitt þegar pólitík er annars vegar frekar lítið,hef aldrei séð ástæðu til að leggja marklaust þvaður á minnið,en uppistaða pólitískrar umræðu, finnst mér einkennast af skrumi, lygi, innhaldslausum loforðum, og sleggjudómum um andstæðingana. Þetta var smá hliðarhopp frá efninu.
Ég man ekki eftir því að hafa tekið eftir frétt, eða heyrt um þessi fatakaup áður, það er kannski þess vegna sem hann kemur þessu á framfæri núna, til að hressa upp á minni okkar sem ekki munum eða vitum um þessi kaup. Og þá er tilganginum náð, hafi maður efast um uppdráttarsýkina, og deilurnar í flokknum flokknum, er sá efi horfinn þetta er bara einn naglinn enn sem framsóknarmenn reka sjálfir í eigin líkkistu.
Þessi aðferð Guðjóns Ólafs er að mínu viti ekki til þess fallin að hressa orðspor flokkisns, þó hlýtur hún að hafa verið valin eftir vandlega íhugun, þar sem komið er á annað ár síðan þessi fatakaup fóru fram. Vandséð er hvernig svona bréf á að bæta þá misklíð sem hann segir ríkja í flokknum.
EN HVER SKILUR FRAMSÓKNARMENN ?
Guðjón Ólafur sendi flokksfélögum sínum í Reykjavík bréf í vikunni þar sem hann viðrar áhyggjur sína af stöðu flokksins...
Versnandi staða flokksins og misklíð undanfarinna ára í röðum flokksfélaga hafi dregið úr áhuga þeirra...
...segist Guðjón Ólafur hafa síðustu mánuði fundið í vaxandi mæli fyrir uppgjöf fólks.
Þá segir Guðjón Ólafur: Enn grassera gróusögur, nú síðast um að forystumenn okkar í borgarstjórn hafi fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2006 keypt sér föt fyrir hundruð þúsunda á kostnað flokksins.
Slíkar sögur eru leiðigjarnar og mikilvægt að forystumenn okkar leiðrétti þær sem fyrst með afgerandi hætti, segir Guðjón Ólafur. Staða flokksins sé þannig að allir duglegir menn þurfi að taka höndum saman eigi að taka að rífa hann upp úr þeim djúpa öldudal sem hann sé í nú.
Bréf Guðjóns Ólafs, sem endar á óskum um gæfu og gengi á árinu, er merkt Trúnaðarmál. Það er þó birt í heild sinni á vefnum og var sent öllum Framsóknarmönnum í Reykjavík.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)